
Tónhjólið snýst og snýst og upp koma sögur af tónlist, nýrri og gamalli. Ólíkar stefnur og straumar skjóta upp kolli og líka hljóðfæri, hugtök og túlkunarmöguleikar. Hugað verður að einhverju því sem hæst ber á tónlistarsviðinu í heimi sígildrar tónlistar og djasstónlistar á hverjum tíma.
Í Tónhjóli dagsins skoðum við tónlist sem sprettur úr borgarsamfélögum í Bandaríkjunum og Bretlandi, þar sem tónlistarfólk finnur leiðir til þess að sporna gegn flóknum vefi kerfisbundins rasisma og samsköpun er mótvægi við stjörnuvæðingu. Samruni ólíkra stíla er fyrirferðamikill og minni úr poppkúltúr finna sér leið inn í heim samtímatónlistar - og öfugt. Við ætlum að heyra bæði gamla og nýja tónlist sem sprettur úr gróskumiklu tónlistarlífi, fyrst í fríspuna senum í Chicago og miðevrópu og heyrum tvö verk af tónleikum Wadada Leos Smith í Iðnó í nóvember sl.
Við bregðum okkur svo til Suður Lundúna þar sem tónlist er nýtt sem vettvangur listrænna inngripa og yfirlýsinga og sníkjum okkur far þaðan til bandaríkjanna þar sem frjósöm ljóðskáld og framleiðendur hrista upp í hip-hop hljómnum.
Tónlist í þættinum:
Klein - Score for J (2025)
Wadada Leo Smith - Tveir spunar fluttir í Iðnó 18. nóvember 2025.
Flytjendur:
Wadada Leo Smith - Trompett
Jakob Bro - Gítar
Matthías MD Hemstock - Slagverk
Skúli Sverrisson - Bassi
Lester Bowie - Gittin' to Know Y'all (1969)
Flytjendur:
Baden Baden Free Jazz Orchestra
Peter Brötzmann - More Nipples (1969)
Flytjendur:
Peter Brötzmann - tenór saxófónn
Han Bennink - trommur
Fred Van Hove - píanó
Buschi Niebergall - bassi
Evan Parker - tenórsaxófónn
Derek Bailey - gítar
John Mayer - Raga Megha (1966)
Flytjendur: Tvöfaldur kvintett Johns Mayer og Joe Harriott:
Joe Harriott - alt saxófón, John Mayer - sembal og fiðlu, Alan Ganley - trommur, Keshav Sathe - tabla, Pat Smythe -píanó, Chandrahas Paigankar - Tanbur, Chris Taylor - flautu Coleridge Goode - bassa, Diwan Motihar - sítar og Kenny Wheeler - trompett
Stormzy - Shut Up (2015)
Dean Blunt & Joanne Robertson - Vigil (2021)
Mica Levi - Unlucky (2011)
Flytjendur: Micachu & The Shapes ásamt London Sinfonietta
Mica Levi - Om Om Om Om (2021)
Flytjendur: Mica Levi & Brother May
Tirzah - Guilty (2018)
Sons of Kemet - Think of Home (2021)
Kofi Flexxx & billy woods - Apothecary (2023)
billy woods & Moor Mother ásamt Mach-Hommy - Chimney (2020)
Moor Mother - The Myth Hold Weight (2019)
úts. Ian Anderson (2025)
Flytjendur: Moor Mother, Wooden Elephant strengjakvintett (Ian Anderson - lágfiðlu, Aoife Ní Bhriain og Hulda Jónsdóttir - fiðlur, Stefan Hadjiev - selló, Nikolai Matthews - kontrabassa) og Beethoven hljómsveitin í Bonn undir stjórn Dirk Kaftan.
Klein - Skyfall (2021)
Flytjendur: Klein, Charlotte Church, Jawnino
Umsjón: Pétur Eggertsson