Bæn og hugleiðing að morgni dags.
Séra Margrét Lilja Vilmundardóttir flytur.

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Björn Þór Sigbjörnsson, Þórunn Elísabet Bogadóttir og Gígja Hólmgeirsdóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Breski Íhaldsflokkurinn stendur í miklum innanflokksátökum á sama tíma og verðbólga og vextir valda mörgum Bretum miklum áhyggjum. Og fáir telja Brexit hafa reynst vel samkvæmt nýrri könnun. Sigrún Davíðsdóttir var gestur Morgunvaktarinnar og fór yfir stöðuna í stjórnmálum og efnahag á Bretlandi.
Íslensku flugfélögin leggja aukna áherslu á að koma ferðamönnum til landsins, en ekki láta þá stoppa hér stutt á ferð yfir Atlantshafið. Það er því allt útlit fyrir að met verði slegin í fjölda ferðamanna í sumar. Kristján Sigurjónsson, ritstjóri Túrista, fjallaði um þetta í ferðaspjalli.
Það verða haldnir viðburðir í flestum skógum landsins um helgina. Stærsti viðburðurinn er líklega Skógardagurinn mikli í Hallormsstaðaskógi. Þar er Bergrún Arna Þorsteinsdóttir aðstoðarskógarvörður, hún ræddi við Morgunvaktina um skógardaginn og skógrækt.
Tónlist:
Sólbjart vor - Þuríður Sigurðardóttir
More than you know - Silva Þórðardóttir og Steingrímur Teague
Visa vid midsommartid - Anita Lindblom
Styttur bæjarins - Spilverk þjóðanna
Ekkert þras - Egill Ólafsson
Umsjón:
Vera Illugadóttir og Þórunn Elísabet Bogadóttir.

Útvarpsfréttir.

07:30

Útvarpsfréttir.
Umsjón: Róbert Jóhannsson
Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon

08:30

Útvarpsfréttir.
Pétur Grétarsson fléttar saman þokkalegum lögum úr ýmsum áttum sem mynda helgarfléttuna.
Lagalisti:
Evertything mirrores everything - Ralph Alessi - 2023
L'isola d'Alcina, Act III : Mi restano le lagrime - G Fr Händel - Jeanine DeBique - Mirrors 2021
Af lífi (líkt og var) - Egill Ólafsson - Tu duende / El duende 2023
Ill never be the same - F Signorelli, M Malneck, G Kahn - Louis Armstrong meets Oscar Peterson - 1959
Nature Morte for mixed choir (2008) : II. The Butterfly - Galina Grigorjeve - Eistneski kammerkórinn - Nature Morte -2016
Same Old Man - Joanne Newsome - Divers -2015
Reflections of my life - The Marmalade - 1969
Akwé - Lionel Loueke / Gretchen Parlato - Lean in - 2023
Black crowned crane- Vieux Farka Touré - A guide to the birdsong of Western Africa - 2022

Morgunleikfimi með Halldóru Björnsdóttur.

Útvarpsfréttir.

Veðurstofa Íslands.

Umsjón: Svanhildur Jakobsdóttir.

Útvarpsfréttir.

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Föstudagsgesturinn var á sínum stað í þættinum í dag. Að þessu sinni kom til okkar Birgir Örn Steinarsson, betur þekktur sem Biggi í Maus. Biggi hefur komið víða við á sínum ferli. Hann varð þekktur með hljómsveitinni Maus, og hefur einnig starfað í fjölmiðlum, skrifað kvikmyndahandrit og er lærður sálfræðingur. Biggi starfar í dag sem sálfræðingur hjá Sálfræðiþjónustu Norðurlands auk þess sem hann er farinn að gefa út tónlist undir listamannsnafninu Biggi Maus. Við stikluðum á stóru í gegnum lífið og hans fjölbreytta feril í þættinum í dag.
Í matarspjallinu í dag fengum við Birgi föstudagsgest til að sitja áfram með okkur og segja okkur frá sínum uppáhaldsmat og hvað honum þykir skemmtilegast að elda.
Tónlist í þættinum:
Ekki vera að eyða mínum tíma / Biggi Maus (Birgir Örn Steinarsson og Þorgils Gíslason)
Yfir hindranir / Drengurinn fengurinn (Egill Logi Jónasson)
River / Ibeyi (Eric Collins & Lisa Kainde Diaz)
UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GÍGJA HÓLMGEIRSDÓTTIR

Dánarfregnir.

