15:03
Sögur af landi: Endurlit
62. þáttur

Við heyrum aftur sögurnar sem sagðar voru í þáttaröðinni Sögum af landi, sem var á dagskrá Rásar 1 frá árinu 2015-2023. Þar var flakkað um landið, rætt við fólk sem hafði sögur að segja, kynntir voru áhugaverðir staðir og fréttamál líðandi stundar skoðuð - oft með nýjum augum. Efni í þættina unnu frétta- og dagskrárgerðarfólk RÚV um allt land.

Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir

Þáttur frá 15. október 2017: Í þessum þætti er þemað tækni. Hún er margvísleg, það þarf tækni við fiskveiðar, söng og smíðar, sem og ýmislegt annað. Við heyrum af uppfinningamönnum og tæknilegum lausnum á ýmsum vandamálum. Innslög gerðu Dagur Gunnarsson, Jón Þór Kristjánsson og Rúnar Snær Reynisson.

Umsjón með endurliti: Gígja Hólmgeirsdóttir.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 50 mín.
,