Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Bogi Ágústsson fjallaði um erlend málefni. Staðan í Mið-Austurlöndum var á dagskrá Heimsgluggans í dag, sem og hernaðaruppbygging Rússa á herstöðvum frá Kólaskaga til Kalíníngrad.
Heimsmeistaramótið í fótbolta hefst í dag. Í aðdraganda þess hefur meira verið fjallað um önnur mál en fótboltann sjálfan; til dæmis harkalega framgöngu bandarískra stjórnvalda gegn sumum þátttakendum og gríðarhátt miðaverð. Við fjölluðum um HM á níunda tímanum; fyrst um eitt og annað er varðar mótið og svo kom Hannes Þór Halldórsson til okkar en hann lék á HM í Rússlandi fyrir átta árum.
Tónlist:
MA Kvartettinn - Upp til fjalla.
VM Holdet - Reseppten.
Freshlyground, Shakira - Waka Waka (This time for Africa).

07:30

08:30

Veðurstofa Íslands.
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Í fréttum í gær, 10.júní, fagnaði framkvæmdastjóri Þroskahjálpar, Anna Lára Steindal, því að íslensk stjórnvöld hafi fullgilt valfrjálsri bókun við samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Hún segir það hana vera mikla réttarbót. En hvað er þessi bókun og hvað þýðir hún og hverju breytir hún? Anna Lára kom í þáttinn í dag og fór með okkur yfir það af hverju þetta skiptir svona miklu máli.
Nú líður senn að sögulegu afreki Sigurgeirs Svanbergssonar sjósundskappa, en hann ætlar að synda niður Lagarfljót til að vekja athygli á þjónustu Píeta samtakanna á Austurlandi og um land allt. Sigurgeir stefnir á að láta til skara skríða um leið og veður leyfir, vonandi næsta mánudag, 15.júní. Enginn hefur áður reynt slíkt afrek í leirlitu Lagarfljótinu. Björgunarsveitin Brimrún hefur staðið með honum í undirbúningnum og hefur kortlagt fljótið og leiðina sem liggur frá Fljótsdal niður að Lagarfossvirkjun, nærri 50 kílómetrar og áætlað er að sundið taki um 24 klst. Guðrún Birna Le Sage markaðsstjóri Pietasamtakanna sagði okkur betur frá þessu og starfi samtakanna í dag.
Svo hélt Jónatan Garðasson áfram að fræða okkur um íslenska tónlist og íslenskt tónlistarfólk. Í dag talaði hann um Svavar Gests. Líklega hafa fáir ef nokkur komið að íslenskri tónlist með jafn fjölbreytilegum hætti og Svavar gerði en segja má að framlag hans í því samhengi sé ómetanlegt. Jónatan sagði okkur betur frá ferli og lífi Svavars í þættinum.
Tónlistin í þættinum:
Dís / Ragnheiður Gröndal (Jóhann Jóhannsson, texti Bragi Valdimar Skúlason og Ragnar Kjartansson)
Allur lurkum laminn / Bubbi Morthens (Hilmar Oddsson)
Þórsmerkurljóð / Ragnar Bjarnason og Hljómsveit Svavars Gests (lagahöfundur ókunnur, texti Sigurður Þórarinsson)
Hvert er farið blómið blátt? / Ragnar Bjarnason og Ellý Vilhjálms með Hljómsveit Svavars Gests (Pete Seger, texti Valgeir Sigurðsson)
UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.
Hópur fólks í Samfylkingunni mótmælir nýsamþykktum lögum um brottvísunarstöð og krefst þess að þeim verði ekki framfylgt. Nýkjörinn borgarfulltrúi flokksins segir rangt að frelsissvipta börn.
Maður er í haldi grunaður um að hafa stungið tvo menn á knæpu í miðborg Reykjavíkur í gær.
Forsætisráðherra Noregs segir mikilvægt að samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið verði áfram í fullu gildi, óháð því hvað verður um mögulegar aðildarviðræður Íslands.
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn varar við minni hagvexti hér á landi og vaxandi verðbólgu.
Skrifstofur Hagkaupa í Skútuvogi voru rýmdar vegna hótunar í dag.
Íranar segjast hafa lokað fyrir siglingar um Hormússund. Árásir Bandaríkjamanna og Írana héldu áfram í nótt. Þrír indverskir sjómenn voru drepnir í árás Bandaríkjamanna úti fyrir ströndum Ómans.
