19:00
Rísandi stjörnur
Trio Concept

Tónleikaröðin ECHO Rising Stars er liður í verkefni sem Samtök evrópskra tónleikahúsa standa fyrir og veitir ungu og framúrskarandi tónlistarfólki færi á að koma fram í frábærum tónlistarhúsum víðs vegar um Evrópu.

Hljóðritun frá tónleikum píanótríósins Trio Concept sem fram fóru í Konserthúsinu í Stokkhólmi, 1. febrúar sl.

Tríóið skipa fiðluleikarinn Edoardo Grieco, Francesco Massimino sellóleikari og píanóleikarinn Lorenzo Nguyen.

Á efnisskrá:

- Ljóð án orða í D-dúr, op. 109 eftir Felix Mendelssohn.

- Þættir úr píanótríói nr. 1 í d-moll op. 63 eftir Robert Schumann.

- Þættir úr píanótríói í d-moll eftir Luise Adolpha Le Beau.

- Save Pepe eftir Clemens K. Thomas.

- Píanótríó nr. 1 í d-moll, op. 49 eftir Felix Mendelssohn.

Umsjón: Arngunnur Árnadóttir

Er aðgengilegt til 24. júlí 2026.
Lengd: 1 klst. 2 mín.
,