22:08
Sígild og samtímatónlist
Kammerverk og kórsöngur

Sígild og samtímatónlist frá ýmsum tímum. Íslenskt og erlent í bland.

Tónlistin í þættinum:

Morceau de lecture eftir Gabriel Fauré. Yo-Yo Ma leikur á selló og Kathryn Stott á píanó. Útgefið á plötunni Merci árið 2024.

Variants (1990) eftir Richard Willis. Ames Píanókvartettinn leikur, en hann skipa: William David á píanó; Mahlon Darlington á fiðlu; Jonathan Sturm á víólu og George Work á selló. Útgefið á plötunni Dark Rosaleen - New American Quartets árið 2005.

Strengjakvartett, op.3 eftir Alban Berg. Þættir verksins eru tveir:

I. Langsam

II. Mässige Viertel

Emerson strengjakvartettinn leikur en hann er skipaður Eugene Drucker og Philip Setzer á fiðlur; Lawrence Dutton á víólu og Paut Watkins á selló.

Útgefið á plötunni Infinite Voyage árið 2023.

Ég hlusta á þær glóa eftir Mist Þorkelsdóttur. Ljóðið orti Hannes Pétursson. Kvennakór Reykjavíkur syngur undir stjórn Sigrúnar Þorgeirsdóttur. Útgefið á plötunni Konur árið 2005.

Vineta, op. 42 nr. 2 eftir Johannes Brahms. Ljóðið orti Wilhelm Müller. The King’s Singers syngja. Upptökur fóru fram í apríl og maí 2024 í St Nicholas Church, Kemerton. Útgefið á plötunni Such Stuff as Dreams Are Made On í mars árið 2025.

Vínarljóð eftir Franz Schubert í útsetningu eftir Martin Hunger Friðriksson. Björn Franzson samdi textann. Kór Víkurskóla syngur, stjórnandi er Anna Björnsdóttir.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 55 mín.
e
Endurflutt.
,