Fyrri hluta kjarnaborana vegna rannsóknar á jarðgöngum til Vestmannaeyja er lokið. Það ætti að skýrast síðar í ár hve raunhæf gangagerðin er.
Enn fjölgar ríkjum sem vilja banna börnum að vera á samfélagsmiðlum. Ríkisstjórn Kanada kynnti frumvarp þess efnis í gær.
Heimsmeistaramót karla í fótbolta hefst í kvöld á Azteca-velli í Mexíkóborg.
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Í dag hefst heimsmeistaramótið í knattspyrnu sem að þessu sinni er haldið í Mexíkó, Bandaríkjunum og Kanada. Í þætti dagsins er rýnt í eyríkið Curaçao og hvað skýri velgengni fámennari þjóða á stórmótum. Rætt er við Hólmfríði Garðarsdóttur, prófessor í málefnum Suður-Ameríku, Viðar Halldórsson, prófessor í félagsfræði sem hefur sérhæft sig í íþróttum, og Jóhann Má Helgason, sparkspeking.
Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
Bryndís Björgvinsdóttir setur upp garðhanskana.
Í þáttunum er fræjum sáð og fróðleik um hvers kyns gróður mokað upp. Fjallað er um garða, skóga, umhirðu og græn svæði – og ekki síst gæðastundirnar í náttúrunni.
Í þættinum er fjallað um hlutverk og skipulag limgerða. Limgerði hafa lengi verið nýtt til að skipta upp landi, stýra umferð, fela svæði og prýða. Rætt er um limgerði í sögulegu samhengi, völundarhús og svo hinn fallegustu og eftirsóknarverðustu limgerði. Fjallað er um tegundir sem henta í limgerði hér á landi. Í þættinum er einnig rætt um stefnur og strauma úr garðlistasögunni í samhengi við skipulag garða og þá stíla sem hafa haft áhrif á hvoru tveggja heimsfræga garða og hinn almenna garðyrkjumann.
Viðmælendur: Þráinn Hauksson, Steinar Björgvinsson og Steinunn Garðarsdóttir.
Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.
Í þættinum verður leikin tónlist sem tengist júnímánuði. Tvö 19. aldar tónskáld, Fanny Mendelssohn-Hensel og Pjotr Tsjaíkovskí, sömdu röð stuttra píanóverka þar sem hvert verk táknaði einn mánuð. Fanny samdi verk sitt 1841 og gaf júníkaflanum undirtitilinn „Mansöngur". Hjá Tsjaíkovskí heitir júníkaflinn „Bátssöngur", en hans verk er frá árinu 1875. Þessi tvö smáverk verða flutt í þættinum og einnig allmargir söngvar um júnímánuð, svo sem „Júnímorgunn" eftir Jórunni Viðar, „June" eftir Roger Quilter og „June is bustin´ out all over" úr söngleiknum „Carousel" eftir Rodgers og Hammerstein. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Jóhannes Ólafsson.
Einstaklingar héðan og þaðan leika tónlist að eigin vali í þáttaröð frá vetrinum 2013-2014
Einstaklingar héðan og þaðan leika tónlist að eigin vali í þáttaröð frá vetrinum 2013-2014
Þátturinn var fyrst á dagskrá 3. maí 2014.
Umsjón: Jón Óskar Hafsteinsson
Jón Óskar Hafsteinsson leikur tónlist að eigin vali.
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.
Í þættinum sláum á þráðinn til Flateyjar og ræðum við, rithöfundinn og bókaútgefandann, Ragnar Helga Ólafsson sem siglir þar milli eyja, klifrar í klettum og vitjar fugla með fuglafræðingum.
Við kynnum einnig til leiks nýjan myndlistarrýni. Vala Sigþrúðar Jónsdóttir verður reglulega með okkur fram á sumarið og næsta vetur, og deilir með okkur upplifun sinni af sýningum sem okkur þykja einstaklega spennandi. Í dag heyrum við af sýningu sem sett var upp í Nýlistasafninu í tengslum við Listahátíð. Hún kallast Óður til gleðinnar og að baki henni stendur úkraínski listahópurinn Open Group.
Við hugum einnig að Tónlistarhátíðinni Við Djúpið. Hátíðin hefst í næstu viku á Ísafirði og að vanda verður flutt fjölbreytt klassísk tónlist úr ólíkum áttum. Greipur Gíslason er stjórnandi hátíðarinnar í ár og Sæunn Þorsteinsdóttir er listrænn stjórnandi. Við ræðum við Greip um hátíðinaí þættinum.


Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Fréttir

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Nokkur vel valin lög

frá Veðurstofu Íslands

Dánarfregnir.

Hljóðritun frá tónleikum Hildar Guðnadóttur sem fram fóru í Silfurbergi, Hörpu 6. júní sl.
Flutt er nýjasta verk Hildar, Where to From, af samnefndri plötu hennar sem út kom í október á vegum Deutsche Grammophone. Einnig hljóma lykilverk tónskáldsins sem samin eru á um 20 ára tímabili.
Ásamt Hildi, sem leikur á selló og syngur, taka góðir vinir og samstarfsfólk til margra ára þátt í flutningnum. Liam Byrne leikur á gömbu, Clarie O'Connell og Constance Ricard leika á selló, Sara Saviet leikur á víólu og söngkonur eru þær Peyee Chen og Nina Guo.
Umsjón: Pétur Eggertsson.

Melkorka Ólafsdóttir ræðir við Hildi Guðnadóttur í Klúbbi Listahátíðar 7. júní.
Bryndís Björgvinsdóttir setur upp garðhanskana.
Í þáttunum er fræjum sáð og fróðleik um hvers kyns gróður mokað upp. Fjallað er um garða, skóga, umhirðu og græn svæði – og ekki síst gæðastundirnar í náttúrunni.
Í þættinum er fjallað um hlutverk og skipulag limgerða. Limgerði hafa lengi verið nýtt til að skipta upp landi, stýra umferð, fela svæði og prýða. Rætt er um limgerði í sögulegu samhengi, völundarhús og svo hinn fallegustu og eftirsóknarverðustu limgerði. Fjallað er um tegundir sem henta í limgerði hér á landi. Í þættinum er einnig rætt um stefnur og strauma úr garðlistasögunni í samhengi við skipulag garða og þá stíla sem hafa haft áhrif á hvoru tveggja heimsfræga garða og hinn almenna garðyrkjumann.
Viðmælendur: Þráinn Hauksson, Steinar Björgvinsson og Steinunn Garðarsdóttir.


