
Hljóðritun frá tónleikum Barokkbandsins Brákar og tenórsöngvarans Benedikts Kristjánssonar í tónleikaröðinni Tíbrá í Salnum í Kópavogi 9. september 2026. Flutt var ný tónleikadagskrá undir yfirskriftinni „Milli falls og frelsunar“ þar sem m.a. var frumflutt nýtt verk eftir Arngerði Maríu Árnadóttur.
Á efnisskrá:
- Forleikur í a-moll eftir Christoph Schaffrath.
- Ein geheiligtes Gemüte, aría úr Erhöhtes Fleisch und Blut, kirkjukantötu BWV 173 eftir Johann Sebastian Bach.
- Tríósónata í g-moll fyrir fiðlu, víólu og fylgirödd eftir Johann Gottlieb Janitsch.
- Ich traue seiner Gnaden, aría úr In allen meinen Taten, kirkjukantötu BWV 97 eftir Johann Sebastian Bach.
- Parce mihi Domine eftir Arngerði Maríu Árnadóttur - frumflutningur.
- Hasse nur, aría úr Die Himmel erzählen die Ehre Gottes, kirkjukantötu BWV 76 eftir Johann Sebastian Bach.
- Fiðlukonsert í a-moll 51:a2 eftir Georg Philipp Telemann.
- Die schäumenden Wellen, aría úr Jesus schläft, was soll ich hoffen, kirkjukantötu BWV 81 eftir Johann Sebastian Bach.
- Sinfónía í G-dúr IJJ 17 eftir Johann Gottlieb Janitsch.
- Es reißet euch ein schrecklich Ende, aría úr samnefndri kirkjukantötu BWV 90 eftir Johann Sebastian Bach.
Einsöngvari: Benedikt Kristjánsson, tenór.
Einleikari og konsertmeistari: Elfa Rún Kristinsdóttir fiðluleikari.
Í byrjun þáttar hljómar brot úr tónleikaspjalli Axels Inga Árnasonar við þau Bendedikt og Elfu Rún.
Umsjón: Pétur Eggertsson.