Útvarpsfréttir.
Varnarmálaráðherra Bandaríkjanna segir ríkið auðveldlega geta hafið stríðið við Íran að nýju. Forseti Bandaríkjanna tók enga ákvörðun um fyrirliggjandi samningsdrög í gær, þrátt fyrir að hafa áður boðað ákvörðun.
Forseti Úkraínu segir að Rússar undirbúi mjög stóra árás á landið og hvetur íbúa til að grípa til ráðstafana til að tryggja öryggi sitt. Rússar hafa beðið sendifulltrúa sína í Úkraínu að yfirgefa landið.
Ótímabundnu verkfalli háseta og bátsmanna er lokið eftir að samkomulag náðist við Eimskip um mönnun þriggja skipa.
Líffræðingur hjá Náttúruminjasafni Íslands segir slappt regluverk um framandi ágengar tegundir þýða að íslensk náttúra sé varnarlaus. Ný aðgerðaáætlun stjórnvalda þurfi að tryggja skýrt regluverk og öflugt eftirlit.
Sauðfjárbóndi á Austurlandi segir vetrarfærð og snjókomu í gær hafa gengið yfir áfallalaust. Vel tókst að koma öllu fé í skjól.
Kvikmyndin "Ástin sem eftir var" var sigursæl á Edduverðlaunahátíðinni í gærkvöld og fékk sjö verðlaun. Sjónvarpsþættir um Vigdísi Finnbogadóttur hlutu sex verðlaun.
Enska knattspyrnufélagið Liverpool hefur rekið hollenska knattspyrnustjórann Arne Slot. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu í dag. Veðbankar telja Andoni Iraola líklegastan til að taka við starfinu.
