07:03
Morgunútvarpið
Lykilhringrás í hafinu að veikjast,vorhreingeringin,Crohns og hvernig er að vera borgarstjóri

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Alþjóðlegur vitundardagur tileinkaður bólgusjúkdómum í meltingarvegi er dag. Talið er að yfir 10 milljónir manns í heiminum, þar af um 3,4 milljónir í Evrópu, séu annaðhvort með Crohns-sjúkdóm eða sáraristilbólgu. Í ár er athygli vakin á því að það á ekki að vera neitt feimnismál að tala um sjúkdómana eða það sem þeim fylgir, þótt þeir tengist þörmum og salernisferðum. Margir sem lifa með bólgusjúkdóma í meltingarvegi þurfa að komast á klósett án tafar og skortur á skilningi eða aðgengi getur haft veruleg áhrif á lífsgæði þeirra, þátttöku í samfélaginu og öryggi. Með uppsetningu fjólublás salernis í miðbænum vilja CCU-samtökin auka vitund almennings um þessi málefni og stuðla að auknum skilningi og samkennd. Ásgeir Theódórs, sérfræðingur í Meltingarlækningum og Þórhildur Björk Sturlaugsdóttir komu til okkar.

Vísir greindi frá því í gær að vísbendingar um að lykilhringrás í hafinu í kringum Ísland sé að veikjast vegna hnattrænnar hlýnunar séu svo afgerandi að stórauka þarf aðgerðir til að draga úr losun. Þetta er mat Loftslagsráðs. Hrun hringrásarinnar myndi hafa skelfilegar afleiðingar og Loftslagsráð segir að eina raunhæfa leiðin til þess að draga úr áhættunni sé að standa vörð um ýtrustu markmið Parísarsamningsins. Eru stjórnvöld að taka þessu alvsarlega? Af hverju er ekki meira talað um þetta. Ása Berglind Hjálmarsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, situr í umhverfis- og samgöngunefnd og hún kom til okkar.

Hildur Björnsdóttir er með öll spil á hendi við myndun á nýjum meirihluta í Reykjavík. Líklegast þykir að hún myndi annað hvort þriggja flokka meirihluta með Viðreisn og Framsóknarflokknum eða tveggja flokka meirihluta með Miðflokknum. En hvað bíður Hildar? Hvenær mætir borgarstjóri í vinnuna og er þetta ekki bölvað puð? Jón Gnarr, fyrrverandi borgarstjóri, mætti í Morgunútvarpið og sagði okkur frá starfinu.

Nú er sólin heldur betur byrjuð að afhjúpa hvern rykfyllta króka og kima heimilisins og því um að gera að rífa fram að blása lífi í tuskurnar. En hvernig eigum við að bera okkur í vorþrifunum svo að þau verði sem skilvirkust? Systurnar Guðbjörg Erna Sigurpálsdóttir og Sigrún Sigurpálsdóttir frá Akureyri leiða hópinn Þrifatips á Facebook sem inniheldur rúmlega 30 þúsund snyrtipinna og gáfu hlustendum Morgunútvarpsins góð ráð.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 50 mín.
,