
Bæn og hugleiðing að morgni dags.
Séra Bjarni Þór Bjarnason flytur.
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Umsjónarmenn eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.
75 ár eru í dag síðan Atlantshafssáttmálinn var undirritaður og Atlantshafsbandalagið varð til. Af því tilefni ræddi Bogi Ágústsson við Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra, um bandalagið og öryggis- og varnarmál.
Fyrir 60 árum áttu Bítlarnir lögin í fimm efstu sætum bandaríska Billboard-vinsældarlistans. Lögin fimm voru leikin.
Aðeins lítill hluti þess viðar sem hægt er að vinna úr skógum landsins er nýttur. Arnór Snorrason, skógfræðingur hjá Landi og skógi, segir mikla möguleika felast í skógarnytjum.
Ég syng þennan söng - Ari Jónsson,
Room full of roses - George Morgan,
I can dream, can´t I - Andres sisters,
Please please me - The Beatles,
I want to hold your hand - The Beatles,
She loves you - The Beatles,
Twist and shout - The Beatles,
Can´t buy me love - The Beatles,
Norwegian wood - The Beatles.

Útvarpsfréttir.

07:30

Útvarpsfréttir.

08:30

Útvarpsfréttir.

Morgunleikfimi með Halldóru Björnsdóttur.

Útvarpsfréttir.

Veðurstofa Íslands.

Umsjón: Kristján Kristjánsson.

Útvarpsfréttir.
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Til að geta skilið börn verður að líta til frumtengsla þeirra og ummönnunaraðila, það þarf að lesa svipbrigði, líkamlegt atferli, yrta og óyrta tjáningu barna svo unnt sé að skima fyrir hættu í tengslasamböndum þeirra. Þetta er skrifað í lýsingu á námskeiðinu Brosmildu og stilltu börnin sem Ragnheiður B. Guðmundsdóttir, félagsráðgjafi, fjölskyldufræðingur og doktorsnemi við HÍ, stýrir hjá Endurmenntun HÍ. Ragnheiður kom í þáttinn í dag og sagði okkur frá námskeiðinu og til dæmis hvernig hægt er að greina tengslahegðun barna sem búa við hættu.
Jónatan Garðarsson hefur heimsótt Mannlega þáttinn nokkrum sinnum upp á síðkastið og farið yfir feril þekktra íslenskra dægurlagasöngvara. Í dag er röðin komin að söngkonunni Erlu Stefánsdóttur frá Akureyri sem er klárlega þekktust fyrir flutning sinn á laginu Lóan er komin sem kom út á sjöunda áratugnum. Hún söng þó inn á fjölmargar plötur á ferli sínum og skemmti víða um land með ýmsum hljómsveitum. Erla fæddist 1947 í S-Þingeyjasýslu en fluttist til Akureyrar þar sem söngferill hennar hófst. Hún gerðist þá söngkona hljómsveitarinnar Póló sumarið 1964 en þeir félagar höfðu séð hana syngja sextán ára gamla á skólaskemmtun. Hún söng einnig á tímabili með Hljómsveit Ingimars Eydal. Hægt er að sjá Erlu syngja í sjónvarpsþættinum Manstu gamla daga frá árinu 1991 hér: https://www.ruv.is/sjonvarp/spila/manstu-gamla-daga/28071/8bmiri
Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur kom svo til okkar í dag í veðurspjall. Hann talaði um páskaveðrið, þegar við upplifðum snjó og kulda hér á landi en á sama tíma voru slegin hitamet víða um heimþ Það var t.d. fáheyrður hiti á Sahel svæðinu í Afríku með 48,5 stiga hita í Malí. Svo er það biðin endalausa eftir eiginlegu vori, það glittir eiginlega ekki enn í almennilega vortíð og svo litum við á langtímaspár.
Tónlist í þættinum:
Þú ert ungur enn / Erling Ágústsson (Logan, Price, texti Erling Ágústsson)
Lóan er komin / Erla Stefánsdóttir (James Bland, ljóð Páll Ólafsson)
Góða nótt / Erla Stefánsdóttir (franskt þjóðlag, texti Egill Bjarnason)
Vor í dal / Karlakórinn Heimir, Óskar Pétursson einsöngur (Peter Wulsing, texti Freysteinn Gunnarsson)
UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Dánarfregnir.

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.

Fólk úr ýmsum áttum flytur stuttar hugleiðingar sem tengjast sama umfjöllunarefni.
Umsjón hefur Brynjar Eldon Geirsson framkvæmdastjóri Golfsambands Íslands.

