08:03
Fram og til baka
Lára Sóley listrænn stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík

Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.

Húsvíkingurinn Lára Sóley Jóhannsdóttir er komin með mikla reynslu af stjórnun menningarviðburða þrátt fyrir ungan aldur og starfar nú sem listrænn stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík. Hennar fyrsta hátíð er einmitt að byrja í dag og Lára Sóley kom í fimmu í tilefni dagsins. Þar ræddi hún fimm listviðburði sem hafa haft áhrif á líf hennar og það fór frá Tónlistarveislu á Húsavík yfir í Víking Heiðar á Proms

Svo hringdum við í Samúel Jón Samúelsson en hann á stórt tónverk með 500 krakka lúðrasveit á opnunarhátíð Listahátíðar í dag

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 57 mín.
,