
Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Rúnar Róbertsson og Margrét Marteinsdóttir halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Líkt og glöggir hlustendur Síðdegisútvarpsins heyrðu í gær þá ræddum við um bein- heilsu og hvað hægt væri að gera til að koma í veg fyrir beinþynningu. Í dag ætlum við hins vegar að ræða fæðuofnæmi í nýju ljósi m.a þá staðreynd að ef við erum með ofnæmi fyrir ákveðinni fæðutegund dugar okkur að neyta hennar ekki, við þurfum ekki að forðast að vera i sama rými og slíkur matur er borinn á borð. Mikael Clausen ofnæmislæknir kom til okkar.
Allra augu beinast nú að fundi utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Danmerkur og Grænlands sem hófst í Washington kl. 15: 30 að íslenskum tíma og Grétar Þór Sigurðsson fréttamaður hefur fylgst með gangi mála af fundinum - Grétar kom til okkar og segja okkur af því allra helsta sem vitað er af þessum fundi.
Við ætlum líka að hringja til Kaupmannahafnar en sagt var frá því í fréttum í morgun að
danir ætli að auka herstyrk sinn á Grænlandi í samstarfi við Atlantshafsbandalagið frá og með deginum í dag. Jórunn Einarsdóttir býr í Kaupmannahöfn og starfar þar sem grunnskólakennari við heyrðum í henni.
Við rákum augun í frétt í Austurfrétt að framkvæmdir standi nú yfir í gamla Kaupfélagshúsinu á Stöðvarfirði þar sem hin síðari ár var rekið gisti- og kaffihús. Að framkvæmdum loknum fá Stöðfirðingar aftur verslun í þorpið eftir töluvert hlé. Það hlýtur að vera mikil gleði hjá Stöðfirðingum og við heyrðum í Valborgu Ösp Árnadóttur Warén, verkefnastjóri byggðaverkefnisins Sterkur Stöðvarfjörður
Hvaða áhrif hafa nýjar skattabreytingar og hækkandi vísitala á leigjendur landsins - Yngvi Ómar Sigrúnarson, varaformaður Leigjendasamtakanna kom til okkar.
Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness og Starfsgreinasambands Íslands hefur síðustu daga varað við því að nýjar skattabreytingar og hækkandi vísitala muni lenda af fullum þunga á heimilum landsins. Vilhjálmur nefndi meðal annars við mbl.is hækkun skatta á leigusala. Þá hafa greiningardeildir bankanna spáð því að verðbólga geti aukist enn frekar í janúar. Hvaða áhrif hefur þetta á leigjendur á Íslandi. Yngvi Ómar Sigrúnarson, varaformaður Leigjendasamtakanna segir að leiguverð muni hækka og hann fór yfir það með okkur.
Hópur fólks hefur nú í rétt tæpan mánuð leitað að tíu ára gömlum hundi sem heitir Hálka. Hálka litavar í pössun og slapp út 16. desember. Talið er að hún sé í Mosfellsdal. Í gær fundust á svæði í dalnum nýleg spor sem talin eru vera eftir Hálku en líka bæli. Kona sem hefur verið að leita af Hálku greindi frá þessu inni í facebook hópnum Týndir hundar.
Eigandi Hálku, hún Silla Vignisdóttir heldur því enn í vonina um að hún finnist. Við heyrðum í henni.
Helga Rakel Rafnsdóttir gagnrýndi hér í Síðdegisútvarpinu í gær aðgengismál í leikhúsum og nefndi Þjóðleikhúsið sérstaklega til sögunnar. Helga Rakel sem er kvikmyndakona og menntuð í leiklist er mikil leikhúsmanneskja en hún notar hjólastjól en segist vera búin að gefast upp á að fara í leikhús því bæði sé erfitt að fá miða og síðan þurfi hún að sitja til hliðar við hinn almenna áhorfanda, eins og hún orðaði það. Það sé leiðinlegt og niðurlægjandi, hún sé því farin í leikhúsverkfall.
Helga Rakel sagðist einnig í gær hér í Síðdegisútvarpinu hafa fengið upplýsingar um að þjóðleikhúsráð ætlaði að ræða málið á næsta fundi. Við höfðum samband við Halldór Guðmundsson, formann ráðsins í dag sem staðfesti að málið yrði tekið fyrir á næsta fundi Þjóðleikhússráðs sem er á mánudaginn. En það lá beinast við að hafa samband við Þjóðleikhússtjórann sjálfan. Magnús Geir Þórðarson kom til okkar.