Íslenskt lag eða tónverk.
Útvarpsfréttir.
Þingflokksformaður Framsóknarflokksins segir brýnt að fá á hreint hvort forsætisráðherra ætli að bjóða sig fram til forseta. Komi til þess sé eðlilegt að viðræður verði teknar upp um áframhald ríkisstjórnarsamstarfs við nýja forystu Vinstri grænna. Engir formlegir fundir hafa þó verið boðaðir í dag.
Þrýstingur eykst stöðugt á ríkisstjórn Bretlands að hætta að senda vopn til Ísrael, eftir að Ísraelsher drap starfsfólk hjálparsamtaka í loftárás á Gaza. Stofnandi samtakanna segir árásina ekki hafa verið slys.
Hagnaðardrifin leigufélög hafa mjög sterk ítök á leigumarkaði í nágrannasveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins. Sex af hverjum tíu íbúðum sem þar eru leigðar út eru í eigu þessara leigufélaga.
Framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins kallaði eftir samstöðu Bandaríkjanna við önnur aðildarríki NATO, í ávarpi sem hann hélt á sjötíu og fimm ára afmælishátíð bandalagsins í morgun. Utanríkisráðherrar NATO-ríkjanna funda í Brussel, meðal annars til að undirbúa leiðtogafundinn í Washington í sumar.
Fjársöfnun Solaris-samtakanna fyrir brottflutning Palestínufólks af Gaza hefur verið kærð til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Ekki var full samstaða í peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands um að halda stýrivöxtum óbreyttum í mars. Varaseðlabankastjóri vildi lækka vexti um 0,25 prósent.
Enn er snjóflóðahætta til fjalla á Norður- og Austurlandi. Veðurstofan varar fólk við ferðum í brattlendi.
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta er á lokametrunum í undirbúningi sínum fyrir fyrsta leik í undankeppni Evrópumótsins sem verður gegn Póllandi á morgun.
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Daglegur fréttaskýringaþáttur þar sem stór og lítil fréttamál eru matreidd á einfaldan hátt.
Hvers vegna ákváðu tryggir kjósendur VG að yfirgefa flokkinn sinn? Daníel E. Arnarsson og Steinunn Rögnvaldsdóttir segja frá sínum ástæðum, hvernig þeim hugnast uppstokkun í flokknum og Katrín Jakobsdóttir sem forseti Íslands. Þóra Tómasdóttir ræddi við þau.
Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.
Netfang: [email protected]
Við ætlum að ræða aðeins um eldgosið við Sundhnúksgígaröðina. Gosið hefur nú staðið frá 16. mars og virknin talin stöðug. Tveir gígar eru nú virkir og samkvæmt nýjustu upplýsingum frá Veðurstofunni hefur landris ekki mælst undanfarna daga sem þykir benda til þess að jafnvægi sé nú í aðstreymi kviku undir Svartsengi. Og í gær var hættustig Almannavarna fært af neyðarstigi á hættustig. Kristín Jónsdóttir deildarstjóri á Veðurstofunni ætlar að fara yfir stöðuna með okkur.
Og við höldum okkur á veðurstofunni því undanfarið hafa fréttir af snjóflóðum og snjóflóðahættu verið tíðar og viðbragð vegna þess verið talsvert. Sveinn Brynjólfsson er sérfræðingur á sviði ofanflóðahættu. Hann ætlar að ræða við okkur á eftir.
Stefán Gíslason umhverfisstjórnunarfræðingur fjallar svo um snjallmæla í pistli í lok þáttar.

Útvarpsfréttir.

Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.
Í þættinum verður fjallað um tvö tónverk sem byggð eru á sögunni „Risinn eigingjarni" (The Selfish Giant) eftir Oscar Wilde. Sagan kom út í bók árið 1888 og fjallar um risa sem á fallegan blómagarð. Hann vill ekki lofa börnum að leika sér í honum og byggir múrvegg í kringum garðinn. En þegar börnin hætta að koma í garðinn vill vorið ekki koma þangað heldur svo veturinn ríkir stöðugt í garði risans. Dag einn gerist nokkuð sem kemur risanum á óvart og breytir afstöðu hans. Tónverkin tvö, sem byggð eru á sögunni, eru eftir Penelope Thwaites og Eric Coates. Verk Thwaites er frá árinu 1968, en verk Coates frá árinu 1925. Í þættinum verða lesin brot úr sögu Wildes í þýðingu eftir Þórodd Guðmundsson frá Sandi. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir, en lesari er Guðni Tómasson.

Útvarpsfréttir.
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.
Í einu rótgrónasta menningarvígi borgarinnar, Mokka við Skólavörðustíg, stendur nú yfir sýning á málverkum eftir Unnar Ara Baldvinsson. Sýningin kallast Hring eftir hring og þar gefur að líta olíumálverk þar sem hringurinn er í aðalhlutverki. Unnar Ari segir okkur frá því úr hverju hringirnir spretta í þætti dagsins.
Við ætlum einnig að leiða hugan að kvikmyndaefni sem byggir á bókum en samband bóka og kvikmynda getur verið snúið. Það er oft einhver tilfinning í loftinu fyrir því að dygðugara sé að lesa bókina áður en maður sér kvikmynd unna upp úr téðri bók.
Við kynnum einnig til leiks nýjan pistlahöfun í þættinum. Þorleifur Sigurlásson, tónlistarmaður en hann ætlar að vera með okkur næstu vikur og skoða tónlistarstefnur í ólíkum heimshornum sem eiga það sameiginlegt að hafa haft gríðarleg menningarleg áhrif, bæði á stöðum sem þær spretta fram sem og annarsstaðar í heiminum. Fyrsti áfangastaður hans er í listastefnunni Tropicáliu í Brasilíu.