frá Veðurstofu Íslands
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Í fréttum í gær, 10.júní, fagnaði framkvæmdastjóri Þroskahjálpar, Anna Lára Steindal, því að íslensk stjórnvöld hafi fullgilt valfrjálsri bókun við samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Hún segir það hana vera mikla réttarbót. En hvað er þessi bókun og hvað þýðir hún og hverju breytir hún? Anna Lára kom í þáttinn í dag og fór með okkur yfir það af hverju þetta skiptir svona miklu máli.
Nú líður senn að sögulegu afreki Sigurgeirs Svanbergssonar sjósundskappa, en hann ætlar að synda niður Lagarfljót til að vekja athygli á þjónustu Píeta samtakanna á Austurlandi og um land allt. Sigurgeir stefnir á að láta til skara skríða um leið og veður leyfir, vonandi næsta mánudag, 15.júní. Enginn hefur áður reynt slíkt afrek í leirlitu Lagarfljótinu. Björgunarsveitin Brimrún hefur staðið með honum í undirbúningnum og hefur kortlagt fljótið og leiðina sem liggur frá Fljótsdal niður að Lagarfossvirkjun, nærri 50 kílómetrar og áætlað er að sundið taki um 24 klst. Guðrún Birna Le Sage markaðsstjóri Pietasamtakanna sagði okkur betur frá þessu og starfi samtakanna í dag.
Svo hélt Jónatan Garðasson áfram að fræða okkur um íslenska tónlist og íslenskt tónlistarfólk. Í dag talaði hann um Svavar Gests. Líklega hafa fáir ef nokkur komið að íslenskri tónlist með jafn fjölbreytilegum hætti og Svavar gerði en segja má að framlag hans í því samhengi sé ómetanlegt. Jónatan sagði okkur betur frá ferli og lífi Svavars í þættinum.
Tónlistin í þættinum:
Dís / Ragnheiður Gröndal (Jóhann Jóhannsson, texti Bragi Valdimar Skúlason og Ragnar Kjartansson)
Allur lurkum laminn / Bubbi Morthens (Hilmar Oddsson)
Þórsmerkurljóð / Ragnar Bjarnason og Hljómsveit Svavars Gests (lagahöfundur ókunnur, texti Sigurður Þórarinsson)
Hvert er farið blómið blátt? / Ragnar Bjarnason og Ellý Vilhjálms með Hljómsveit Svavars Gests (Pete Seger, texti Valgeir Sigurðsson)
UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Útvarpsfréttir.
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Þessari spurningu verður velt upp á ráðstefnunni Skapandi Austurland, sem fer fram í Fjarðabyggð í dag. Á ráðstefnunni koma saman ráðherra, fulltrúar stjórnvalda, listafólk, menningarmiðstöðvar og rannsakendur skapandi greina til að ræða stöðu og framtíð lista og menningar utan höfuðborgarsvæðisins og hvernig hægt sé að byggja upp sterkari menningarleg stoðkerfi á landsbyggðinni. Þórhildur Tinna Sigurðardóttir, forstöðumaður Menningarstofu Fjarðabyggðar, var á línunni.
Járngerður, hagsmunasamtök íbúa um framtíð og endurreisn Grindavíkur, tekur undir með nýkjörinni bæjarstjórn Grindavíkur þar sem bæjarstjórn lýsir yfir miklum vonbrigðum með þá neikvæðu og fjandsamlegu afstöðu sem stjórnvöld sýna gagnvart skjótri enduruppbyggingu bæjarfélagsins. Þetta kemur fram í áskorun sem Járngerður hefur sent á alla þingmenn. Erla Hjördís Ólafsdóttir og Valgerður Ágústsdóttir frá Járngerði komu til okkar.
Út er komin bókin Þurfamenn fá mannréttindi eftir Ragnheiði Kristjánsdóttur, prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands. Bókin fjallar um sögu fátækrahjálpar á Íslandi en í forgrunni eru breyttar hugmyndir um réttindi þeirra sem þurftu að þiggja opinbera aðstoð. Áhugavert málefni sem við ræddum við Ragnheiði.
Einar Örn Jónsson kom beint úr íþróttadeildinni okkar með sjóðandi heitan íþróttamola í pokahorninu.

07:30

08:30
Létt spjall og lögin við vinnuna.
Töframáttur túnfífilssin, Hulda Geirs í Ósló, árið 1966, maðurinn sem lítur út eins og sígaretta, síðast en alls ekki síst, voru það Krummi og Svala sem komu í heimsókn og ræddu um föður sinn Björgvin Halldórsson.
Lagalisti þáttarins:
MANNAKORN – Gamli Góði Vinur
BLUR – Girls And Boys
MARTHA & THE VANDELLAS – (Love Is Like A) Heat Wave
STEREO MC'S – Step It Up
ÞORMÓÐUR EIRÍKSSON, GDRN – Manstu
KK, EMMSJÉ GAUTI – Þúsund fleiri ár
MUGISON – Murr Murr
FINE YOUNG CANNIBALS – Johnny Come Home
MOSES HIGHTOWER – Alltígóðulagi
STEFÁN HILMARSSON – Þrátt fyrir allt
GEORGE HARRISON – Got My Mind Set On You
OF MONSTERS & MEN – Ordinary Creature
BJÖRGVIN HALLDÓRSSON – Eina Ósk
SVALA BJÖRGVINSDÓTTIR - Skýið
RYAN PARIS – Dolce Vita
B-52'S – Roam
SPILLER – Groovejet
DEPECHE MODE – People Are People
GUS GUS – Crossfade
SOMBR – Potential
BRYNJA RÁN EIÐSDÓTTIR – Cowboy Wannabe
HIPSUMHAPS – Fyrsta ástin
FOO FIGHTERS – Everlong (Laugardalshöll 26.08.2003)
OLIVIA DEAN – Nice To Each Other
NÝDÖNSK – Ekkert mál
MINDBENDERS – A Groovy Kind of Love
ROLLING STONES – Paint It, Black (Original Single Mono Version)
MARSIBIL – Allir slakir
HJÁLMAR – Hvað gera fjöllin?
U2 – Desire
DILJÁ PÉTURSDÓTTIR, HREIMUR – Svona var lífið
GRAFÍK – Bláir fuglar
KAKTUS EINARSSON – Glycerine
RICK ASTLEY – Never Gonna Give You Up
NEW ORDER – True Faith

