Á tónsviðinu

Leyft öllum aldurshópum

Benedikt Gröndal

Um þessar mundir eru liðin 200 ár frá fæðingu skáldsins Benedikts Gröndals Sveinbjarnarsonar, en hann fæddist 6. október 1826 á Bessastöðum á Álftanesi. Í tilefni af því verður þátturinn helgaður lögum við ljóð Gröndals, en mörg tónskáld hafa samið lög við kvæði eftir hann. Frægast er vafalaust lagið „Gígjan“ eftir Sigfús Einarsson, og af öðrum tónskáldum má nefna Árna Björnsson, Jóhann Ó. Haraldsson og Áskel Snorrason. Benedikt Gröndal var eitt af helstu skáldum Íslands á 19. öld og fyrstu árum 20. aldar, hann var maður rómantísku stefnunnar, en átti til að bregða á glens þegar minnst varði. Fræg var gamansaga hans, „Sagan af heljarslóðarorrustu“ og einnig þykir sjálfsævisaga hans, „Dægradvöl“, skrifuð af mikilli stílsnilld. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Björn Þór Sigbjörnsson.

Birt
Aðgengilegt til
Lengd

Á tónsviðinu

Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.

Þættir

,