16:05
Síðdegisútvarpið
2.nóvember

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Skólastjórinn í Lundarskóla á Akureyri er í sóttkví að skipuleggja breytt skólahald vegna hertra sóttvarnarregla. Hann er einn af 18 starfsmönnum og 43 nemendum sem þurfa að vera í sóttkví fram á föstudag eftir að kennari við skólann greindist. Við heyrum í skólastjóranum, Elíasi Gunnari Þorbjörnssyni.

Útsendari RÚV í Bandaríkjunum, Ingólfur Bjarni Sigfússon fylgist grannt með forsetakosningunum sem fara fram á morgun. Hann verður á línunni.

Fyrirtækið Carbon Iceland vill reisa lofthreinsiver á Bakka við Húsavík og fanga þar koltvísýring úr andrúmsloftinu. Þannig verði framleitt eldsneyti og afurðir til matvælaframleiðslu. Áætlaður kostnaður við verkefnið er 140 milljarðar króna og það á að skapa þrjú til fimm hundruð störf. Carbon Iceland ehf. hefur gert samkomulag við kanadískt hátæknifyrirtæki sem hefur þróað aðferð til að hreinsa koltvísýring, beint úr andrúmslofti. Eyjólfur Lárusson, framkvæmdastjóri Carbon Iceland ætlar að segja okkur allt um málið.

Hestamenn hafa vakið athygli á því undanfarið að mikil umferð sé á reiðvegum á höfuðborgarsvæðinu. Það er gangandi, hlaupandi og hjólandi fólk en líka mótorhjól og jafnvel stærri farartæki. Sverrir Einarsson formaður Hestamannafélagsins Spretts í Kópavogi og Garðabæ verður á línunni.

Og svo er það grímunotkun í verslunum, Víðir Reynisson minnti á það á upplýsingafundi dagsins að brögð væru að því að fólk neitaði að nota grímur og væri jafnvel dónalegt við starfsfólk verslana í því sambandi við heyrum í Elínu Gautadóttur sem er verslunarstjóri í Hagkaup Garðabæ

En við byrjum á jólastemningu. Það hefur aðeins borið á því undanfarið að fólk sé farið að setja upp jólaljós og skraut - sem hlýtur að teljast óvenju snemmt. Líklega hefur það eitthvað með ástandið í samfélaginu að gera og um að gera að lýsa upp skammdegið. Borgarbyggð hefur tekið frumkvæði íbúa þar fagnandi og ætlar að taka þátt í fjörinu og byrja að skreyta, Þórdís Sif sigurðardóttir sveitastjóri Borgarbyggðar.

Var aðgengilegt til 02. nóvember 2021.
Lengd: 1 klst. 54 mín.
,