23:05
Lestin
Kynlífsvæðing ástarinnar, ný myndasaga og rapparar styðja Trump

Popp og pólitík

Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Sitjandi Bandaríkjaforseti, Donald Trump, barst stuðningur úr óvæntri átt þegar einn virtasti þrjótarappari suðurríkjanna, Lil Wayne birti mynd frá fundi þeirra fyrir helgi. Eða, kannski var stuðningurinn ekkert svo óvæntur. Stefna Trump og stjórnhættir njóta almennt lítilla vinsælda í samfélagi svartra Bandaríkjamanna en nokkrar þekktar raddir hafa þó klofið sig úr hópnum. Við skoðum rapp, ofurmenni og kapítal í Lestinni í dag.

Berglind Rós Magnúsdóttir flytur sinn fjórða og síðasta pistil um ástir og ástarrannsóknir. Og þessu sinni veltir hún fyrir kynlífsvæðingu ástarinnar - en hvað merkir slík kynlífsvæðing eiginlega?

Ungi perlukafarinn Maram tilheyrir þjóðflokki sem lifir í nánum tengslum við hafið. Marams laumar sér inn í draum gamals nágranna síns og hefur í kjölfarið leit að perlunni einu sem geymir leyndardóms lífs og dauða. Þetta er viðfangsefni nýrrar fransk-íslenskrar myndasögu sem kemur út síðar í mánuðinum. Við heimsækjum Magnús Björn Ólafsson og heyrum hvernig hann særði fram söguna með möntru.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 55 mín.
e
Endurflutt.
,