07:03
Morgunvaktin
Akureyri, Tálknafjörður, kvæði og tónlist

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Akureyringar fagna afmæli bæjarins um helgina og af því tilefni heyrðum við brot úr Götunni minni, vinsælum þætti Jökuls Jakobssonar. Hann gekk um Brekkuna á Akureyri með Örlygi Sigurðssyni listmálara.

Bergdís Þrastardóttir er nýtekin við sem verkefnastjóri brothættrar byggðar á Tálknafirði og sagði okkur frá kraftinum og jákvæðninni sem hún upplifir í fólkinu þar.

Valdimar Tómasson skáld kom í þáttinn í kvæðastund, rabbaði og flutti ljóð.

Magnús Lyngdal Magnússon var á sínum stað með sígilda tónlist og í dag fjallaði hann um belgíska fiðluleikarann Eugène Ysaÿe. Hann var á sinni tíð kallaður konungur fiðlunnar en lítið er til af upptökum með honum.

Tónlist:

Henning Sommerro - Vårsøg.

Kari Bremnes - Sang til byen.

Slagarasveitin - Alla leið.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 55 mín.
,