Hulda var á léttum og sumarlegum nótum, hringdi norður í Skagafjörð og forvitnaðist um Landsmót hestamanna sem hefst eftir slétta viku. Á línunni var Áskell Heiðar Ásgeirsson framkvæmdastjóri mótsins og hann fór yfir það helsta, auk þess sem Hulda spurði út í Bræðsluna, en Áskell Heiðar er líka einn þeirra sem að þeim viðburði standa.
Svo hringdi sveitasíminn í Höfnum á Reykjanesi þar sem Sveinn Enok Jóhannsson svaraði og sagði frá grjóthleðslunámskeiðum og fleiru forvitnilegu á svæðinu.
Lagalisti:
Moses Hightower - Sjáum hvað setur.
Tanita Tikaram - Twist in my sobriety.
Dagmar Öder - Beautiful life.
David Gray - The one I love.
Nýdönsk - Alla tíð.
Morgan Wallen og Post Malone - I Ain't Comin' Back.
Stuðlabandið - Við eldana.
Stebbi og Eyfi - Leiddu mig í græna laut.
Bread - Baby I'm A Want you.
Lay Low - Bye Bye Troubles.
Múgsefjun - Sendlingur og sandlóa.
Crosby, Stills & Nash - Helplessly Hoping.
Al Green - Take Me To The River.
Helgi Björnsson - Þegar flóðið fellur að.
Rolling Stones - Ruby Tuesday.
Garbage- Milk.
Vilhjálmur Vilhjálmsson - Og co..
GCD - Sumarið er tíminn.
Teddy Swims - Guilty.
Talking Heads - And she was.