Útvarpsfréttir.
Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Hver er Blanksy? Og hverjum datt í hug að búa til karakteri sem lspreyjar tölfræði um aðstæður öryrkja á bíla hjá áhrifavöldum? Við ræðum við Einar Ben hjá Bien og veltum fyrir okkur stafrænni markaðssetningu og vitundarvakningum á TikTok.
Við heyrum endurflutt innslag Kristjáns Guðjónssonar frá því í fyrra, um hugtakið Enshittification.
Við bregðum okkur í heimsókn í Hitt Húsið í Elliðaárdal, þar sem undirbúningur fyrir Söngkeppni framhaldsskólanna er í fullum gangi þessa dagana. Marinó Lilliendahl framkvæmdastjóri keppninnar, og Embla María Möller Atladóttir, forseti Sambands íslenskra framhaldsskólanema, segja okkur frá.

Fréttir
Kvöldfréttir útvarps
Líklegt er talið að Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra tilkynni um forsetaframboð á morgun. Formenn Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks og varaformaður Vinstri grænna semja nú um framhald stjórnarsamstarfsins.
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, varaformaður þingflokks VG, segist ekki reikna með að ráðherrafjöldi flokksins breytist ef formaðurinn tekur af skarið og býður sig fram.
Joe Biden Bandaríkjaforseti kallaði í dag eftir tafarlausu vopnahléi á Gaza og krafðist þess að Ísraelar gripu til aðgerða til að koma í veg fyrir að óbreyttir borgarar væru drepnir í hernaðaði Ísraela þar.
Landris mælist á ný við Svartsengi á Reykjanesskaga, og engar vísbendingar eru um að eldgosinu sé að ljúka, segir Kristín Jónsdóttir deildarstjóri hjá veðurstofu Íslands.
Starfsfólk sjúkrahúss í Prag sendi ranga konu í þungunarrofsaðgerð, fyrir misskilning. Stjórnandi sjúkrahússins harmar mistökin og býður konunni aðstoð.
Starfshópur á vegum Reykjavíkurborgar hefur lagt fram tillögur að aðgerðum til að stemma stigu við reiðhjólaþjófnaði á höfuðborgarsvæðinu. Hátt í 1.700 sautján hundruð tilkynningar um reiðhjólaþjófnað bárust frá 2021 til 2023.
Umsjón: Ævar Örn Jósepsson og Andri Yrkill Valsson
Tæknimaður: Mark Eldred
Stjórn útsendingar: Valgerður Þorsteinsdóttir
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
4. apríl 2024
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra staðfesti í gær að hún hefði íhugað forsetaframboð af mikilli alvöru. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, aflýsti för sinni á 75 ára afmælisfund Atlantshafsbandalagsins í Brussel og Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins frestaði boðuðum fundarhöldum á Austurlandi. Heimildir fréttastofu herma að þeir tveir eigi nú í viðræðum við Guðmund Inga Guðbrandsson, varaformann Vinstri grænna, um framhald ríkisstjórnarsamstarfs flokkanna þriggja. Flest - og jafnvel allt - bendir því til þess að Katrín ætli í framboð og muni tilkynna það áður en þing kemur saman á mánudag, líklega strax á morgun. Ævar Örn Jósepsson ræðir þessa dæmalausu stöðu við Eirík Bergmann Einarsson stjórnmálafræðing.
Forsetakosningarnar í sumar verða sögulegar, hvernig sem á það er litið. Fari forsætisráðherra fram, sem flest bendir til að verði niðurstaðan, er það stefnubreyting og opnar um leið ákveðna möguleika fyrir forsetaembættið. Þetta segir Guðmundur Hálfdánarson sagnfræðingur í samtali við Frey Gígju Gunnarsson.
Í sumar verða tuttugu og sjö pósthús og samstarfspósthús eftir á landinu öllu. Þau voru meira en tvöfalt fleiri fyrir fimmtán árum. Sveitarstjórar í smærri byggðarlögum hafa áhyggjur af þjónustuskerðingu og segja að póstbox komi ekki í stað pósthúss. Ólöf Rún Erlendsdóttir tók saman og ræddi við Björn Bjarka Þorsteinsson, Unni valborgu Hilmarsdóttur og Jón Björn Hákonarson.
Umsjón: Ævar Örn Jósepsson
Tæknimaður: Mark Eldred
Í þessum þáttum köfum við djúpt ofan í þjóðsögukistu heimsins. Sögurnar eru allskonar, sumar fyndnar, aðrar fróðlegar, sumar alveg út í hött og enn aðrar kannski svolítið hræðilegar eða draugalegar. Í hverjum þætti heyrum við tvær eða þrjár þjóðsögur frá ýmsum heimshornum.
Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir.
Þjóðsögur þáttarins:
Meiri mold, meiri mold! (Ísland)
Tröllin sem reyndu að stela Færeyjum (Færeyjar)
Skarfurinn og æðarfuglinn (Færeyjar)
Kókoshnetutréð (Pólýnesía)
Leikraddir:
Adam Ernir Níelsson
Andri Már Helgason
Helgi Már Halldórsson
Sigurður Ingi Einarsson
Sérfræðingur í þjóðsögum: Terry Gunnell, prófessor í þjóðfræði við Háskóla Íslands
Lestur og umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir

Veðurstofa Íslands.