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.

Fólk úr ýmsum áttum flytur stuttar hugleiðingar sem tengjast sama umfjöllunarefni.
Umsjón hefur Sólrún Ólína Sigurðardóttir, hjúkrunarfræðingur í kvenheilsuteymi Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins

Íslenskt lag eða tónverk.

Útvarpsfréttir.
Margt virðist hafa farið úrskeiðis í Íslandsbanka þegar tuttugu og tveggja og hálfs prósents hlutur ríkisins í bankanum var seldur. Bankinn hefur fallist á að greiða tæplega tólf hundruð milljóna króna sekt og ljúka málinu með sátt. Bankastjórinn segir þetta vera áfellisdóm yfir verklaginu en ætlar ekki að láta af störfum.
Þingmenn Sjálfstæðisflokks gagnrýndu matvælaráðherra harðlega á fundi atvinnuveganefndar Alþingis í morgun. Þeir efast um að ákvörðun ráðherra um að banna hvalveiðar tímabundið sé í samræmi við lög.
Enn bætist í hóp sérfræðinga sem efast um öryggi kafbátsins Titans sem fórst í vikunni. Einn stofnenda OceanGate sem átti kafbátinn vísar þessum ásökunum á bug.
Fulltrúi íbúa í íbúaráði Laugardals í Reykjavík segir hegðun starfsmanna á fundi ráðsins í síðustu viku hafa haft áhrif á samstarf íbúa í Laugardalnum og borgaryfirvalda. Hún segir að það taki tíma að endurvinna traustið.
Menningar- og jafnréttismálaráðherra Noregs sagði af sér embætti í morgun. Komið hefur á daginn að ráðherrann skipaði vini sína og fólk tengt sér í stjórnunarstöður.
Næstu tvo mánuði verður unnið að miklum grjótvörnum við Kárahnjúkastíflu og eins konar vélköngulær verða notaðar til að koma fyrir öflugum girðingum.
Framkvæmdin kostar um 300 milljónir króna.

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Daglegur fréttaskýringaþáttur þar sem stór og lítil fréttamál eru matreidd á einfaldan hátt.
Kafbáturinn Titan er kominn í leitirnar en hans hafði verið saknað frá því á sunnudaginn. Titan hvarf sporlaust á leið sinni niður að flaki Titanic um 700 kílómetra undan ströndum Nýfundnalands í Kanada en þar hefur Titanic legið frá því að skipið sökk 15. apríl árið 1912. Stærsta og ríkulegasta skip heims á þeim tíma átti að vera ósökkvanlegt, en sigldi á ísjaka og sökk í sinni fyrstu ferð.
Nákvæm staðsetning flaksins var ráðgáta allt til ársins 1985 þegar haffræðingurinn Robert Ballard uppgötvaði það á fjögurra kílómetra dýpi í Norður-Atlantshafi. Síðan þá hafa ótal ferðir verið farnar að flakinu í rannsóknarskyni, til að endurheimta muni og í ævintýratilgangi eins og sú sem nú fór úrskeiðis. Titan fannst nefnilega ekki heill á húfi og eru allir taldir af.
Snorri Rafn Hallsson kafar í málið í þætti dagsins.
Umsjónarfólk segir frá tímabili í ævi sinni og leikur tónlist sem endurspeglar tímann eða atburði sem sagt er frá.
Umsjónarfólk segir frá tímabili í ævi sinni og leikur tónlist sem endurspeglar tímann eða atburði sem sagt er frá.
Umsjón: Þuríður Sigurðardóttir.

Útvarpsfréttir.
Ingveldur G. Ólafsdóttir fjallar um villtar íslenskar jurtir og hvernig hægt er að nýta þær í mat og drykk og margvíslegan annan máta. Hún ræðir við kunnáttufólk og leitar víða fanga.
(Frá 2004)
Farið í heimsókn til Hildar Hákonardóttur, myndlistarkonu og lífskúnstner. Tíndar jurtir í mat, rætt um þær og þær notaðar í matargerð. Hádegisverður hjá Hildi.
Umsjón: Ingveldur G. Ólafsdóttir.

