15:03
Við sjávarsíðuna
Syðra-Lón- og Skálar á Langanesi

Fólk og menning í strandbyggðum á Íslandi.

Umsjón: Pétur Halldórsson.

Rætt er við Brynhildi Halldórsdóttur á Syðra-Lóni, sjávarbýli sem er spölkorn utan við þorpið á Þórshöfn á Langanesi. Brynhildur giftist að Syðra-Lóni árið 1958. Hún segir frá búskapnum á fyrri tíð, hvernig sjórinn var sóttur samhliða kúa- og sauðfjárbúskap, talar um æðarvarpið sem var og er mikilvægur hluti af búskapnum á Syðra-Lóni, um árin sín sem hreppstjóri og fleira. Því næst er Guðbjörg Guðmundsdóttir heimsótt. Hún hefur lengst af búið á Þórshöfn en ólst hins vegar upp á Skálum á Langanesi til níu ára aldurs. Þorpið á Skálum fór að mestu í eyði árið 1948 og endanlega 1955. Guðbjörg segir frá lífsbaráttunni á Skálum, rafmagnsleysi, vatnsburði, leikjum barnanna, óblíðum veðrum o.s.frv. Umsjón: Pétur Halldórsson.

Var aðgengilegt til 08. maí 2025.
Lengd: 49 mín.
e
Endurflutt.
,