Dánarfregnir.

Sígild tónlist.
Hljóðritun frá tónleikum Dönsku útvarpshljómsveitarinnar sem fram fóru í Tónleikahúsi Danska útvarpsins í Kaupmannahöfn, í nóvember s.l.
Á efnisskrá:
*Píanókonsert nr. 4 í G-dúr op. 58 eftir Ludwig van Beethoven.
*Sinfónía nr. 42 í C-dúr K. 551, Júpíter-sinfónían, eftir Wolfgang Amadeus Mozart.
Einleikari: Francesco Piemontesi.
Stjórnandi: Herbert Blomstedt.
Umsjón: Thelma Hrönn Sigurdórsdóttir.
Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.
Netfang: [email protected]
Við ætlum að ræða aðeins um eldgosið við Sundhnúksgígaröðina. Gosið hefur nú staðið frá 16. mars og virknin talin stöðug. Tveir gígar eru nú virkir og samkvæmt nýjustu upplýsingum frá Veðurstofunni hefur landris ekki mælst undanfarna daga sem þykir benda til þess að jafnvægi sé nú í aðstreymi kviku undir Svartsengi. Og í gær var hættustig Almannavarna fært af neyðarstigi á hættustig. Kristín Jónsdóttir deildarstjóri á Veðurstofunni ætlar að fara yfir stöðuna með okkur.
Og við höldum okkur á veðurstofunni því undanfarið hafa fréttir af snjóflóðum og snjóflóðahættu verið tíðar og viðbragð vegna þess verið talsvert. Sveinn Brynjólfsson er sérfræðingur á sviði ofanflóðahættu. Hann ætlar að ræða við okkur á eftir.
Stefán Gíslason umhverfisstjórnunarfræðingur fjallar svo um snjallmæla í pistli í lok þáttar.

Veðurstofa Íslands.
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Til að geta skilið börn verður að líta til frumtengsla þeirra og ummönnunaraðila, það þarf að lesa svipbrigði, líkamlegt atferli, yrta og óyrta tjáningu barna svo unnt sé að skima fyrir hættu í tengslasamböndum þeirra. Þetta er skrifað í lýsingu á námskeiðinu Brosmildu og stilltu börnin sem Ragnheiður B. Guðmundsdóttir, félagsráðgjafi, fjölskyldufræðingur og doktorsnemi við HÍ, stýrir hjá Endurmenntun HÍ. Ragnheiður kom í þáttinn í dag og sagði okkur frá námskeiðinu og til dæmis hvernig hægt er að greina tengslahegðun barna sem búa við hættu.
Jónatan Garðarsson hefur heimsótt Mannlega þáttinn nokkrum sinnum upp á síðkastið og farið yfir feril þekktra íslenskra dægurlagasöngvara. Í dag er röðin komin að söngkonunni Erlu Stefánsdóttur frá Akureyri sem er klárlega þekktust fyrir flutning sinn á laginu Lóan er komin sem kom út á sjöunda áratugnum. Hún söng þó inn á fjölmargar plötur á ferli sínum og skemmti víða um land með ýmsum hljómsveitum. Erla fæddist 1947 í S-Þingeyjasýslu en fluttist til Akureyrar þar sem söngferill hennar hófst. Hún gerðist þá söngkona hljómsveitarinnar Póló sumarið 1964 en þeir félagar höfðu séð hana syngja sextán ára gamla á skólaskemmtun. Hún söng einnig á tímabili með Hljómsveit Ingimars Eydal. Hægt er að sjá Erlu syngja í sjónvarpsþættinum Manstu gamla daga frá árinu 1991 hér: https://www.ruv.is/sjonvarp/spila/manstu-gamla-daga/28071/8bmiri
Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur kom svo til okkar í dag í veðurspjall. Hann talaði um páskaveðrið, þegar við upplifðum snjó og kulda hér á landi en á sama tíma voru slegin hitamet víða um heimþ Það var t.d. fáheyrður hiti á Sahel svæðinu í Afríku með 48,5 stiga hita í Malí. Svo er það biðin endalausa eftir eiginlegu vori, það glittir eiginlega ekki enn í almennilega vortíð og svo litum við á langtímaspár.
Tónlist í þættinum:
Þú ert ungur enn / Erling Ágústsson (Logan, Price, texti Erling Ágústsson)
Lóan er komin / Erla Stefánsdóttir (James Bland, ljóð Páll Ólafsson)
Góða nótt / Erla Stefánsdóttir (franskt þjóðlag, texti Egill Bjarnason)
Vor í dal / Karlakórinn Heimir, Óskar Pétursson einsöngur (Peter Wulsing, texti Freysteinn Gunnarsson)
UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Hver er Blanksy? Og hverjum datt í hug að búa til karakteri sem lspreyjar tölfræði um aðstæður öryrkja á bíla hjá áhrifavöldum? Við ræðum við Einar Ben hjá Bien og veltum fyrir okkur stafrænni markaðssetningu og vitundarvakningum á TikTok.
Við heyrum endurflutt innslag Kristjáns Guðjónssonar frá því í fyrra, um hugtakið Enshittification.
Við bregðum okkur í heimsókn í Hitt Húsið í Elliðaárdal, þar sem undirbúningur fyrir Söngkeppni framhaldsskólanna er í fullum gangi þessa dagana. Marinó Lilliendahl framkvæmdastjóri keppninnar, og Embla María Möller Atladóttir, forseti Sambands íslenskra framhaldsskólanema, segja okkur frá.

