
Bæn og hugleiðing að morgni dags.
Séra Margrét Lilja Vilmundardóttir flytur.

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Björn Þór Sigbjörnsson, Þórunn Elísabet Bogadóttir og Gígja Hólmgeirsdóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Brot Íslandsbanka við söluna á bréfum í sjálfum sér eru ekki tilfallandi heldur bæði alvarleg og kerfislæg, og brotin voru af ýmsum toga, samkvæmt skýrslu um sátt bankans við Fjármálaeftirlit Seðlabanka. Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Heimildarinnar, fór yfir sögu málsins og niðurstöður skýrslunnar.
Arthúr Björgvin Bollason var á línunni frá Þýskalandi. Hann sagði frá kurr í Kristilega demókrataflokknum þýska um formanninn Friedrich Marz, sem hluta flokksmanna þykir ekki æskilegt kanslaraefni. Arthúr Björgvin fjallaði líka um loftbrú Bandamanna til Vestur-Berlínar en 75 ár eru um þessar mundir síðan efnt var til hennar, og Íslandskynningu í München með forsetafrúnni Elizu Reid.
Á fimmta hundrað kvenna hvaðanæva að úr heiminum sótti heimsþing Alþjóðasambands dreifbýliskvenna var haldið í síðasta mánuði í Kuala Lumpur, höfuðborg Malasíu. Alþjóðasambandið beitir sér fyrir hagsmunum og bættri stöðu kvenna í dreifbýli um heim allan. Í sendinefnd Íslands á þinginu var Jenný Jóakimsdóttir, starfsmaður Kvenfélagasambands Íslands, hún sagði frá ferð sinni.
Tónlist:
Hægt en bítandi - Tómas R. Einarsson
Sæll og glaður - Tómas R. Einarsson
Þú ert - Tómas R. Einarson
Watch The Angel Go - Abby Johnson
Umsjón:
Vera Illugadóttir og Þórunn Elísabet Bogadóttir.

Útvarpsfréttir.

07:30

Útvarpsfréttir.

08:30

Útvarpsfréttir.

Þáttur um gleðina og vonbrigðin í sumarástinni. Flett upp í ástarsögum sem til voru í sveitinni, gluggað í gömul og ný húsráð sem geta verið góð til viðhalds ástinni. Einnig er rætt við fólk sim rifjar sumarástina upp. Hugljúf lög leikin milli atriða sem gætu vel hrært vel upp í minningapottinum.
Umsjón: Elísabet Brekkan.
(Áður á dagskrá sumarið 2008)
Í þættinum sumar ást er það ástin á íslenska hestinum sem er í aðalhlutverki. Catrin Annika Engström starfar hér við feldskurð og hestanudd en upphaflega var það ástin á íslenska hestinum sem dró hana hingað frá Svíþjóð. Minnst verður einnig á ísbirni fyrr á tímum. Sumarást í anda íslensku dýranna.
Umsjón: Elísabet Brekkan.

Morgunleikfimi með Halldóru Björnsdóttur.

Útvarpsfréttir.

Veðurstofa Íslands.

Umsjón: Kristján Kristjánsson.

Útvarpsfréttir.

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Teepa Snow er iðjuþjálfi, aðstandandi og með yfir 30 ára starfsreynslu af starfi fyrir fólk með heilabilun, bæði í beinni þjónustu og fræðistarfi. Hún heldur fyrirlestra víða um heim og er þekkt fyrir nálgun sína og lifandi aðferðir við að miðla þekkingu sinni og í dag heldur Teepa fyrirlestur á Íslandi í dag á vegum samtakanna Verndrum veika og aldraða. Við fengum Áslaugu Dröfn Sigurðardóttur, aðstandanda, og meðlim í samtökunum til að segja okkur meira frá Teepu og viðburðinum í þættinum í dag.
Jazzklúbburinn Múlinn heldur áfram með sumardagskrá sína með spennandi tónleikum og á morgun í Flóa í Hörpu koma fram Ife Tolentino og Óskar Guðjónsson ásamt hljómsveit. Þegar Óskar og Ife, sem er frá Brasilíu, voru búnir að vinna saman í talsvert mörg ár fundust þó nokkuð af skúffulögum í fórum Ife sem hann hafði aldrei gert neitt með. Þarna var kominn efniviður sem Óskar vildi ekki láta fara forgörðum og hafist var handa við upptökur. Nú er platan að koma út og á útgáfutónleikum verður hún leikin ásamt fleiri brasilískum lögum af þeim félögum ásamt frábærri hljómsveit. Við hringdum í Óskar í þættinum.
Við sem búum á höfuðborgarsvæðinu gleymum stundum hvað það er skemmtilegt að fara útí Viðey. Á sumrin er boðið uppá dagskrá um helgar eins og td. núna á laugardaginn 1.júlí. Börnum verða sagðar þjóðsögur í Viðey í skemmtilegri náttúrugöngu og sögukonan er Björk Bjarnadóttir umhverfis- og þjóðfræðingur. Spáð verður í jurtirnar, nöfn þeirra, athugað verður hvort það fylgi þeim einhver þjóðtrú, nytjar þeirra skoðaðar og fjallað um lækningamátt þeirra. Við heyrðum í Björk í þættinum.
Tónlist í þættinum:
Rock Calypso í réttunum / Haukur Morthens (erlent lag /Jón Sigurðsson)
Southern cross / Crosby Stills and Nash (Stephen Stills, Michael Curtis og Richard Curtis)
Nao Tem Misterio / Ife Tolentino (Ife Tolentino)
Austurstræti / L?amour Fou (Þórhallur Sigurðsson)
UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Dánarfregnir.

