07:03
Morgunvaktin
Landpósturinn, dönsk málefni og hlaupið um götur Reykjavíkur

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Magnús Pétursson, fyrrverandi forstjóri Landspítalans og ríkissáttasemjari, fór fyrir fáeinum árum í langan göngutúr - hann gekk frá Pósthússtræti í Reykjavík norður í Skagafjörð. Reyndar ekki í einni strikloku og stundum sat hann hest, en hann fylgdi sem sagt slóð norðanpósta fyrri tíðar. Um þá og ferðalag sitt hefur Magnús skrifað bók og sagði okkur frá.

Borgþór Arngrímsson sagði okkur tíðindi frá Danmörku.

Og þetta með hlaupið. Síðasta haust setti Vera Illugadóttir sér að hlaupa allar götur í Reykjavík. Ég held að það séu um eða yfir eitt þúsund götur í borginni. Vera kemur til okkar annan hvern miðvikudag og fjallar þá yfirleitt um eitthvað erlent; um lönd og þjóðir eða áhugavert fólk - en í dag sagði hún okkur hlaupasöguna.

Tónlist:

10CC - The Wall Street shuffle.

Emmsjé Gauti, Króli - Malbik.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 55 mín.
,