Útvarpsfréttir.
Matthías Már Magnússon og Hulda Geirsdóttir fylgja hlustendum inn í daginn með ljúfum tónum sem fara vel með fyrsta kaffibollanum.
Lagalisti:
Helgi Björnsson - Ég Skrifa Þér Ljóð Á Kampavínstappa.
DUA LIPA & ELTON JOHN - Cold Heart (PNAU Remix).
Hera Björk Þórhallsdóttir - Scared Of Heights.
MADNESS - Our House.
Ensími - New leaf.
BLUR - Coffee - Tv.
Jones, Norah - Running.
KK - Kærleikur og tími.
Future Islands - The Thief.
EMMSJÉ GAUTI - Þúsund hjörtu.
THIN LIZZY - The Boys Are Back In Town.
SHEAD - Trampoline.
PHIL COLLINS - In The Air Tonight.
ROXY MUSIC - More Than This.
THE POLICE - Roxanne.
DAVID BOWIE - Starman.

Útvarpsfréttir.

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Dýrahjálp Íslands heldur úti mikilvægri starfsemi til hjálpar dýrum í heimilisleit og neyð. Í dag stendur Dýrahjálpin fyrir viðburði í tengslum við flutninga félagsins og við heyrðum í Sonju Stefánsdóttur framkvæmdastjóra Dýrahjálparinnar sem sagði okkur meira af starfseminni og því sem fram undan er.
Jóhanna Sjöfn Guðmundsdóttir, sauðfjárbóndi á Grímsstöðum í Reykholtsdal í Borgarfirði, er nýkjörin formaður samtakanna Beint frá býli. Jóhanna Sjöfn var á línunni hjá okkur og sagði okkur frá vaxandi starfsemi samtakanna og tækifærum bænda á þessum vettvangi.
Innviðir Reykjanesbæjar eru sprungnir sagði Morgunblaðinu í gær. Að sögn skipulagsfulltrúa Reykjanesbæjar þarf að fjárfesta til að mæta þörfum nýrra íbúa úr Grindavík. Við erum einfaldlega strand með innviði segir Gunnar Kristinn Ottósson, skipulagsfulltrúi í Reykjanesbæ. Gunnar fór yfir stöðuna með okkur.
Pétur Markan er nýráðinn bæjarstjóri í Hveragerði. Ráðningin kom hratt til en Pétur hefur starfað sem biskupsritari undanfarin ár. Við ætlum að spjalla við hann um tímann hjá kirkjunni og framtíðarverkefnin sem nú bíða fyrir austan fjall.
Sigursteinn Másson er maðurinn ... og röddin á bak við Sönn íslensk sakamál. Nú eru nýir þættir farnir af stað hjá sjónvarpi Símans og við ræddum við Sigurstein um málin sem hann skoðar að þessu sinni.
Guðbjörg Ýr Hilmarsdóttir og Eyrún Sigþórsdóttur eru nemendur í Tómstunda- og félagsmálafræði í HÍ og hluti af námi þeirra er viðburðarstjórnun. Þær stöllur, ásamt félögum sínum, hafa skipulagt tónleika sem fara fram í Lindakirkju í kvöld og eru til styrktar Krafti, stuðningsfélagi fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur þeirra. Við heyrðum af náminu og tónleikunum.
Tónlist:
Mugison - A little trip to heaven.
Bubbi - Holan.
Violent Femmes - Blister in the sun.
Paolo Nutini - New shoes.
Una Torfa - Um mig og þig.
Sting - Brand New Day.

07:30

Útvarpsfréttir.