Útvarpsfréttir.
Fyrir rúmum sextíu árum kom nýtt lyf á markað sem átti eftir að hafa ómæld áhrif á líf fólks og jafnvel heilu samfélögin. Þetta lyf hefur allar götur síðan einfaldlega verið kallað pillan. Í fjórum þáttum verður fjallað um þessa pillu allra pilla frá ólíkum sjónarhornum og saga hennar rakin frá miðri síðustu öld til dagsins í dag.
Umsjón: Birna Stefánsdóttir.

Útvarpsfréttir.
Gestir úr ólíkum kimum tónlistarlífsins mynda saman æ stærri lagaflækju. Tengingar milli laganna geta verið augljósar eða langsóttar, tónfræðilegar eða persónulegar, einfaldar eða flóknar. Yfir sumarið myndast smám saman fjölbreyttur og óvæntur spilunarlisti.

Umsjón: Halla Harðardóttir.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Spegillinn 23. Júní 2023
Umsjónarmaður: Ásgeir Tómasson
Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon
Stjórn fréttaútsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir
Ágúst Bjarni Garðarsson, þingmaður Framsóknarflokks, segir Íslandsbanka viðurkenna lögbrot með samningi um sáttagreiðslu við fjármálaeftirlitið. Arndís Anna. K. Gunnarsdóttir, varamaður Pírata í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis, segir að velta verði við hverjum steini vegna bankasölunnar. Arnhildur Hálfdánardóttir talaði við þau og Benedikt Sigurðsson ræddi við Birnu Einarsdóttur bankastjóra. Stjórn bankans kveðst bera fullt traust til bankastjóra.
Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra segir skýra og ótvíræða lagaheimild vera fyrir því að takmarka hvalveiðar við ákveðinn tíma. Stefán Vagn Stefánsson, formaður atvinnuveganefndar og þingmaður Framsóknar, telur mikilvægt að nefndin verði upplýst um stöðu mála. Rebekka Líf Ingadóttir tók saman.
Að minnsta kosti 350 Pakistanar voru í fiskibátnum sem sökk úti fyrir Grikklandi í síðustu viku. Hugsanlegt er talið að allt að 750 manns hafi verið í bátnum.
Tvær listakonur fengu 30 daga skilorðsbundinn fangelsisdóm fyrir að nota verk annars listamanns í sköpun sína. Þær voru sakfelldar fyrir hylmingu en sýknaðar af ákæru um brot gegn höfundarrétti. Brynjólfur Þór Guðmundsson tók saman.
Starfshópur matvælaráðherra um strokulaxa vill stofna sérstaka rannsóknarnefnd og veita Matvælastofnun heimild til að telja laxa upp úr kvíum, vakni grunur um strok. Arnhildur Hálfdánardóttir sagði frá og talaði við Jón Kaldal, talsmann Íslenska náttúruverndarsjóðsins, og Sigurgeir Bárðarson, lögfræðing hjá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi.
Dómar yfir sakborningum í saltdreifaramálinu svonefnda voru mildaðir í Landsrétti í dag. Þeir sem þyngsta refsingu hlut fá tíu ára fangelsisdóm í stað tólf.
Í uppgjöri Loftslagsráðs, sem birt var á dögunum, segir að við blasi, að aðgerðir stjórnvalda í loftslagsmálum hafi ekki skilað tilætluðum árangri, markviss loftslagsstefna með tímasettum og mælanlegum markmiðum liggi enn ekki fyrir og ljóst að Ísland muni ekki ná að uppfylla skuldbindingar sínar og fyrirheit um samdrátt á losun gróðurhúsalofttegunda fyrir 2030, að óbreyttu. Ævar Örn Jósepsson ræddi málið við Halldór Þorgeirsson, formann Loftslagsráðs.

Brot úr Morgunvaktinni.
Vera Illugadóttir ræðir við Veturliða Óskarsson, prófessor í íslensku við Uppsalaháskóla, um flókna sögu orðanna að fokka og fokk.