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.
Hópur fólks í Samfylkingunni mótmælir nýsamþykktum lögum um brottvísunarstöð og krefst þess að þeim verði ekki framfylgt. Nýkjörinn borgarfulltrúi flokksins segir rangt að frelsissvipta börn.
Maður er í haldi grunaður um að hafa stungið tvo menn á knæpu í miðborg Reykjavíkur í gær.
Forsætisráðherra Noregs segir mikilvægt að samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið verði áfram í fullu gildi, óháð því hvað verður um mögulegar aðildarviðræður Íslands.
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn varar við minni hagvexti hér á landi og vaxandi verðbólgu.
Skrifstofur Hagkaupa í Skútuvogi voru rýmdar vegna hótunar í dag.
Íranar segjast hafa lokað fyrir siglingar um Hormússund. Árásir Bandaríkjamanna og Írana héldu áfram í nótt. Þrír indverskir sjómenn voru drepnir í árás Bandaríkjamanna úti fyrir ströndum Ómans.
Fyrri hluta kjarnaborana vegna rannsóknar á jarðgöngum til Vestmannaeyja er lokið. Það ætti að skýrast síðar í ár hve raunhæf gangagerðin er.
Enn fjölgar ríkjum sem vilja banna börnum að vera á samfélagsmiðlum. Ríkisstjórn Kanada kynnti frumvarp þess efnis í gær.
Heimsmeistaramót karla í fótbolta hefst í kvöld á Azteca-velli í Mexíkóborg.

Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir.
Nóg um að vera í Popplandi dagsins.GDRN kíkti í heimsókn með splúnkunýtt lag sem hún var að gera með Birni, hitað upp fyrir Konsert kvöldsins og plata vikunnar gerð upp: Júlía Aradóttir gerði upp plötuna Mother Pearl með Gyðu Valtýs. Fullt af nýrri tónlist líka í bland við gamalt.
Ásgeir Trausti Einarsson - Against the Current.
Langley, Ella - Choosin' Texas.
KK, Emmsjé Gauti - Þúsund fleiri ár.
Rostam - Back of a Truck.
ROBBIE WILLIAMS - Rock Dj.
Júlí Heiðar, Dísa - Cha cha cha.
FLOTT - L'amour.
Þormóður Eiríksson - Manstu.
WHITE TOWN - Your Woman.
GDRN - Manstu.
GDRN - Áður en dagur rís (ft. Birnir).
Birnir, GDRN - Vilt fá.
BRUNO MARS - Finesse (ft. Cardi B).
Laufey - Madwoman.
Malen Áskelsdóttir - Ready Now.
Árný Margrét - Hakk og spaghettí.
Júníus Meyvant - Don't mind.
Kingfishr - Killeagh.
Sanchez, Stephen - CHUCK THE MONEY.
Stefán Hilmarsson - Þrátt fyrir allt.
Dark Clouds, The, Johnny Blue Skies - Situation.
ABBA - S.O.S..
Tones and I, FISHER - Favour.
sombr - Potential.
SKEE-LO - I wish.
Gyða Valtýsdóttir - Mother Pearl.
Gyða Valtýsdóttir - White Noise.
Gyða Valtýsdóttir, Gyða Valtýsdóttir - Open Poem.
QUEEN - A kind of magic.
Joy, Vance - Fascination in the Dark.
Harris, Calvin, Jazzy - Satisfy.
Vampire Weekend - A-Punk.
Izleifur, Elín Hall - Hugsa alltof mikið um þig.
Náttsól - Flýttu þér hægt.
EMILÍANA TORRINI - Big Jumps.
Kaleo - Vor í vaglaskóg (KONSERT)
Stuðmenn - Manstu ekki eftir mér (KONSERT)
MUGISON - Kúrekinn (Ég trúi á lygina)
NÓI KLOSE - Heyrir þú í kallinu.
MOSES HIGHTOWER - Ráðahagur.
KK - Lífið er.
NÝDÖNSK - Ekkert mál.
STARDUST - Music Sounds Better With You.
SLAYYYER - DANCE…
GUS GUS - Ladyshave.

