09:05
Sumarást
Ást á hestum

Þáttur um gleðina og vonbrigðin í sumarástinni. Flett upp í ástarsögum sem til voru í sveitinni, gluggað í gömul og ný húsráð sem geta verið góð til viðhalds ástinni. Einnig er rætt við fólk sim rifjar sumarástina upp. Hugljúf lög leikin milli atriða sem gætu vel hrært vel upp í minningapottinum.

Umsjón: Elísabet Brekkan.

(Áður á dagskrá sumarið 2008)

Í þættinum sumar ást er það ástin á íslenska hestinum sem er í aðalhlutverki. Catrin Annika Engström starfar hér við feldskurð og hestanudd en upphaflega var það ástin á íslenska hestinum sem dró hana hingað frá Svíþjóð. Minnst verður einnig á ísbirni fyrr á tímum. Sumarást í anda íslensku dýranna.

Umsjón: Elísabet Brekkan.

Var aðgengilegt til 25. september 2023.
Lengd: 40 mín.
e
Endurflutt.
,