12:20
Hádegisfréttir
Hádegisfréttir 2. nóvember 2020

Útvarpsfréttir.

Donald Trump ætlar að lýsa yfir sigri að kvöldi kjördags, samkvæmt heimildum bandarískra fjölmiðla. Síðustu kannanir fyrir kjördag benda hins vegar til þess að Joe Biden hafi umtalsvert forskot á Trump.

Sóttvarnarlæknir vonar að hægt verði að byrja að aflétta takmörkunum eftir tvær vikur. 26 greindust með kórónuveiruna í gær. Einn sjúklingur lést af völdum COVID-19 síðasta sólarhring. Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn segir ótrúlegt að viðskiptavinir verslana skuli sýna mótþróa varðandi grímuskyldu.

Fjórir liggja inni á Sjúkrahúsinu á Akureyri með COVID-19. Framkvæmdastjóri lækninga á sjúkrahúsinu á Akureyri, segir sjúkrahúsið sé betur undirbúið nú en í vor.

Hertar reglur um sóttvarnir í leik og grunnskólum taka gildi á morgun. Plássleysi í skólabyggingum gerir sumum skólum erfitt um vik að tryggja tveggja metra reglu við kennslu.

Ríflega 1,2 milljónir manna hafa dáið úr COVID-19 á heimsvísu og yfir 46 milljónir greinst með kórónuveiruyna.

Landsnet stendur í stórræðum á Austurlandi. Í dag og næstu daga verður stór hluti svæðisins aftengdur byggðalínunni með aukinni hættu á rafmagnstruflunum. Gul veðurviðvörun tekur gildi á Austfjörðum á morgun.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 20 mín.
,