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.

Fólk úr ýmsum áttum flytur stuttar hugleiðingar sem tengjast sama umfjöllunarefni.
Umsjón hefur Gyða Margrét Pétursdóttir, prófessor í kynjafræði við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands

Íslenskt lag eða tónverk.

Útvarpsfréttir.

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Daglegur fréttaskýringaþáttur þar sem stór og lítil fréttamál eru matreidd á einfaldan hátt.
Tíminn líður og málin þróast. Þannig er það bara. Í þætti dagsins rifjum við upp þrjú erlend sakamál sem hafa verið til umfjöllunar í Þetta helst og tökum stöðuna á þeim í dag. Snorri Rafn Hallsson tekur fyrir 3 mál: kvenhatarann Andrew Tate sem sætir nú ákæru fyrir skipulagða glæpastarfsemi og mansal í Rúmeníu; Hollywoodleikarann Alec Baldwin sem varð kvikmyndatökukonunni Halynu Hutchins að bana þegar skot hljóp úr byssu við tökur á kvikmyndinni Rust; og Madeleine McCann, en vísbendinga um hvarf hennar var leitað í Portúgal fyrir um mánuði síðan, þýska lögreglan handviss um að dæmdur kynferðisbrotamaður beri ábyrgð á hvarfi hennar.
Umsjónarfólk segir frá tímabili í ævi sinni og leikur tónlist sem endurspeglar tímann eða atburði sem sagt er frá.
Umsjónarfólk segir frá tímabili í ævi sinni og leikur tónlist sem endurspeglar tímann eða atburði sem sagt er frá.
Umsjón: Kristján Sigurjónsson.

Útvarpsfréttir.
Samúel Jón Samúelsson fer í tveimur þáttum yfir feril og ævi bandaríska tónskáldsins, lagahöfundarins, útsetjarans, upptökustjórans og píanóleikarans Burt Bacharach sem lést 8. febrúar sl. 94 ára að aldri.
Bacharach átti hátt í 7 áratuga farsælan feril að baki. Hann samdi hundruði laga og komust 73 þeirra á top 40 lista í Bandaríkjunum og 52 i Bretlandi. Samkvæmt wikipedia hafa yfir 1000 listamenn hljóðritað lögin hans. Í þáttunum fáum við að heyra marga af hans stærstu smellum í bland við óppgötvaðar perlur og uppáhalds lög umsjónarmannsins.
Samúel Jón Samúelsson fer í tveimur þáttum yfir feril og ævi bandaríska tónskáldsins, lagahöfundarins, útsetjarans, upptökustjórans og píanóleikarans Burt Bacharach sem lést 8. febrúar s.l. 94 ára að aldri.
Bacharach átti hátt í 7 áratuga farsælan feril að baki. Hann samdi hundruði laga og komust 73 þeirra á top 40 lista í Bandaríkjunum og 52 i Bretlandi. Samkvæmt wikipedia hafa yfir 1000 listamenn hljóðritað lögin hans. Í þáttunum fáum við að heyra marga af hans stærstu smellum í bland við óuppgötvaðar perlur og uppáhalds lög umsjónarmannsins.

