
Fyrst á fætur
Hulda Geirsdóttir er fyrst á fætur á sunnudagsmorgnum á Rás 2. Hún heyrir í fólki víða um land, fær til sín góða gesti og leikur fjölbreytta tónlist að sínum hætti. Notaleg morgunstund með hlustendum.
Hulda sló á þráðinn til Grindavíkur í tilefni sjómannadagsins og heyrði Sigurbirni Daða Dagbjartssyni sem ræddi sjómannadaginn og stöðuna í bænum varðandi uppbyggingu og endurkomu íbúa. Gestur þáttarins var Pétur G. Markan fráfarandi bæjarstjóri í Hveragerði sem nú nýtur þess að eiga smá frí í fyrsta sinn á ævinni og veltir fyrir sér ýmsum verkefnum til framtíðar. Hann lýsir sér sem tengslaveru og segir góð samskipti vera rauða þráðinn í sínu lífi. Þau ræddu fótboltann, stjórnsýsluna, trúna og fráfall föður hans sem mótaði hann að miklu leyti.
Lagalisti:
Bubbi Morthens - Fallegur dagur.
Khruangbin og Leon Bridges - Texas sun.
Júníus Meyvant - Hailslide.
GDRN og Sigríður Thorlacius - Augnablik.
Doobie Brothers - What a fool believes.
Stefán Hilmarsson - Þrátt fyrir allt.
Hjálmar - Hvað gera fjöllin?
Etta James - I'd rather go blind.
Johnny Cash - Get rythm.
Mark Knopfler - Matchstick man.
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson - Seinasta augnablikið.

Hulda Geirsdóttir er fyrst á fætur á sunnudagsmorgnum á Rás 2. Hún heyrir í fólki víða um land, fær til sín góða gesti og leikur fjölbreytta tónlist að sínum hætti. Notaleg morgunstund með hlustendum.