
Á tónsviðinu
Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.
Í þessum þætti er fjallað um tónlist sem tengist Ódysseifskviðu Hómers. Gríska skáldið Hómer á að hafa verið uppi á 8. öld fyrir Krist og söguljóð hans, „Ilíonskviða“ og „Ódysseifskviða“ eru með merkustu skáldverkum fornaldar. Söguljóðin tengjast, því Ilíonskviða fjallar um Trójustríðið, en Ódysseifskviða fjallar um þau ævintýri sem einn helsti kappi Grikkja, Ódysseifur, lenti í þegar hann hélt af stað heimleiðis að stríðinu loknu. Komu þar ýmsar furðuverur við sögu eins og eineygði risinn Pólýfemus og sírenurnar sem heilluðu menn til sín með fögrum söng. Heimförin tók tíu ár og á meðan beið Penelópa, kona Ódysseifs, heima í Íþöku. Ódysseifskviða hefur orðið seinni tíma rithöfundum innblástur og má þar nefna skáldsöguna „Ódysseif“ eftir James Joyce og „Penelópukviðu“ eftir Margaret Atwood. Í þættinum verður meðal annars flutt tónlist eftir Nicola Popora, Lili Boulanger, Atla Heimi Sveinsson, Claudio Monteverdi og Jón Ásgeirsson. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir, en lesarar eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.

Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.