Útvarpsfréttir.
Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Umsjónarmaður heldur áfram að lesa úr æviminningabók Theódórs Friðrikssonar. Að þessu sinni les hann frásögn Theódórs af því þegar hann var umsjónarmaður í sæluhúsinu í Hvítanesi í mánaðartíma í júlí 1942.
Umsjón: Illugi Jökulsson.
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Hagfræði og myndlist, fagurfræði og fjármál - þetta eru heimar sem sjaldan mætast þannig að úr verði listaverk. En á fimmtudag opnaði í Ásmundarsal einkasýning Geirþrúðar F. Hjörvar sem kallast Vísitala. Þar eru listaverk sem sprottin eru upp úr persónulegri hrifningu Geirþrúðar á tölfræðilegum breytum settum fram á sjónrænan máta sem einföld tölfræðirit. Vísitala sækir innblástur í skýringarmyndir fjármálakerfisins og einnig þá hugmynd að hægt sé að formgera efnahagsstefnur í haldbæra hluti. Við hittum Geirþrúði F. Hjörvar í Ásmundarsal í þættinum.
?Getum við tamið okkur að hugsa minna eins og einstaklingar og meira eins og ein heild? Reynt að sjá hvernig allur lífsvefurinn er samfelldur þráður með uppruna í sama punktinum.? Freyja Þórsdóttir ætlar að kafa ofan í djúpið, alla leið til uppruna lífsins. í lokapistli sínum hér í Víðsjá. Þar fjallar um sköpunarkraftinn sem býr í náttúrunni og okkur sjálfum (og hvernig við tökum hann stundum út úr hringrásinni og beitum honum á hátt sem er á skjön við heilbrigði jarðarinnar og lífsins).
Sumartónleikar í Skálholti hefjast á morgun og standa yfir til 9.júlí. Benedikt Kristjánsson tenórsöngvari er listrænn stjórnandi og framkvæmdastjóri þetta árið, en hann flutti aftur heim til Íslands fyrir tveimur árum, eftir margra ára dvöl erlendis. Benedikt hefur verið önnum kafinn sem sjálfstætt starfandi söngvari síðan hann flutti til Berlínar 2008, og hefur hlotið fjölda viðurkenninga og verðlaun frá því hann útskrifaðist frá Hanns Eisler-tónlistarháskólanum í Berlín 2015. Hann hefur komið fram í mörgum stærstu tónleika- og óperuhúsum heims, er stöðugt á ferðinni og bókaður langt fram í tímann, en hann hefur gefið sér tíma til að stýra hinni rótgrónu tónlistarhátíð Sumartónleika í Skálholti.

Útvarpsfréttir.

Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Kristján og Lóa fengu hugmynd: Að framleiða fyrsta íslenska útvarpsþáttinn sem er alfarið búinn til af gervigreind. Vinnan er komin vel á veg þegar þau fá fréttir af því að amerískur hlaðvarspþáttur sé kominn út, þáttur sem er nákvæmlega eins upp byggður og þeirra þáttur. Þau ákveða að reyna að komast að því hvort hugmyndinni hafi verið stolið eða hvort allir séu að fá sömu hugmyndirnar. Vinna hefst við gerð talgervla með þeirra rödd og í kjölfarið vakna margar spurningar.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Spegillinn 27. júní 2023.
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra telur ekki að stjórnvöld hafi verið of bláeyg með því að treysta stjórnendum Íslandsbanka fyrir sölu á hlut í bankanum. Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra segir að fólk sem ítrekað brjóti lög, blekki vísvitandi og ljúgi, njóti ekki trausts og þurfi að íhuga stöðu sína.
Útleiga hoppukastala er ekki leyfisskyld starfsemi og ekkert formlegt eftirlit er með leigunni. Elva Rakel Jónsdóttir, staðgengill forstjóra umhverfisstofnunnar segir að breyta eigi reglugerðum. Ásta Hlín Magnúsdóttir talaði við hana.
Yfirvöld í Póllandi, Lettlandi og Litáen óttast komu Wagner-málaliðahreyfingarinnar til Belarús. Þau hvetja NATO til þess að efla viðveru sína í austustu bandalagsríkjunum til að gæta öryggis þeirra. Róbert Jóhannsson sagði frá.
Kynntar hafa verið hugmyndir í ríkisstjórn um að fjárfesta í færanlegum einingum til að koma mögulegum móttökubúðum flóttamanna á fót hér á landi. Þetta segir Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra.
Ekkert lát er á hitabylgju sem hefur plagað Texas-búa í meira en tvær vikur. Hiti fór upp í 40 gráður í gær og áfram er spáð steikjandi hita út vikuna. Ólöf Ragnarsdóttir sagði frá.
Þreifingar hafa verið á milli Árvakurs og Sýnar um kaup Árvakurs á Bylgjunni. Vefurinn Vísir.is er líka falur. Valur Grettisson sagði frá.
------------
Trúverðugleiki og traust eru orð sem hafa verið mörgum á tungu síðustu daga þegar rætt er um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka og þann áfellisdóm sem felldur er í skýrslu fjármálaeftirlitsins um söluna og þátt bankans sjálfs. Guðmundur Jónsson prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands hefur fjallað um hagsögu og efnahagskreppur, og telur það skipta miklu hvort fólk treystir bönkum og fjármálakerfi en traust sé margþætt. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við hann
Fresta þarf þúsundum læknisaðgerða ef af fimm daga verkfalli unglækna á sjúkrahúsum á Englandi verður í næsta mánuði. Ásgeir Tómasson sagði frá. Steven Barclay, heilbrigðisráðherra. Robert Laurenson unglæknir.
Norðurlöndin eiga að verða samþættasta svæði heims og unnið er að því hörðum höndum í ráðherranefndum á vegum Norðurlandaráðs að tryggja að svo verði segir Guðmundur Ingi Guðbrandsson. Ævar Örn Jósepsson ræddi við Guðmund Inga um Norðurlandsamstarf, flutning, ferðalög og nám Norðurlandabúa milli landa og stjórnsýsluhindranir sem ryðja þarf úr vegi.
Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Markús Hjaltason. Stjórn útsendingar: Sandra Silfá Ragnarsdóttir.

