22:08
Mannlegi þátturinn
Tilfinningagreind og Herramennirnir, kostir húsaskipta og áhrif ADHD á fullorðna

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1. Netfang: [email protected]. Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Ragnheiður Guðfinna Guðnadóttir, félags og vinnusálfræðingur og stofnandi Hugarheims, er þessa dagana með námskeið þar sem fjallað er um tilfinningagreind og áhrif hennar á líðan, hegðun og samskipti. Og Ragnheiður skoðar viðbrögð, viðhorf, samskiptamynstur og ólík persónueinkenni og hvað getur legið að baki. Ragnheiður útskýrði þetta betur fyrir okkur í þætti dagsins og hvernig hún notar barnasögurnar um Herramennina í þessu samhengi.

Snæfríður Ingadóttir fjölmiðlakona hefur áratugareynslu af húsaskiptum og hefur leiðbeint mörgum með þetta fyrirkomulag. Húsaskipti eru hagkvæm og ef rétt er að staðið mjög góð leið til að vera fjarri helstu ferðamannastöðum og kynnast hverfum borga. Við heyrðum í Snæfríði í dag.

Hvaða áhrif hafa einkenni ADHD á daglegt líf þeirra fullorðnu einstaklinga sem eru með ADHD? Til dæmis á náin sambönd og ástarsambönd, fjármálin, foreldrahlutverkið og fleira. Framundan er málþing ADHD samtakanna undir yfirskriftinni „Þegar ADHD fylgir þér“ þar sem einmitt þetta verður skoðað. Elín H. Hinriksdóttir, sérfræðingur hjá samtökunum, og Guðrún Rakel Eiríksdóttir, sviðstjóri forvarna hjá Virk, komu í þáttinn í dag og sögðu betur frá.

Tónlist í þættinum:

Regndropar falla (við hvert fet) / Engilbert Jensen (Burt Bacharach, texti Þorsteinn Eggertsson)

Yakkety yak smacketty smack / Changes (Jóhann Helgason)

Síðasta sjóferðin / Brimkló (Steve Goodman, texti Þorsteinn Eggertsson)

Söngur um lífið / Rúnar Júlíusson (Bodleaux Bryant, texti Þorsteinn Eggertsson)

UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Aðgengilegt til: Rennur ekki út
Lengd: 50 mín.
Leyft öllum aldurshópum
    ,