08:30

Útvarpsfréttir.
Hjartagosar á Rás 2 eru vinir í raun á besta tíma dagsins.
Tónlist, dægurmál, menning og íþróttir.
Hjartagosar á Rás 2, fyrir þig frá klukkan 9 á föstudögum.
Umsjón: Þórður Helgi Þórðarson og Andri Freyr Viðarsson.
Doddi sinn var einmanna í þætti dagsins þar sem Andri lá lasinn heima.
En Doddinn tók gleði sína á ný þegar heil fjölskylda, Kiryama fjölskyldan mætti í hús til að kynna útgáfu á ekki einni heldur tveim nýjum plötum.
Auðvitað færðu þau sig yfir í betri stofuna og tóku lagið í beinni útsendingu.
Orðbrotið vafðist heldur betur fyrir hlustendum en Steingrímur og vinur hans sáu í gegnum allar gildrur Dodda í lagasyrpu dagsins
Tónlist frá útsendingarlogg 2024-04-04
Helgi Björnsson - Himnasmiðurinn.
BILLY IDOL - Mony mony.
TEARS FOR FEARS - Sowing the Seeds of Love (80).
Herbert Guðmundsson Tónlistarm. - Allt á uppleið!.
Júlí Heiðar, PATRi!K - Heim.
SANTANA - Winning (80).
SOPHIE ELLIS BEXTOR - Murder On The Dancefloor.
GDRN - Þú sagðir.
COLDPLAY - In My Place.
Kaleo - Lonely Cowboy.
KYLIE MINOGUE - All The Lovers.
Emilíana Torrini - Let?s keep dancing.
THE WATERBOYS - The Whole Of The Moon.
DE LA SOUL - Say No Go (80).
Ngonda, Jalen - Illusions.
Laufey - Goddess.
Stefán Hilmarsson - Súkkulaði og sykur.
Kiriyama Family - Disaster.
THE CARS - Drive.
Lada Sport - Ólína.
DONNA SUMMER - Hot Stuff.
TRABANT - Maria.
PAUL SIMON - Me And Julio Down By The Schoolyard.
Í SVÖRTUM FÖTUM - Meðan Ég Sef.
AFTERSHOCK - Slave to The Vibe (7" mix).
Árni Bergmann Jóhannsson, Guðmundur R - Orð gegn orði.
THE BEATLES - Twist and Shout.
Óviti, Kusk og Óviti, KUSK - Loka augunum.
CHICANE - Saltwater (Original 7" edit).
Maverick Sabre, Vintage Culture, Breu, Tom - Weak.
KISS - Shout It Out Loud.
SPECIALS - A Message To You Rudy.
OASIS - Wonderwall.
Huginn - Veist af mér.
Geislar - Sunspot.

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Þingflokksformaður Framsóknarflokksins segir brýnt að fá á hreint hvort forsætisráðherra ætli að bjóða sig fram til forseta. Komi til þess sé eðlilegt að viðræður verði teknar upp um áframhald ríkisstjórnarsamstarfs við nýja forystu Vinstri grænna. Engir formlegir fundir hafa þó verið boðaðir í dag.
Þrýstingur eykst stöðugt á ríkisstjórn Bretlands að hætta að senda vopn til Ísrael, eftir að Ísraelsher drap starfsfólk hjálparsamtaka í loftárás á Gaza. Stofnandi samtakanna segir árásina ekki hafa verið slys.
Hagnaðardrifin leigufélög hafa mjög sterk ítök á leigumarkaði í nágrannasveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins. Sex af hverjum tíu íbúðum sem þar eru leigðar út eru í eigu þessara leigufélaga.
Framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins kallaði eftir samstöðu Bandaríkjanna við önnur aðildarríki NATO, í ávarpi sem hann hélt á sjötíu og fimm ára afmælishátíð bandalagsins í morgun. Utanríkisráðherrar NATO-ríkjanna funda í Brussel, meðal annars til að undirbúa leiðtogafundinn í Washington í sumar.
Fjársöfnun Solaris-samtakanna fyrir brottflutning Palestínufólks af Gaza hefur verið kærð til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Ekki var full samstaða í peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands um að halda stýrivöxtum óbreyttum í mars. Varaseðlabankastjóri vildi lækka vexti um 0,25 prósent.
Enn er snjóflóðahætta til fjalla á Norður- og Austurlandi. Veðurstofan varar fólk við ferðum í brattlendi.
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta er á lokametrunum í undirbúningi sínum fyrir fyrsta leik í undankeppni Evrópumótsins sem verður gegn Póllandi á morgun.

Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir.
Siggi Gunnars og Lovísa Rut stýrðu Popplandi dagsins og voru í góðu stuði. Arnar Eggert og Andrea Jóns gerðu upp plötu vikunnar og póstkassinn var opnaður.
Friðrik Dór Jónsson - Aftur ung (Dansaðu við mig).
Roll, Jelly - Need A Favor.
STEPPENWOLF - Born To Be Wild.
Williams, Pharrell, Mumford and Sons - Good People.
Royel Otis - Murder on the Dancefloor (triple j Like A Version).
UNNSTEINN - Andandi.
Pet Shop Boys - Loneliness.
MGMT - Time To Pretend.
Daði Freyr Pétursson - I'm not bitter.
BLUR - The Narcissist.
GDRN - Almenn kynning - Kynningar (plata vikunnar 2024 14. vika).
GDRN - Háspenna.
GDRN - Parísarhjól.
Unnsteinn Manuel Stefánsson, GDRN - Utan þjónustusvæðis.
GDRN - Nær.
GDRN - Þú sagðir.
GDRN - Skilja.
GDRN - Ævilangt.
GDRN - Eins og áður fyrr.
GDRN - Þú sagðir.
Lana Del Rey - Video Games.
Ragnhildur Gísladóttir - Hvað Um Mig Og Þig?.
LÓN - Cold Crisp Air.
EVERYTHING BUT THE GIRL - Missing (Todd Terry Club Remix).
ROLLING STONES - Angie.
Kahan, Noah, Fender, Sam - Homesick.
Vampire Weekend - Capricorn.
BECK - Up All Night.
ELTON JOHN - Daniel.
Emmsjé Gauti - Taka mig í gegn.
Ocean, Frank - Pink + White.
Cyrus, Miley, Beyoncé - II Most Wanted.
Raye - Worth It.
Laufey - Goddess.
BJÖRG PÉ - Timabært.
METRONOMY - The Look.
Supernatural Suburbia - The Greek Tragedy.
Lenker, Adrianne - Sadness as a Gift.
Fleetwood Mac - Silver springs.
Mitchell, Joni - A Case Of You.
Júníus Meyvant & KK - Skýjaglópur.
Hurray For The Riff Raff - Alibi.
AMPOP - My Delusions.
Boone, Benson - Beautiful Things.
STEPHEN SANCHEZ - Until I Found You.
Á móti sól - Okkur líður samt vel.

