20:40
Baunin
4. þáttur

Við erum stödd í plássi fyrir vestan í kringum aldamótin, Sveitaballamenningin er upp á sitt besta og rúnturinn stendur fyrir sínu en Baunin er hjartað, hún er ekki bara besta sjoppan, þar er líka djammað og slúðrað. Birta og Bergur hittast stundum í Bauninni, þau eru spennt hvort fyrir öðru en fyrr en varir breytist allt og þau þurfa að taka erfiðar ákvarðanir....

Handrit: Friðgeir Einarsson, Kári Viðarsson og María Reyndal

Leikstjórn: María Reyndal

Aðstoð við handrit: Hrafnhildur Orradóttir

Tónlist: Úlfur Eldjárn

Hljóðvinnsla: Gísli Kjaran Kristjánsson

Baunin er að hluta til byggð á leikritinu Prinsinn eftir Kára Viðarsson og Maríu Reyndal sem sett var upp í Þjóðleikhúsinu árið 2022.

Í þessum þætti er stokkið 16 ár fram í tímann. Tara, dóttir Birtu er forvitin um uppruna sinn og ákveður að fara vestur á sveitaball.

Persónur og leikendur:

Tara – Berglind Alda Ástþórsdóttir

Aníta – Katla Þórudóttir Njálsdóttir

Bergur – Mikael Emil Kaaber

Birta – Birta Sólveig Söring Þórisdóttir

Fanney – Ásthildur Úa Sigurðardóttir

Gubba – Hrafnhildur Orradóttir

Hemmi – Ingi Þór Þórhallsson

Mamma Bergs – Katla Margrét Þorgeirsdóttir

Óttar – Jörundur Orrason

Pabbi Bergs – Kári Viðarsson

Rúnki – Jóhann Kristófer Stefánsson

Útvarpsmaður - Gunnar Hanson

Lokalag þáttarins er eftir Kötlu Þórudóttur Njálsdóttur og Berglindi Öldu Ástþórsdóttur og er í flutningi þeirra.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 32 mín.
e
Endurflutt.
,