Veðurstofa Íslands.

Dánarfregnir.
Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Leikin eru nýleg íslensk lög sem fjórar tónlistarkonur flytja ásamt aðstoðarfólki sínu. Marína Ósk Þórólfsdóttir flytur lögin Léttfætt og The moon and the Sky, sem eru bæði eftir hana. Rebekka Blöndal flytur lögin Sólarsamban og Lítið ljóð af fyrstu sólóplötu sinni. Marína Ósk og Rebekka syngja saman lagið Góða kík't í kaffi. Kristjana Stefánsdóttir flytur tvö lög, annarsvegar Slyddublús og hinsvegar Árstíðirnar þrjár. Ragnheiður Gröndal syngur tvö lög sem Jóhann Helgason samdi við ljóð Þórarins Eldjárn og þau heita Naflafugl og Sjúðagoggurnar.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Ingveldur G. Ólafsdóttir fjallar um villtar íslenskar jurtir og hvernig hægt er að nýta þær í mat og drykk og margvíslegan annan máta. Hún ræðir við kunnáttufólk og leitar víða fanga.
(Frá 2004)
Farið í heimsókn til Hildar Hákonardóttur, myndlistarkonu og lífskúnstner. Tíndar jurtir í mat, rætt um þær og þær notaðar í matargerð. Hádegisverður hjá Hildi.
Umsjón: Ingveldur G. Ólafsdóttir.

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Föstudagsgesturinn var á sínum stað í þættinum í dag. Að þessu sinni kom til okkar Birgir Örn Steinarsson, betur þekktur sem Biggi í Maus. Biggi hefur komið víða við á sínum ferli. Hann varð þekktur með hljómsveitinni Maus, og hefur einnig starfað í fjölmiðlum, skrifað kvikmyndahandrit og er lærður sálfræðingur. Biggi starfar í dag sem sálfræðingur hjá Sálfræðiþjónustu Norðurlands auk þess sem hann er farinn að gefa út tónlist undir listamannsnafninu Biggi Maus. Við stikluðum á stóru í gegnum lífið og hans fjölbreytta feril í þættinum í dag.
Í matarspjallinu í dag fengum við Birgi föstudagsgest til að sitja áfram með okkur og segja okkur frá sínum uppáhaldsmat og hvað honum þykir skemmtilegast að elda.
Tónlist í þættinum:
Ekki vera að eyða mínum tíma / Biggi Maus (Birgir Örn Steinarsson og Þorgils Gíslason)
Yfir hindranir / Drengurinn fengurinn (Egill Logi Jónasson)
River / Ibeyi (Eric Collins & Lisa Kainde Diaz)
UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GÍGJA HÓLMGEIRSDÓTTIR

Allir hafa sögu að segja. Í þættinum Íslendingasögur segir fólkið í landinu sögur; sögur af atburðum sem það hefur upplifað, lífsreynslusögur, gamansögur, alla vega sögur.
Fólkið í landinu segir sögur af lífi sínu, lífsreynslusögur, gamansögur, sögur af viðburðum og atvikum.
Birna Þórðardóttir rifjar upp mótmæli gegn hersetu á Íslandi á Miðnesheiði og fleiri stöðum í Reykjavík. Hún segir frá handtökum, málaferlum, ofbeldi sem hún varð fyrir af hendi lögreglunnar og fleira.
Umsjón: Lísa Pálsdóttir.

Veðurstofa Íslands.
Umsjónarfólk segir frá tímabili í ævi sinni og leikur tónlist sem endurspeglar tímann eða atburði sem sagt er frá.
Umsjónarfólk segir frá tímabili í ævi sinni og leikur tónlist sem endurspeglar tímann eða atburði sem sagt er frá.
Umsjón: Þuríður Sigurðardóttir.
Gestir úr ólíkum kimum tónlistarlífsins mynda saman æ stærri lagaflækju. Tengingar milli laganna geta verið augljósar eða langsóttar, tónfræðilegar eða persónulegar, einfaldar eða flóknar. Yfir sumarið myndast smám saman fjölbreyttur og óvæntur spilunarlisti.
Gestir úr ólíkum kimum tónlistarlífsins mynda saman æ stærri lagaflækju. Tengingar milli laganna geta verið augljósar eða langsóttar, tónfræðilegar eða persónulegar, einfaldar eða flóknar. Yfir sumarið myndast smám saman fjölbreyttur og óvæntur spilunarlisti.
Umsjón: Halla Harðardóttir.