Þáttur fyrir forvitna krakka og aðra fjölskyldumeðlimi. Sigyn Blöndal segir frá uppfinningum og algengum hlutum í umhverfi okkar á upplýsandi hátt.
Umsjón: Sigyn Blöndal.

Veðurstofa Íslands.

Dánarfregnir.

Hljóðritanir frá sumartónlistarhátíðum víðs vegar að úr Evrópu.
Hljóðritun frá tónleikum La Scintilla barokksveitarinnar sem fram fóru í Óperuhúsinu í Zürich í október.
Á efnisskrá eru verk eftir Pere Oriola, Antonio Valente, Francesco Provenzale, Giuseppe Avitrano, Georg Friedrich Händel, Alessandro Scarlatti ofl.
Einsöngvari: Maria Grazia Schiavo sópran.
Stjórnandi: Riccardo Minasi.
Umsjón: Bergljót Haraldsdóttir.

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Teepa Snow er iðjuþjálfi, aðstandandi og með yfir 30 ára starfsreynslu af starfi fyrir fólk með heilabilun, bæði í beinni þjónustu og fræðistarfi. Hún heldur fyrirlestra víða um heim og er þekkt fyrir nálgun sína og lifandi aðferðir við að miðla þekkingu sinni og í dag heldur Teepa fyrirlestur á Íslandi í dag á vegum samtakanna Verndrum veika og aldraða. Við fengum Áslaugu Dröfn Sigurðardóttur, aðstandanda, og meðlim í samtökunum til að segja okkur meira frá Teepu og viðburðinum í þættinum í dag.
Jazzklúbburinn Múlinn heldur áfram með sumardagskrá sína með spennandi tónleikum og á morgun í Flóa í Hörpu koma fram Ife Tolentino og Óskar Guðjónsson ásamt hljómsveit. Þegar Óskar og Ife, sem er frá Brasilíu, voru búnir að vinna saman í talsvert mörg ár fundust þó nokkuð af skúffulögum í fórum Ife sem hann hafði aldrei gert neitt með. Þarna var kominn efniviður sem Óskar vildi ekki láta fara forgörðum og hafist var handa við upptökur. Nú er platan að koma út og á útgáfutónleikum verður hún leikin ásamt fleiri brasilískum lögum af þeim félögum ásamt frábærri hljómsveit. Við hringdum í Óskar í þættinum.
Við sem búum á höfuðborgarsvæðinu gleymum stundum hvað það er skemmtilegt að fara útí Viðey. Á sumrin er boðið uppá dagskrá um helgar eins og td. núna á laugardaginn 1.júlí. Börnum verða sagðar þjóðsögur í Viðey í skemmtilegri náttúrugöngu og sögukonan er Björk Bjarnadóttir umhverfis- og þjóðfræðingur. Spáð verður í jurtirnar, nöfn þeirra, athugað verður hvort það fylgi þeim einhver þjóðtrú, nytjar þeirra skoðaðar og fjallað um lækningamátt þeirra. Við heyrðum í Björk í þættinum.
Tónlist í þættinum:
Rock Calypso í réttunum / Haukur Morthens (erlent lag /Jón Sigurðsson)
Southern cross / Crosby Stills and Nash (Stephen Stills, Michael Curtis og Richard Curtis)
Nao Tem Misterio / Ife Tolentino (Ife Tolentino)
Austurstræti / L?amour Fou (Þórhallur Sigurðsson)
UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Veðurstofa Íslands.
Umsjónarfólk segir frá tímabili í ævi sinni og leikur tónlist sem endurspeglar tímann eða atburði sem sagt er frá.
Umsjónarfólk segir frá tímabili í ævi sinni og leikur tónlist sem endurspeglar tímann eða atburði sem sagt er frá.
Umsjón: Kristján Sigurjónsson.

Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Kristján og Lóa fengu hugmynd: Að framleiða fyrsta íslenska útvarpsþáttinn sem er alfarið búinn til af gervigreind. Vinnan er komin vel á veg þegar þau fá fréttir af því að amerískur hlaðvarspþáttur sé kominn út, þáttur sem er nákvæmlega eins upp byggður og þeirra þáttur. Þau ákveða að reyna að komast að því hvort hugmyndinni hafi verið stolið eða hvort allir séu að fá sömu hugmyndirnar. Vinna hefst við gerð talgervla með þeirra rödd og í kjölfarið vakna margar spurningar.

Útvarpsfréttir.

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum, snarpri og líflegri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Alþjóðleg reiðhjóla ofurkeppni verður haldin á Vestfjörðum í vikunni og tekur fimm daga. Þar munu um 80 manns víðsvegar að úr heiminum hjóla nærri 1000 km í fjórum leggjum á fimm dögum um 250 km á dag. Halldóra Björk Norðdahl veit allt um málið og var á línunni hjá okkur.
Við ræddum söluna á Íslandsbanka en traust á bankakerfið okkar var einn af stóru umræðupunktunum eftir að sátt bankans við Fjármálaeftirlitið var kynnt í gær þar sem lögbrot voru viðurkennd og vinahygli og spilling opinberaðist almenningi. Við töluðum um traust og tortryggni við Jón Þór Sturluson, hagfræðingur, deildarforseti og fyrrverandi aðstoðarforstjóri Fjármálaeftirlitsins en hann kom jafnframt að skýrslu Ríkisendurskoðunnar um sama mál.
Sævar Helgi Bragason kom með Vísindahornið sitt til okkar eftir átta fréttir að þessu sinni. Hann ætlar að tala um innfall stjarna sem er svipað og gerðist fyrir kafbátinn við Titanic, hvernig við höfum fært möndul jarðar vegna áveitu og nýjan þrívíddar geimsjónauka.
Mikill kostnaður hlýst af þátttöku í yngri landsliðum Íslands sem fellur beint á unga fólkið okkar. Dæmi eru um að hver og einn leikmaður þurfi að afla sér um 600 þúsund króna til að komast með landsliði á stórmót í handbolta. KKÍ heldur úti átta landsliðum og nemur heildarkostnaður af yngri landsliðsstarfi á þessu ári um 80 milljónum og af því þurfa leikmenn og fjölskyldur þeirra að greiða 45 til 50 milljónir í ferða- og fæðiskostnað. Þá greiðir KKÍ um 30-35 milljónir af kostnaðinum. Það vekur óneitanlega upp þá spurningu hvort við viljum að velja eigi í unglingalandslið út frá efnahag. Hannes Sigurbjörn Jónsson, fræmkvæmdarstjóri KKÍ og nýskipaður varaforseti FIBA Europe kom til okkar til að ræða þessi mál og fleiri.
Tónlist
GDRN - Áður en dagur rís (ft. Birnir).
GOSI & SALÓME KATRÍN - Tilfinningar.
FELDBERG - Don't Be A Stranger.
DAÐI FREYR - Whole Again.
LEAVES - Parade.
ELVIS PRESLEY - Suspicious Minds.
STEVIE WONDER - Sir Duke.

Útvarpsfréttir.

07:30

Útvarpsfréttir.

08:30

Útvarpsfréttir.

