15:00
Shamone! Sagan af Michael Jackson
Poppkóngur í ríki sínu

Í þáttunum er ferill Michael Jackson rakin í tali og tónum. Barnastjarna, skemmtikraftur, poppstjarna af áður óþekktri stærð, frík og fyrirbæri; Bakgrunnur hans og helstu áhrifavaldar verða til umfjöllunar og leitast verður við að setja fjölbreytilegan feril hans í menningarsögulegt samhengi.

Umsjón: Berglind María Tómasdóttir

Með Thriller festi Michael Jackson sig kirfilega í sessi sem poppkóngurinn, ósigrandi og óumdeildur. Á sama tíma fór í auknum mæli að bera á óvenjulegri hegðun stjörnunnar og til varð fyrirbærið Wacko Jacko. Í þættinum hljómar b-hlið plötunnar en einnig verða ýmis hliðarverkefni Michaels á miðjum 9. áratugnum skoðuð.

Þátturinn var fyrst á dagskrá 27. júní 2015.

Er aðgengilegt til 28. ágúst 2026.
Lengd: 54 mín.
e
Endurflutt.
,