Útvarpsfréttir.

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum, snarpri og líflegri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Í dag eru innflytjendur á Íslandi 22% af íslenskum vinnumarkaði og því bráðnauðsynlegt að efla íslenskukennslu og stórauka aðgengi fólks að henni. Bara tala er stafrænn íslenskukennari sem byggir á gervigreind og íslenskri máltækni. Jón Gunnar Þórðarson frá Bara tala koma til að segja okkur meira.
Fornleifauppgröftur í Arnarfirði hefur leitt í ljós gríðarmikinn bæ sem lenti undir skriðu á 15 eða 16 öld. Við ætlum að heyra í Margréti Hallmundsdóttur fornleifafræðingi sem hefur leitt uppgröftinn.
Og fréttir vikunnar verða á sínum stað og þær verða heldur betur safaríkar að þessu sinni enda nóg í fréttum. Þóra Arnórsdóttir upplýsingafulltrúi Landsvirkjunnar og Jóhannes Þór Skúlason framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar.
Borgaralaun eru spennandi kostur í hugum margra en kannski allra síst þeirra sem stýra ríkissjóði enda er um afar dýra aðgerð að ræða. Konráð Guðjónsson hagfræðingur hefur skoðað málið og komist að því að borgaralaun gangi einfaldlega ekki upp.
Bæjarhátíðir eru víðs vegar um landið í sumar. Ein þeirra er að fagna þrjátíu ára afmæli í ár en það er Humarhátíðin á Höfn. Við hringjum austur og heyrum í Guðrúnu Stefaníu Vopnfjörð Ingólfsdóttur sem ætlar að fara yfir dagskránna með okkur.
Tónlist
Birnir - Spurningar (ft. Páll Óskar).
HJÁLMAR og MR. SILLA - Er hann birtist.
ABBA - Mamma mia.
Bríet - Fimm.
JEFF WHO? - Congratulations.
ÁSDÍS - Angel Eyes
Brekkubræður - Benjamín.

Útvarpsfréttir.

07:30

Útvarpsfréttir.
Umsjón: Róbert Jóhannsson
Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon

08:30

Útvarpsfréttir.

Morgunverkin er fyrst og fremst tónlistarþáttur þar sem Þórður Helgi spilar bara það besta sem heimurinn hefur alið af sér síðustu 30-40 árin.
Morgunverkin 23. júní 2023
Umsjón: Þórður Helgi Þórðarson
Tónlist frá útsendingarlogg 2023-06-23
Björk Guðmundsdóttir - Big Time Sensuality.
THE CURE - Friday I?m In Love.
SOFI TUKKER - Jacare.
DEPECHE MODE - Just Can't Get Enough (Live) (80).
MUGISON - Stóra stóra ást.
BUBBI MORTHENS OG DAS KAPITAL - Blindsker.
EMILÍANA TORRINI - Big Jumps.
BRYAN ADAMS - Run To You.
INGI ÞÓR & KRÓLI - Þú.
JUNIOR SENIOR - Move Your Feet.
RYAN PARIS - Dolce Vita.
ELÍN HALL & GDRN - Júpíter.
STEPHAN HILMARZ og MILLJÓNAMÆRINGARNIR - Kaffi Til Brasilíu.
JULIETTE LEWIS - Hardly wait.
Upplyfting - Kveðjustund.
HERBERT GUÐMUNDSSON - Ástarbál.
Sigur Rós - Skel.
BARAFLOKKURINN - I don't like your style.
U2 - Sunday Bloody Sunday.
SÍÐAN SKEIN SÓL - Klikkað.
MASSIVE ATTACK - Karmacoma.
CAROLINE POLACHECK - Smoke.
DAVID BOWIE - Let's Dance (80).
FLOTT - L'amour.
Pax Vobis - Coming my way.
DURAN DURAN - Rio [US Edit].
QUEEN - A kind of magic.
Eurythmics - When Tomorrow Comes.
PIXIES - Where Is My Mind?.
TINA TURNER - What's love got to do with it.
NIK KERSHAW - I Won't Let The Sun Go Down On Me.
ULTRAVOX - Dancing With Tears In My Eyes (80).
ALPHAVILLE - Forever Young.
DEPECHE MODE - Shake The Disease.
PROPAGANDA - Duel.
GEORGE MICHAEL - Careless Whisper.
RIKSHAW - Great wall of China.
DIRE STRAITS - Money for Nothing (album version).