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Morgunblaðið greindi frá því í morgun að lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu hafði borist kæra á hendur tveimur af forsvarskonum Solaris-hjálparsamtakanna, þeim Semu Erlu Serdaroglu og Maríu Lilju Þrastardóttur. Í kærunni eru þær sakaðar um refsiverða háttsemi í tengslum við söfnun samtakanna til að aðstoða við brottflutning Palestínufólks af Gaza, m.a. um brot á lögum um opinberar fjársafnanir og um mútugreiðslur til erlendra starfsmanna. Gunnar Ingi Jóhannsson, lögmaður Maríu Lilju og hann ætlar að setjast niður með okkur og greina frá því hvernig málið horfir við umbjóðanda hans.
Ný skýrsla Ríkisendurskoðunar um ópíóðafaraldurinn er svört. Í skýrslunni kemur fram að ekkert ráðuneyti eða stofnun hefur tekið skýra forystu í málum er varða ópíóíðafíkn eða fíknivanda almennt en að heilbrigðisráðuneyti beri að taka hana. Yfir 100 manns deyja á ári hverju úr fíknisjúkdómnum. Á bak við þessi týndu líf eru að minnsta kosti 1.000 aðstandendur og fjölskyldur sem brotna niður harmi slegnar. Foreldrar eru að missa börnin sín og börn eru að missa foreldra sína. Til að ræða þessi mál og segja okkur frá samstöðufundi sem haldinn verður á morgun koma til okkar þau Kolfreyja Sól ung stúlka í bata eftir meðferð á Hlaðgerðarkoti og Sigmar Guðmundsson þingmaður.
Um helgina er framundan Íslandsmótið í skrafli en mótið var fyrst haldið árið 2013. Það má segja að ákveðin sprenging hafi orðið í skrafláhuga landsmanna þegar netskrafl tók að ryðja sér til rúms. Við fáum einn af forkólfum skraflhreyfingarinnar á Íslandi Hildi Lilliendahl í spjall til okkar, hitum upp fyrir mótið um helgina og heyrum aðeins af skrafláhuga þjóðarinnar.
Hvað er Hyrox ? Við ætlum að forvitnast um það á eftir hjá Evert Víglundssyni corssfitt kóngi.
Og eins og alltaf á fimmtudögum þá mætir Atli Fannar til okkar með MEME vikunnar.
Sjálfstæðismenn í borginni munu leggja fram tillögu á borgarstjórnarfundi næstkomandi þriðjudag sem felur í sér að efna til tilraunaverkefnis um að hefja kennslu í fimm ára bekk. Og á línunni hjá okkur er Hildur Björnsdóttir oddviti sjálfstæðisflokksins í borginni.
Lagalistinn:
LAND OG SYNIR - Von Mín Er Sú.
HAIM - Don't Wanna.
Curtis Mayfield - Move on Up.
JENNIFER LOPEZ - Jenny from the block.
FLEETWOOD MAC - Don't Stop.
ÚLFUR ÚLFUR - Þú hér.
Helgi Björnsson - Himnasmiðurinn.
Una Torfadóttir - Um mig og þig.
McKenna, Declan - Slipping Through My Fingers.

Útvarpsfréttir.

