06:50
Morgunútvarpið
23. júní - Bara tala, fornleifar, borgaralaun og humar

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum, snarpri og líflegri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Í dag eru innflytjendur á Íslandi 22% af íslenskum vinnumarkaði og því bráðnauðsynlegt að efla íslenskukennslu og stórauka aðgengi fólks að henni. Bara tala er stafrænn íslenskukennari sem byggir á gervigreind og íslenskri máltækni. Jón Gunnar Þórðarson frá Bara tala koma til að segja okkur meira.

Fornleifauppgröftur í Arnarfirði hefur leitt í ljós gríðarmikinn bæ sem lenti undir skriðu á 15 eða 16 öld. Við ætlum að heyra í Margréti Hallmundsdóttur fornleifafræðingi sem hefur leitt uppgröftinn.

Og fréttir vikunnar verða á sínum stað og þær verða heldur betur safaríkar að þessu sinni enda nóg í fréttum. Þóra Arnórsdóttir upplýsingafulltrúi Landsvirkjunnar og Jóhannes Þór Skúlason framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar.

Borgaralaun eru spennandi kostur í hugum margra en kannski allra síst þeirra sem stýra ríkissjóði enda er um afar dýra aðgerð að ræða. Konráð Guðjónsson hagfræðingur hefur skoðað málið og komist að því að borgaralaun gangi einfaldlega ekki upp.

Bæjarhátíðir eru víðs vegar um landið í sumar. Ein þeirra er að fagna þrjátíu ára afmæli í ár en það er Humarhátíðin á Höfn. Við hringjum austur og heyrum í Guðrúnu Stefaníu Vopnfjörð Ingólfsdóttur sem ætlar að fara yfir dagskránna með okkur.

Tónlist

Birnir - Spurningar (ft. Páll Óskar).

HJÁLMAR og MR. SILLA - Er hann birtist.

ABBA - Mamma mia.

Bríet - Fimm.

JEFF WHO? - Congratulations.

ÁSDÍS - Angel Eyes

Brekkubræður - Benjamín.

Var aðgengilegt til 22. júní 2024.
Lengd: 2 klst. 10 mín.
,