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.
Margt virðist hafa farið úrskeiðis í Íslandsbanka þegar tuttugu og tveggja og hálfs prósents hlutur ríkisins í bankanum var seldur. Bankinn hefur fallist á að greiða tæplega tólf hundruð milljóna króna sekt og ljúka málinu með sátt. Bankastjórinn segir þetta vera áfellisdóm yfir verklaginu en ætlar ekki að láta af störfum.
Þingmenn Sjálfstæðisflokks gagnrýndu matvælaráðherra harðlega á fundi atvinnuveganefndar Alþingis í morgun. Þeir efast um að ákvörðun ráðherra um að banna hvalveiðar tímabundið sé í samræmi við lög.
Enn bætist í hóp sérfræðinga sem efast um öryggi kafbátsins Titans sem fórst í vikunni. Einn stofnenda OceanGate sem átti kafbátinn vísar þessum ásökunum á bug.
Fulltrúi íbúa í íbúaráði Laugardals í Reykjavík segir hegðun starfsmanna á fundi ráðsins í síðustu viku hafa haft áhrif á samstarf íbúa í Laugardalnum og borgaryfirvalda. Hún segir að það taki tíma að endurvinna traustið.
Menningar- og jafnréttismálaráðherra Noregs sagði af sér embætti í morgun. Komið hefur á daginn að ráðherrann skipaði vini sína og fólk tengt sér í stjórnunarstöður.
Næstu tvo mánuði verður unnið að miklum grjótvörnum við Kárahnjúkastíflu og eins konar vélköngulær verða notaðar til að koma fyrir öflugum girðingum.
Framkvæmdin kostar um 300 milljónir króna.

Friðrik Ómar og Siggi Gunnars eru húsverðir í Félagsheimili allra landsmanna á Rás 2 eftir hádegisfréttir, alla laugardaga. Frábær tónlist, góðir gestir, uppákomur og hlustendur um land allt. Það er ekkert aldurstakmark og öll eru velkomin í Félagsheimilið á Rás 2.
Húsverðir Félagsheimilisins voru á sínum stað, reyndar sitt í hvoru lagi. Friðrik Ómar sat í Efstaleiti en Siggi skrapp austur á Höfn í Hornafirði. Aðalgestur þáttarins var Páll Óskar Hjálmtýsson.
Spiluð lög:
12.40 til 14.00 Upphaf þáttar
Bubbi Morthens - Ísbjarnarblús.
THE ARCHIES - Sugar, sugar.
GUSTAPH - Because Of You (Belgía Eurovision 2023).
KARLAKÓRINN JÖKULL- Boðið í dans.
THE MAVERICKS - Dance The Night Away.
ABBA - Lay All Your Love On Me.
MUGISON - Kletturinn.
THE TEMPTATIONS - Get Ready.
GUÐRÚN GUNNARS OG FRIÐRIK ÓMAR - Ég Skemmti Mér.
DAÐI FREYR - Whole Again.
HELGI BJÖRNS & REIÐMENN VINDANNA - Ríðum, ríðum, ríðum.
PHIL COLLINS & PHILIP BAILY - Easy Lover.
14.00 Tímaflakk og aðalgestur
EIRÍKUR HAUKSSON- Mitt á milli Moskvu og Washington.
PAUL SIMON - You Can Call Me Al.
SÁLIN HANS JÓNS MÍNS - Á Tjá Og Tundri.
15.00 Dansleikur
GRAFÍK - Presley.
HLH & SIGRÍÐUR BEINTEINSDÓTTIR - Vertu Ekki Að Plata Mig.
NÝDÖNSK - Frelsið.
STJÓRNIN - Ég fæ aldrei nóg af þér.
WHAM - The edge of heaven.
ZZ TOP - La Grange.
STUÐMENN - Ástardúett.
BEYONCE - Love On Top.
PRINCE - Raspberry Beret.
Bee Gees - You Should Be Dancing.
Umsjón: Sigurður Þorri Gunnarsson og Friðrik Ómar Hjörleifsson.

