
Tæplega fimmtíu ára tónlistarferill Bubba Morthens krufinn til mergjar í tali og tónum í tilefni af sjötugsafmælisárinu. Boðið upp á fágætar tónleikaupptökur, viðtöl og umfjallanir um tónlist og texta Bubba sem sumar hverjar hafa ekki heyrst í áraraðir á öldum ljósvakans.
Umsjón: Ásgeir Eyþórsson
Í fimmtánda þætti eru árin 2018 til 2022 til umfjöllunar þegar Bubbi sendi m.a. frá sér plöturnar Regnbogans stræti og Sjálfsmynd. Í þættinum má m.a. heyra valdar klippur úr eftirtöldum þáttum: Árið er, Lestin, Plata vikunnar, Poppland og Síðdegisútvarp Rásar 2.
Viðmælendur í fimmtánda þætti eru Andrea Jónsdóttir, Arnar Eggert Thoroddsen, Bríet Ísis Elfar, Bubbi Morthens, Guðmundur Óskar Guðmundsson, Ólafur Egill Egilsson og Pálmi Ragnar Ásgeirsson.
Viðtöl: Ásgeir Eyþórsson, Eiríkur Guðmundsson, Guðmundur Pálsson, Gunnlaugur Jónsson og Lovísa Rut Kristjánsdóttir.
Lagalisti:
Bubbi - Regnbogans stræti
Bubbi - Skríða
Bubbi - 21 tafla
Bubbi & Halldóra Katrín - Án þín
Bubbi - Límdu saman heiminn minn
Bubbi - Verstu dagarnir eru bestir
Bubbi - Velkomin
Snorri Helga, Bubbi & Steingrímur Teague - Á mölina
Guðmundur R. & Bubbi - Perla
Bubbi - Sól rís
Halldóra Geirharðsdóttir - Fjöllin hafa vakað (9 líf)
Aron Mola og Rakel Björk - Rómeó og Júlía (9 líf)
Björn Stefánsson - Hisoshima (9 líf)
Esther Talía Casey - Talað við gluggann (9 líf)
Elín Hall - Er nauðsynlegt að skjóta þá (9 líf)
Bubbi - Ertu góður
Bubbi - Á horni hamingjunnar
Bubbi - 12 hvítir hestar
Bubbi - Hungur
Bubbi & Bríet - Ástrós
Bubbi - Ennþá er tími
Bubbi - Hver dagur
Bubbi & Auður - Tárin falla hægt
Bubbi - Sunnudagur (með laugardagskvöld í fanginu)