Morgunverkin er fyrst og fremst tónlistarþáttur þar sem Þórður Helgi spilar bara það besta sem heimurinn hefur alið af sér síðustu 30-40 árin.
Morgunverkin 27. júní 2023
Umsjón: Þórður Helgi Þórðarson
Tónlist frá útsendingarlogg 2023-06-27
QUARASHI - Stun Gun.
Stewart, Billy - Summertime.
Sigur Rós - Gold.
SNOW PATROL - Chasing Cars.
DILJÁ - Crazy.
DAFT PUNK - Get Lucky.
RADIOHEAD - High And Dry.
Í SVÖRTUM FÖTUM - Meðan Ég Sef.
Páll Óskar Hjálmtýsson - Galið Gott.
HARRY STYLES - Watermelon Sugar.
MÖ - Don't leave (Ft. Snakehips).
The Weeknd - Save Your Tears.
RAVEN & RÚN - Handan við hafið.
FLOTT - L'amour.
Hipsumhaps - Góðir hlutir gerast hææægt.
RED HOT CHILI PEPPERS - Breaking the girl.
Laufey - Promise.
Kasabian - Algorithms (bonus track wav).
BEASTIE BOYS - Ch-Check It Out.
HERBERT GUÐMUNDSSON - Ástarbál.
CAROLINE POLACHECK - Smoke.
Empire of the sun - Walking On A Dream.
OJBA RASTA - Hreppstjórinn.
LANGI SELI OG SKUGGARNIR - Hviss Bamm Búmm.
DODGY - Good Enough.
Danny & The Weetos - Sunnukvøld í Mai.
THE POLICE - Every Little Thing She Does Is Magic.
DAÐI FREYR - Thank You.
The Smiths - Please please please let me get what I want.
DANNY WILSON - Mary's Prayer.
SOFI TUKKER - Jacare.
JALEN NGONDA - If You Don't Want My Love.
Slowdive - Kisses.
ALBATROSS - Ég ætla að skemmta mér.
DUA LIPA - Dance The Night.
BOSTON - More Than a Feeling.
Kali, Glorilla, iCandy, Big Boss Vette - Keep Dat (Part 2) (Super Clean).
Ívar Bjarklind - Enginn vex anginn.
KYLIE MINOGUE - Padam Padam.
SOUL 2 SOUL - Back to life (80).
Dina Ögon - Mormor.
NÝDÖNSK - Flugvélar.
YOUSSOU N?DOUR & NENEH CHERRY - 7 Seconds.
Ylja - Á rauðum sandi.
Maggie Rogers - Want Want.

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.

Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir.
Umsjón: Siggi Gunnars & Lovísa Rut
Lovísa Rut sáu um Poppland dagsins. Plata vikunnar er platan Þú sem Ljóslega Hvergi Ert með Ívari Bjarklind. Annars alls konar fjölbreytt tónlist að vanda og þessar helstu tónlistarfréttir á sínum stað.
MUGISON - Stóra stóra ást.
GEORGE HARRISON - My Sweet Lord.
Bombay Bicycle Club - Feel.
DAVID BOWIE - China Girl.
DAÐI FREYR - Whole Again.
METRONOMY - The Look.
MOSES HIGHTOWER, PRINS PÓLÓ - Maðkur í mysunni.
Helgi Björnsson - Besta útgáfan af mér.
Birgir Jakob Hansen - Til baka.
SCISSOR SISTERS - Take your mama.
ELTON JOHN VS PNAU - Sad.
BLUR - The Narcissist.
Ívar Bjarklind - Enginn vex anginn.
STUÐMENN - Vorið.
Tilbury - Madman.
ELÍN HALL & GDRN - Júpíter.
AMERICA - A Horse With No Name.
BENNI HEMM HEMM & URÐUR & KÖTT GRÁ PJÉ - Á óvart.
SOFI TUKKER - Jacare.
Men without Hats - The Safety Dance.
Ásdís - Angel Eyes.
The Weeknd - I Feel It Coming (Ft.. Daft Punk).
ELTON JOHN - Daniel.
Capaldi, Lewis - Someone You Loved.
Thundercat - Dragonball Durag.
Lana Del Rey - Blue Jeans.
GUNS N' ROSES - Welcome to the Jungle.
Vampire Weekend - A Punk.
Una Torfadóttir - Í löngu máli.
TOM PETTY - I Won't Back Down.
NANNA - Disaster master.
KACEY MUSGRAVES - Space Cowboy.
Bubbi Morthens - Fallegur Dagur.
Sigur Rós - Blóðberg.
Árstíðir - Your Shadow.
AHNONI - It Must Change.
LAUFEY - From The Start.
THE BLACK KEYS - Lonely Boy.
GABRIELS - One And Only.
DILJÁ - Crazy.
GDRN - Parísarhjól.