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Í október fengum við fréttir af því að hluti úr beinagrind risaeðlu gæti verið væntanlegur til Reykjavíkur. Borgarráð hafði þá samþykkt að stofnaður yrði starfshópur til þess að meta kostnaðinn við gjöflna og þar með talið flutning á beinagrindinni, uppsetningu hennar og varðveislu og rekstrarkostnaðar. Einnig átti að kanna áhuga safna og sýningahaldara á að hýsa beinagrindina og annast kostnað samkvæmt sérstökum samningi. Jón Halldór Jónasson sem situr í stýrihópi Reykjavíkurborgar kemur til okkar á eftir til að segja okkur forsögu málsins og við spyrjum hann hvar málið standi núna.
Í sumar munum við vera í stöðugu sambandi við Jóhann Alfreð og Steineyju Skúladóttur sem eru umsjónafólk Hljóðvegs 1. Þau munu ferðast vítt og breytt um landið og að þessu sinni senda þau okkur póstkort í hljóðformi frá Vík í Mýrdal.
Anette Trettebergstuen, menningar- og jafnréttismálaráðherra Noregs, sagði af sér í dag vegna vanhæfis. Það hefur komið á daginn að hún hafi skipað vini sína og fólk tengt sér í stjórnunarstöður frá því að hún tók sæti í ríkisstjórn. Við hringjum til Noregs á eftir en Atli Steinn Guðmundsson blaðamaður ætlar að fara í saumana á þessu máli með okkur.
Við rákum augun í það að á Jónsmessu mun Borgarsögusafn bjóða upp á fróðlega náttúrugöngu í Elliðarárdal. Björk Bjarnadóttir umhverfis- og þjóðfræðingur leiðir gönguna.
Gengið verður frá Árbæjarsafni og niður í Elliðaárdal, staldrað við á völdum stöðum, sagðar sögur, fjallað um íslenska þjóðtrú og hinar öflugu jurtir sem vaxa á svæðinu. Björk ætlar að koma til okkar á eftir en þegar við heyrðum í henni nú fyrir þátt þá var hún á leið heim úr Viðey með hressum krökkum sem eru að taka þátt í verkefniu Viðey Friðey, við ætlum að fá hana til að fræða okkur um Jónsmessu, ræða um gönguna og verkefnið Viðey Friðey.
Og við segjum ekki skilið við Jónsmessu og Elliðaárdalinn því í Höfuðstöðinni sem er lista- og menningarhús í gömlu kartöflugeymslunum í Elliðaárdalnum verður ýmislegt um að vera á Jónsmessu og eitt af því verður hárkransagerð. Lilja Hrönn Baldursdóttir, annar eigandi og stofnandi Höfuðstöðvarinnar kemur á eftir og segir okkur nánar frá þessari leyndu perlu Höfuðstöðinni og hárkransagerðinni.
Flak af flugvél, sem legið hefur á Sauðanesflugvelli á Langanesi frá því vélinni var brotlent þar árið 1969, hefur verið selt og flutt í burtu. En hvernig gekk að flytja flakið og hvers vegna var það til sölu ? Á línunni hjá okkur er Ágúst Marínó Ágústsson bóndi á Sauðanesi sem er í þessum töluðu orðum að týna æðadún.

