20:00
Heimskviður
256 - Aldarafmæli Attenborough og áttræðir rapparar

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.

Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Þátturinn í dag er eins konar óður til öldunga. Annars vegar fjöllum við um einn virtasta og dáðasta mann samtímans, David Attenborough. Hann veðrur 100 ára þann 8.maí næstkomandi. Anna Lilja Þórisdóttir fer yfir sögu og arfleið Attenborough.

Og svo eru það Pete og Bas, Bretar sem eru að nálgast áttrætt en eru að rappa á fullu, nýkomnir frá Bandaríkjunum, eru núna á Evróputúr. Bjarni Pétur segir okkur frá þeim.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 43 mín.
,