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Viðreisn hefur sent forsætisráðherra erindi og farið fram á að Alþingi verði kallað saman vegna Íslandsbankamálsins. Hanna Katrín Friðriksson þingflokksformaður Viðreisnar var á línunni hjá okkur.
Árni Freyr Stefánsson, skrifstofustjóri samgangna í Innviðaráðuneytinu sagði okkur frá niðurstöðum ferðavenjukönnunar sem framkvæmd var í lok árs 2022. Í könnuninni voru ferðavenjur fólks mældar fyrir alla samgöngumáta og niðurstöður teknar saman fyrir landið allt, einstaka landshluta, sveitarfélög og hverfi.
Hverfur lífsneistinn þegar við áttum okkur á að við erum týnd, stödd á miðpunkti lífsins hvort sem okkur líkar betur eða verr? Þetta er inntak skáldsögunnar Miðpunktur eftir Drífu Viðarsdóttur og Ernu Rós Kristinsdóttir, en þær stöllur, sem búa sitt hvoru megin við Atlantshafið, tóku sig til í heimsfaraldri og sömdu samtímasögu um breytingaskeið karla og kvenna.
Við köfuðum í undirheima Reykjavíkur í dag, nánar tiltekið í undirheima mauranna, þegar við fengum til okkar þá Andreas Guðmundsson, nýútskrifaðan líffræðing, og Arnar Pálsson prófessor á Líf- og umhverfisvísindadeild HÍ. Andreas hefur rannsakað maura um nokkurt skeið og þeir Arnar eru meðal vísindamanna sem rannsaka hvort hugsanlega geti leynst svokallað ofurmaurabú undir Reykjavík. Við ræddum maura, lúsmý o.fl. við þá félaga.
Von er á stórskotaliði úr alþjóðlega fræðaheiminum til landsins, þegar hinn þekkti háskóli Yale stendur fyrir alþjóðlegu námskeiði í Háskóla Íslands sem ætlað er kennurum og nemendum víðs vegar að. Á námskeiðinu verður farið í saumana á svokallaðri Life Worth Living nálgun sem er upprunnin í Yale og nýtur gríðarlegra vinsælda víða um heim. Þau Ólafur Páll Jónsson prófessor í heimspeki við HÍ og María Kristín Gylfadóttir hjá ráðgjafafyrirtækinu North Consulting komu til okkar og sögðu okkur meira.
Grindhvalavaða hefur haldið til við Ólafsvík undanfarið. Nokkrum sinnum hefur hópurinn komið mjög nærri landi og verið nálægt því að stranda. Björgunarsveitarfólk hefur náð að stugga dýrunum frá landi, en Náttúrustofa Vesturlands biðlar til fólks á svæðinu um að hafa samband ef það sér dýrin nálægt landi. Róbert Arnar Stefánsson líffræðingur og forstöðumaður Náttúrustofu Vesturlands var á línunni hjá okkur og fór yfir stöðuna.
Tónlist:
FLOTT - L'amour.
PRINCE - Little Red Corvette.
Una Torfadóttir - Fyrrverandi.
JAIN - Makeba.
ADAM ANT - Goody two shoes (80).
GORILLAZ - Stylo.
STJÓRNIN - Hleypum gleðinni inn.
SIGRID - A Driver Saved My Night.
DUA LIPA - Dance The Night.
JÚNÍUS MEYVANT - Color Decay.

Útvarpsfréttir.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Spegillinn 27. júní 2023.
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra telur ekki að stjórnvöld hafi verið of bláeyg með því að treysta stjórnendum Íslandsbanka fyrir sölu á hlut í bankanum. Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra segir að fólk sem ítrekað brjóti lög, blekki vísvitandi og ljúgi, njóti ekki trausts og þurfi að íhuga stöðu sína.
Útleiga hoppukastala er ekki leyfisskyld starfsemi og ekkert formlegt eftirlit er með leigunni. Elva Rakel Jónsdóttir, staðgengill forstjóra umhverfisstofnunnar segir að breyta eigi reglugerðum. Ásta Hlín Magnúsdóttir talaði við hana.
Yfirvöld í Póllandi, Lettlandi og Litáen óttast komu Wagner-málaliðahreyfingarinnar til Belarús. Þau hvetja NATO til þess að efla viðveru sína í austustu bandalagsríkjunum til að gæta öryggis þeirra. Róbert Jóhannsson sagði frá.
Kynntar hafa verið hugmyndir í ríkisstjórn um að fjárfesta í færanlegum einingum til að koma mögulegum móttökubúðum flóttamanna á fót hér á landi. Þetta segir Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra.
Ekkert lát er á hitabylgju sem hefur plagað Texas-búa í meira en tvær vikur. Hiti fór upp í 40 gráður í gær og áfram er spáð steikjandi hita út vikuna. Ólöf Ragnarsdóttir sagði frá.
Þreifingar hafa verið á milli Árvakurs og Sýnar um kaup Árvakurs á Bylgjunni. Vefurinn Vísir.is er líka falur. Valur Grettisson sagði frá.
------------
Trúverðugleiki og traust eru orð sem hafa verið mörgum á tungu síðustu daga þegar rætt er um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka og þann áfellisdóm sem felldur er í skýrslu fjármálaeftirlitsins um söluna og þátt bankans sjálfs. Guðmundur Jónsson prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands hefur fjallað um hagsögu og efnahagskreppur, og telur það skipta miklu hvort fólk treystir bönkum og fjármálakerfi en traust sé margþætt. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við hann
Fresta þarf þúsundum læknisaðgerða ef af fimm daga verkfalli unglækna á sjúkrahúsum á Englandi verður í næsta mánuði. Ásgeir Tómasson sagði frá. Steven Barclay, heilbrigðisráðherra. Robert Laurenson unglæknir.
Norðurlöndin eiga að verða samþættasta svæði heims og unnið er að því hörðum höndum í ráðherranefndum á vegum Norðurlandaráðs að tryggja að svo verði segir Guðmundur Ingi Guðbrandsson. Ævar Örn Jósepsson ræddi við Guðmund Inga um Norðurlandsamstarf, flutning, ferðalög og nám Norðurlandabúa milli landa og stjórnsýsluhindranir sem ryðja þarf úr vegi.
Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Markús Hjaltason. Stjórn útsendingar: Sandra Silfá Ragnarsdóttir.