Útvarpsfréttir.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Spegillinn 23. Júní 2023
Umsjónarmaður: Ásgeir Tómasson
Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon
Stjórn fréttaútsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir
Ágúst Bjarni Garðarsson, þingmaður Framsóknarflokks, segir Íslandsbanka viðurkenna lögbrot með samningi um sáttagreiðslu við fjármálaeftirlitið. Arndís Anna. K. Gunnarsdóttir, varamaður Pírata í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis, segir að velta verði við hverjum steini vegna bankasölunnar. Arnhildur Hálfdánardóttir talaði við þau og Benedikt Sigurðsson ræddi við Birnu Einarsdóttur bankastjóra. Stjórn bankans kveðst bera fullt traust til bankastjóra.
Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra segir skýra og ótvíræða lagaheimild vera fyrir því að takmarka hvalveiðar við ákveðinn tíma. Stefán Vagn Stefánsson, formaður atvinnuveganefndar og þingmaður Framsóknar, telur mikilvægt að nefndin verði upplýst um stöðu mála. Rebekka Líf Ingadóttir tók saman.
Að minnsta kosti 350 Pakistanar voru í fiskibátnum sem sökk úti fyrir Grikklandi í síðustu viku. Hugsanlegt er talið að allt að 750 manns hafi verið í bátnum.
Tvær listakonur fengu 30 daga skilorðsbundinn fangelsisdóm fyrir að nota verk annars listamanns í sköpun sína. Þær voru sakfelldar fyrir hylmingu en sýknaðar af ákæru um brot gegn höfundarrétti. Brynjólfur Þór Guðmundsson tók saman.
Starfshópur matvælaráðherra um strokulaxa vill stofna sérstaka rannsóknarnefnd og veita Matvælastofnun heimild til að telja laxa upp úr kvíum, vakni grunur um strok. Arnhildur Hálfdánardóttir sagði frá og talaði við Jón Kaldal, talsmann Íslenska náttúruverndarsjóðsins, og Sigurgeir Bárðarson, lögfræðing hjá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi.
Dómar yfir sakborningum í saltdreifaramálinu svonefnda voru mildaðir í Landsrétti í dag. Þeir sem þyngsta refsingu hlut fá tíu ára fangelsisdóm í stað tólf.
Í uppgjöri Loftslagsráðs, sem birt var á dögunum, segir að við blasi, að aðgerðir stjórnvalda í loftslagsmálum hafi ekki skilað tilætluðum árangri, markviss loftslagsstefna með tímasettum og mælanlegum markmiðum liggi enn ekki fyrir og ljóst að Ísland muni ekki ná að uppfylla skuldbindingar sínar og fyrirheit um samdrátt á losun gróðurhúsalofttegunda fyrir 2030, að óbreyttu. Ævar Örn Jósepsson ræddi málið við Halldór Þorgeirsson, formann Loftslagsráðs.

Létt tónlist af ýmsu tagi.
Umsjón: Rósa Birgitta Ísfeld.

Fréttastofa RÚV.

Lykilorð þáttarins Fuzz er Rokk! Það er Fuzztudagskvöld og þá er Rokk á Rás 2. Hér verður allskonar rokk; nýtt rokk, kántrí-rokk, 70´s, 60´s, 80´s 50´s, 90´s rokk og þungarokk. Rokkið fær sjálft að tala og syngja og maður á að hlusta hátt.
Doddi litli skoðar og leikur lög af gömlum vinsældarlistum Rásar 2 frá fyrstu árum Rásarinnar.
Playlistar þess tíma, safnplötur, fá stóran sess í hverjum þætti, Jónatan Garðarsson faðir íslensku safnplötunnar tekur fyrir 1-2 safnplötur í hverjum þætti.
Í seinni hluta þáttarins verður kafað aðeins dýpra og gleymdari perlur áttunnar fara undir nálina.
Útvarpsþátturinn áttan, gamalt undir nálinni.
23. júní 2023
Umsjón: Þórður Helgi Þórðarson
Playlistar þess tíma, safnplötur, fá stóran sess í hverjum þætti, Jónatan Garðarsson faðir íslensku safnplötunnar tekur fyrir 1-2 safnplötur í hverjum þætti, í þessum þætti skoðaði hann þær safnplötur sem seldust hvað mest í áttunni.
Í seinni hluta þáttarins verður kafað aðeins dýpra og gleymdari perlur áttunnar fara undir nálina.
Töfrar Áttunnar, gamalt undir nálinni.