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Í morgun fór fram morgunverðarfundur hjá Fagfélögunum, VR og LÍV um verðbólgu, verðlag og laun. Bar hann yfirskriftina Eggið eða hænan. Þar voru ræddar þær blikur sem eru á lofti í efnahagsmálum og að allt bendir til þess að forsendur kjarasamninga bresti í haust. Halla Gunnarsdóttir var fundarstjóri og stýrði pallborðsumræðu og hún kom til okkar.
Vestfirðingar eru allt annað en sáttir við að ferjan Baldur hafi í þriðja sinn á skömmum tíma verið tekin úr áætlunarsiglingum yfir Breiðafjörð. Bæjarstjórn Vesturbyggðar gerir alvarlegar athugasemdir við þá ákvörðun Vegagerðarinnar í nýlegri bókun. Þar segir að það sé með öllu óboðlegt að að þessi staða komi niður á þjónustu í heilum landsfjórðungi sem ekki nýtur samkeppnishæfra innviða, skerðingu á fjölda flugferða og situr uppi með eilífar tafir í vegaframkvæmdum. Gerður Björk Sveinsdóttir bæjarstjóri Vesturbyggðar var á línunni.
Við kíktum niður í aðalmyndver sjónvarpsins þar sem undirbúningur fyrir HM var í fullum gangi. Opnunarleikurinn er í kvöld og við náðum tali við Eddu Sif Pálsdóttur sem heldur utan um herlegheitin.
Föstudaginn 19. júní býður Siðmennt pörum að segja „já“ í stuttri, hátíðlegri og lögformlegri hjónavígslu í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur. Þetta er í fimmta sinn sem Siðmennt stendur fyrir þessum vinsæla viðburði þar sem einfaldleikinn og merkingin fara saman. Til að segja okkur nánar frá deginum og stemningunni sem bíður para kom formaður Siðmenntar, Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, til okkar.
Lífið er fótboltaleikur er bók sem hefur að geyma fyndnar, forvitnilegar og fáheyrðar sögur úr fótboltaheiminum. Í bókinni er farin fremur óhefðbundin leið til að gera upp heimsmeistaramót karla í knattspyrnu en þetta er fyrst og fremst saga þess sem ekki gerðist á vellinum. Bjarni Stefán Konráðsson höfundur bókarinnar kom til okkar.
Íbúar í hverfi 108 bíða enn eftir niðurstöðu úrskurðanefndar umhverfis- og auðlindamála vegna Kaffistofu Samhjálpar sem á að opna síðar í þessum mánuði við Grensásveg 46. Á fimmta tug íbúa lögðu fram stjórnsýslukæru vegna kaffistofunnar. Þeir vilja að framkvæmdirnar verði stöðvaðar og að leyfið fyrir kaffistofunni verði fellt úr gildi. Íris Hrund Sigurðardóttir talsmaður íbúahóps í Gerðunum kom til okkar.


Fréttir

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Í Undiröldinni heyrir þú nýja íslenska tónlist úr ýmsum áttum sem gæti mögulega slegið í gegn á næstu vikum. Þetta gæti verið popp, raftónlist, rapp, kántrí, þungarokk eða djass - en eina sem er 100% hægt að lofa - er að lögin sem eru spiluð eru ný og íslensk .
Umsjón: Þorsteinn Hreggviðsson.

Fréttastofa RÚV.

Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmenn: Þorsteinn Hreggviðsson og Daníel Jón Baróns Jónsson.


Tónleikaupptökur víðsvegar að úr heiminum, frá ýmsum tímum og úr ólíkum tónlistaráttum. Nýjar og gamlar tónleikaupptökur úr safni Rásar 2 í bland við upptökur frá tónlistarhátíðum erlendis sem vinir Rásar 2 í EBU bjóða upp á.