Í Undiröldinni heyrir þú nýja íslenska tónlist úr ýmsum áttum sem gæti mögulega slegið í gegn á næstu vikum. Þetta gæti verið popp, raftónlist, rapp, kántrí, þungarokk eða djass - en eina sem er 100% hægt að lofa - er að lögin sem eru spiluð eru ný og íslensk .
Umsjón: Þorsteinn Hreggviðsson.
Lagalistinn
Páll Óskar Hjálmtýsson - Galið Gott.
GDRN - Parísarhjól.
Hipsumhaps - Góðir hlutir gerast hææægt.
Meistari F - May the Horse Be with You (2023 version).
Tappi tíkarrass - Dalalæða.
Bergmál Hljómsv. - Þjóðhátíð.
Pink X-Ray - Plastic surgeon.

Fréttastofa RÚV.

Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmaður: Þorsteinn Hreggviðsson.
Þriðjudagsstuðið á Kvöldvaktinni er löngu orðið landsþekkt og það verður ekki slakað á stuðinu þennan þriðjudaginn þar sem við setjum í spilun ný lög frá Sigur Rós, David Cushner, Slowdive, Aphex Twin, Obongjavar, Spacestation, Daughter og mörgum fleirum.
Lagalistinn
Sigur Rós - Gold.
Christine and The Queens - A day in the Water
Lana Del Rey - Video Games.
DAVID KUSHNER - Daylight.
Moby - Why does my heart feel so bad?.
Karen O - The Moon Song
ARLO PARKS & PHOEBE BRIDGERS - Pegasus.
RADIOHEAD - Jigsaw Falling Into Place.
Aphex Twin - Blackbox Life Recorder 21f.
Slowdive - Kisses.
LAUFEY - From The Start.
INGI ÞÓR & KRÓLI - Þú.
SUFJAN STEVENS - Chicago.
Dina Ögon - Oas.
Kara Jackson - Pawnshop.
SILKIKETTIRNIR - Ekki vera viss.
Daughter hljómsveit - Dandelion
Obongjayar - Just Cool
LCD Soundsystem - Disco Infiltrator.
BLUR - The Narcissist.
Spacestation - Hvítt vín.
Joy Division - Dead Souls.
FOO FIGHTERS - Under You.
Queens of the Stone Age - Paper Machete
Green Day - American Idiot.
Hives, The - Countdown To Shutdown.
Quantic, Triana, Andreya - Run.
DUA LIPA - Dance The Night.
Dixon, McKinley - Beloved! Paradise! Jazz!? (feat. Ms. Jaylin Brown).
Jayda G - Scars.
ROMY - Loveher.
LANGI SELI OG SKUGGARNIR - Hviss Bamm Búmm.
Cramps, The - Goo goo muck.
Aldous Harding, Parish, John - Three hours.
Unknown Mortal Orchestra - Meshuggah (Radio Edit)
Bombay Bicycle Club - My Big Day (bonus track wav).
Phoenix - Winter Solstice (Braxe + Falcon remix).
Madison Beer - Home To Another One
Ian Dury - Hit me with your rhythm stick

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.
Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson
Bjartmar Guðlaugsson verður sjötugur á morgun og af því tilefni heldur hann afmælistónleika núna næsta laugardagskvöld, 18. Júní, með hljómsveitinni sinni Bergrisunum sem er mikið rokkband.
Bjartmar fæddist 13. júní 1952 á Fáskrúðsfirði en þegar hann var 7 ára flutti fjölskyldan til Vestmannaeyja og bjó hann þar til tvítugs en þá flutti hann til Reykjavíkur. Bjartmar hóf feril sinn sem laga- og textahöfundur árið 1977, ætlaði alltaf að verða myndlistarmaður en svo bara gerðist eitt og annað og tónlistin tók yfir, og Bjartmar er miklu þekktari sem tónlistarmaður en myndlistarmaður.
Bjartmar er gestur Rokklands í dag.