06:50
Morgunvaktin
Brexit mælist ekki vel fyrir

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Björn Þór Sigbjörnsson, Þórunn Elísabet Bogadóttir og Gígja Hólmgeirsdóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Breski Íhaldsflokkurinn stendur í miklum innanflokksátökum á sama tíma og verðbólga og vextir valda mörgum Bretum miklum áhyggjum. Og fáir telja Brexit hafa reynst vel samkvæmt nýrri könnun. Sigrún Davíðsdóttir var gestur Morgunvaktarinnar og fór yfir stöðuna í stjórnmálum og efnahag á Bretlandi.

Íslensku flugfélögin leggja aukna áherslu á að koma ferðamönnum til landsins, en ekki láta þá stoppa hér stutt á ferð yfir Atlantshafið. Það er því allt útlit fyrir að met verði slegin í fjölda ferðamanna í sumar. Kristján Sigurjónsson, ritstjóri Túrista, fjallaði um þetta í ferðaspjalli.

Það verða haldnir viðburðir í flestum skógum landsins um helgina. Stærsti viðburðurinn er líklega Skógardagurinn mikli í Hallormsstaðaskógi. Þar er Bergrún Arna Þorsteinsdóttir aðstoðarskógarvörður, hún ræddi við Morgunvaktina um skógardaginn og skógrækt.

Tónlist:

Sólbjart vor - Þuríður Sigurðardóttir

More than you know - Silva Þórðardóttir og Steingrímur Teague

Visa vid midsommartid - Anita Lindblom

Styttur bæjarins - Spilverk þjóðanna

Ekkert þras - Egill Ólafsson

Umsjón:

Vera Illugadóttir og Þórunn Elísabet Bogadóttir.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 2 klst. 10 mín.
,