20:30
Mannlegi þátturinn
Birgir Örn Steinarsson föstudags- og matarspjallsgestur

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: [email protected]

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Föstudagsgesturinn var á sínum stað í þættinum í dag. Að þessu sinni kom til okkar Birgir Örn Steinarsson, betur þekktur sem Biggi í Maus. Biggi hefur komið víða við á sínum ferli. Hann varð þekktur með hljómsveitinni Maus, og hefur einnig starfað í fjölmiðlum, skrifað kvikmyndahandrit og er lærður sálfræðingur. Biggi starfar í dag sem sálfræðingur hjá Sálfræðiþjónustu Norðurlands auk þess sem hann er farinn að gefa út tónlist undir listamannsnafninu Biggi Maus. Við stikluðum á stóru í gegnum lífið og hans fjölbreytta feril í þættinum í dag.

Í matarspjallinu í dag fengum við Birgi föstudagsgest til að sitja áfram með okkur og segja okkur frá sínum uppáhaldsmat og hvað honum þykir skemmtilegast að elda.

Tónlist í þættinum:

Ekki vera að eyða mínum tíma / Biggi Maus (Birgir Örn Steinarsson og Þorgils Gíslason)

Yfir hindranir / Drengurinn fengurinn (Egill Logi Jónasson)

River / Ibeyi (Eric Collins & Lisa Kainde Diaz)

UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GÍGJA HÓLMGEIRSDÓTTIR

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 50 mín.
e
Endurflutt.
,