07:03
Morgunvaktin
Efnahagsmál, Berlínarspjall og Grænhöfðaeyjar á HM

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Við ræddum um efnahagsmál, vaxtaákvörðun verður kynnt í fyrramálið. Spurningin er ekki hvort heldur hve mikið vextirnir hækka, segja greinendur Íslandsbanka. Jón Bjarki Bentsson aðalhagfræðingur kom til okkar og ræddi ástæðurnar.

Berlínarspjallið var óhefðbundið í dag, Arthúr Björgvin Bollason fjallaði um þýska söngvaskáldið Udo Lindenberg. Udo, sem er afar dáður í heimalandinu, varð áttræður á sunnudag.

Svo var það HM í fótbolta með Illuga Jökulssyni. Grænhöfðaeyjar eru með í fyrsta sinn og um þá staðreynd og þetta áhugaverða ríki úti fyrir vesturströnd Afríku fjölluðum við einkum en líka um Spán og Úrúgvæ og Sádí Arabíu.

Tónlist frá útsendingarlogg 2026-05-19

Peter Gabriel og Kate Bush - Don't give up.

Udo Lindenberg - Celló.

Udo Lindenberg - Sonderzug nach Pankow.

Udo Lindenberg - Hiner dem Horizont.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 55 mín.
,