Fréttir
Kvöldfréttir útvarps
Líklegt er talið að Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra tilkynni um forsetaframboð á morgun. Formenn Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks og varaformaður Vinstri grænna semja nú um framhald stjórnarsamstarfsins.
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, varaformaður þingflokks VG, segist ekki reikna með að ráðherrafjöldi flokksins breytist ef formaðurinn tekur af skarið og býður sig fram.
Joe Biden Bandaríkjaforseti kallaði í dag eftir tafarlausu vopnahléi á Gaza og krafðist þess að Ísraelar gripu til aðgerða til að koma í veg fyrir að óbreyttir borgarar væru drepnir í hernaðaði Ísraela þar.
Landris mælist á ný við Svartsengi á Reykjanesskaga, og engar vísbendingar eru um að eldgosinu sé að ljúka, segir Kristín Jónsdóttir deildarstjóri hjá veðurstofu Íslands.
Starfsfólk sjúkrahúss í Prag sendi ranga konu í þungunarrofsaðgerð, fyrir misskilning. Stjórnandi sjúkrahússins harmar mistökin og býður konunni aðstoð.
Starfshópur á vegum Reykjavíkurborgar hefur lagt fram tillögur að aðgerðum til að stemma stigu við reiðhjólaþjófnaði á höfuðborgarsvæðinu. Hátt í 1.700 sautján hundruð tilkynningar um reiðhjólaþjófnað bárust frá 2021 til 2023.
Umsjón: Ævar Örn Jósepsson og Andri Yrkill Valsson
Tæknimaður: Mark Eldred
Stjórn útsendingar: Valgerður Þorsteinsdóttir
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
4. apríl 2024
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra staðfesti í gær að hún hefði íhugað forsetaframboð af mikilli alvöru. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, aflýsti för sinni á 75 ára afmælisfund Atlantshafsbandalagsins í Brussel og Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins frestaði boðuðum fundarhöldum á Austurlandi. Heimildir fréttastofu herma að þeir tveir eigi nú í viðræðum við Guðmund Inga Guðbrandsson, varaformann Vinstri grænna, um framhald ríkisstjórnarsamstarfs flokkanna þriggja. Flest - og jafnvel allt - bendir því til þess að Katrín ætli í framboð og muni tilkynna það áður en þing kemur saman á mánudag, líklega strax á morgun. Ævar Örn Jósepsson ræðir þessa dæmalausu stöðu við Eirík Bergmann Einarsson stjórnmálafræðing.
Forsetakosningarnar í sumar verða sögulegar, hvernig sem á það er litið. Fari forsætisráðherra fram, sem flest bendir til að verði niðurstaðan, er það stefnubreyting og opnar um leið ákveðna möguleika fyrir forsetaembættið. Þetta segir Guðmundur Hálfdánarson sagnfræðingur í samtali við Frey Gígju Gunnarsson.
Í sumar verða tuttugu og sjö pósthús og samstarfspósthús eftir á landinu öllu. Þau voru meira en tvöfalt fleiri fyrir fimmtán árum. Sveitarstjórar í smærri byggðarlögum hafa áhyggjur af þjónustuskerðingu og segja að póstbox komi ekki í stað pósthúss. Ólöf Rún Erlendsdóttir tók saman og ræddi við Björn Bjarka Þorsteinsson, Unni valborgu Hilmarsdóttur og Jón Björn Hákonarson.
Umsjón: Ævar Örn Jósepsson
Tæknimaður: Mark Eldred

Í Undiröldinni heyrir þú nýja íslenska tónlist úr ýmsum áttum sem gæti mögulega slegið í gegn á næstu vikum. Þetta gæti verið popp, raftónlist, rapp, kántrí, þungarokk eða djass - en eina sem er 100% hægt að lofa - er að lögin sem eru spiluð eru ný og íslensk .
Umsjón: Þorsteinn Hreggviðsson.
Lagalistinn
Kaleo - Lonely Cowboy
Emmsjé Gauti - Taka mig í gegn
Birkir Blær - Leaders
BSÍ - Lily (hot dog)
Supernatural Suburbia - The Greek Tragedy
Moff & Tarkin - Ewok
Exos - Open Your Mind

Fréttastofa RÚV.
Gjallarhorn fyrir nýjar raddir, nýstárlegar hugmyndir, óhljóð og tónlist sem þú hefur aldrei heyrt. Í Ólátagarði á íslensk grasrótartónlist griðarstað.
Umsjón: Einar Karl Pétursson og Björk Magnúsdóttir.
Ólátagarður snýr aftur eftir tveggja vikna pásu með smekkfullan þátt af splunkunýrri tónlist eins og vaninn er á þeim bænum. MC Myasnoi mættu svo í stúdíóið að ræða og hlusta á tónleika sína á Upprásinni 5. mars síðastliðinn og ræða hvað væri á döfinni hjá bandinu. Síðasti klukkutími þáttarins var svo í höndum gestaplötusnúðar þáttarins sem í þetta skipti var Einar Karl sem hefur verið iðinn við tónleikaupptökur undanfarin ár og spilaði ýmislegt gómsætt fyrir hlustendur.
Sama stað - JóiPé&Króli, Ussell
Literally Everything - Brimheim
Í öðrum heimi - Snorri Pétursson
My nokia - Juno Paul
Fullt tungl - Alaska1867
Figure - Sunna Margrét
Father Figure - Jóhann Egill
Lily (hot dog) - BSÍ
Einhverskonar vél - Hlífar Örn Jakobsson
Intro (Upprásin 5. mars 2024) - MC Myasnoi
Step On Your Neck (Upprásin 5. mars 2024) - MC Myasnoi
Nytrogen -(Upprásin 5. mars 2024) - MC Myasnoi
Xcomputer must dieX (Upprásin 5. mars 2024) - MC Myasnoi
Drum Solo (Upprásin 5. mars 2024) - MC Myasnoi
We Dont Feel (Upprásin 5. mars 2024) - MC Myasnoi
Santa fe - Baula
Brotinn maður - FeelNik
Bootleg í boði Einars:
Bródolía - Ateria
Intro - Sucks To Be You Nigel
Án titils - Drengurinn Fengurinn & Haraldur Helgason
Ómerkilegir menn - Ókindarhjarta
Húsið mitt - Supersport
Fuðrar upp fiðrildi - Hljóðmaskína
Storm - Slacker Essentials
Eina sem ég gleymdi - Stirnir

Tónleikaupptökur víðsvegar að úr heiminum, frá ýmsum tímum og úr ólíkum tónlistaráttum. Nýjar og gamlar tónleikaupptökur úr safni Rásar 2 í bland við upptökur frá tónlistarhátíðum erlendis sem vinir Rásar 2 í EBU bjóða upp á.