06:50
Morgunvaktin
Svört skýrsla um Íslandsbankasöluna

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Björn Þór Sigbjörnsson, Þórunn Elísabet Bogadóttir og Gígja Hólmgeirsdóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Brot Íslandsbanka við söluna á bréfum í sjálfum sér eru ekki tilfallandi heldur bæði alvarleg og kerfislæg, og brotin voru af ýmsum toga, samkvæmt skýrslu um sátt bankans við Fjármálaeftirlit Seðlabanka. Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Heimildarinnar, fór yfir sögu málsins og niðurstöður skýrslunnar.

Arthúr Björgvin Bollason var á línunni frá Þýskalandi. Hann sagði frá kurr í Kristilega demókrataflokknum þýska um formanninn Friedrich Marz, sem hluta flokksmanna þykir ekki æskilegt kanslaraefni. Arthúr Björgvin fjallaði líka um loftbrú Bandamanna til Vestur-Berlínar en 75 ár eru um þessar mundir síðan efnt var til hennar, og Íslandskynningu í München með forsetafrúnni Elizu Reid.

Á fimmta hundrað kvenna hvaðanæva að úr heiminum sótti heimsþing Alþjóðasambands dreifbýliskvenna var haldið í síðasta mánuði í Kuala Lumpur, höfuðborg Malasíu. Alþjóðasambandið beitir sér fyrir hagsmunum og bættri stöðu kvenna í dreifbýli um heim allan. Í sendinefnd Íslands á þinginu var Jenný Jóakimsdóttir, starfsmaður Kvenfélagasambands Íslands, hún sagði frá ferð sinni.

Tónlist:

Hægt en bítandi - Tómas R. Einarsson

Sæll og glaður - Tómas R. Einarsson

Þú ert - Tómas R. Einarson

Watch The Angel Go - Abby Johnson

Umsjón:

Vera Illugadóttir og Þórunn Elísabet Bogadóttir.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 2 klst. 10 mín.
,