Útvarpsfréttir.
Innlend kortanotkun dróst verulega saman í apríl. Greiningardeildir bankanna spá hækkun stýrivaxta á morgun.
Lögreglan á Suðurnesjum gerði vitni að eyða upptöku af handtöku á Suðurnesjum í gær. Lögmaður telur aðgerðir lögreglu ólögmætar.
Þreifingar um myndun meirihluta í sveitarstjórnum halda áfram í dag. Sjálfstæðismenn í Reykjavík ráða ráðum sínum eftir að Hildur Björnsdóttir ræddi við oddvita hinna framboðanna í gær.
Forsætisráðherrar Norðurlandanna og Indlands hittast í Ósló til að ræða aukið samstarf milli landann, þriðja leiðtogafundi þeirra á átta árum.
Svíar ætla að þrefalda loftvarnagetu með kaupum á fjórum frönskum freigátum. Það verða mestu vopnakaup Svía frá því á síðustu öld.
Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu slökkti eld í Bjarmalandi í Fossvogi klukkan hálf tólf. Eldurinn kviknaði í geymslu í íbúðarhúsi.
Leiðtogi Venstre í Danmörku, tilkynnti í morgun að hann vildi mynda þriggja flokka minnihlutastjórn með stuðningi allra í bláu blokkinni og flokki Lars Løkke Rasmussen, Moderaterne. Rasmussen hefur ekki samþykkt að styðja slíka stjórn.
Vladimír Pútín forseti Rússlands kemur í opinbera heimsókn til Kína í dag. Aðeins eru nokkrir dagar síðan Donald Trump Bandaríkjaforseti var í heimsókn þar í landi.
Formaður Landssambands smábátaeigenda segir strandveiðar fara vel af stað en áhyggjur vofi þó yfir um lengd tímabilsins og hvort nægjanlegt aflamagn verði veitt.
Grindavík er Íslandsmeistari karla í körfubolta eftir sigur á Tindastóli á Sauðárkróki í gærkvöldi.
