06:50
Morgunvaktin
Víða snúið að skipuleggja skólastarf í samræmi við nýja reglugerð

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Umsjónarmenn eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.

Í byrjun þáttar var sagt frá Árna Thorlacius í Stykkishólmi en í gær, 1. nóvember, voru liðin 175 ár síðan hann hóf veðurathuganir í bænum.

Lífið í skólunum tekur breytingum á morgun í samræmi við nýjar sóttvarnaráðstafanir og reglugerð. Víða verður snúið að fara að reglum, segir Ragnar Þór Pétursson, formaður Kennarasambands Íslands. Það eigi t.d. við um áfangaskipta framhaldsskóla og leikskóla.

Á krísutímum er mikilvægt að stjórnendur taki réttar ákvarðanir. Til eru fræði um stjórnun og ákvarðanatöku á slíkum tímum; áfallastjórnun. Ásthildur Elva Bernharðsdóttir, kennari við HÍ, sagði frá kjarna slíkra fræða en hann er að standa vörð um grunngildi, t.d. líf og heilsu fólks.

Í Bretlandi á fólk helst ekki að fara að heiman að nauðsynjalausu. Mjög strangar reglur taka gildi þar í landi síðar í vikunni en útbreiðsla kórónuveirunnar hefur verið hröð upp á síðkastið og stjórnvöld fengið á baukinn vegna þess. Sigrún Davíðsdóttir sagði frá stöðu mála í Lundúnaspjalli. Hún sagði líka frá brottvikningu Jeremy Corbyn úr þingflokki Verkamannaflokksins, andláti Sean Connery og heilabilun Bobby Charlton.

Í Bandaríkjunum er kosið um margt annað en til embættis forseta á morgun. Vera Illugadóttir nefndi nokkur mál sem kosið verður um í einstaka ríkjum. Réttindi leigubílstjóra, úlfar og ofskynjunarsveppir er meðal þess sem fólk þar sumsstaðar að taka afstöðu til.

Tónlist:

Það styttir alltaf upp - Vinir Dóra,

Ain?t we brothers - Sam Gleaves,

In my life - Sean Connery.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 2 klst. 10 mín.
,