Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Stjórn VR samþykkti einróma í gærkvöldi að stefna að uppsögn kjarasamninga í dag. Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, segir að Samtök atvinnulífsins hafi ekki lagt fram lausnir sem félagið geti sætt sig við. Á þriðjudagskvöld gekk breiðfylking Starfsgreinasambandsins, Eflingar, Samiðnar og Byggiðnar frá samkomulagi við Samtök atvinnulífsins um að samningar haldi út samningstímann. VR og fagfélögin hafa rætt við SA í vikunni og Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, verður á línunni og fræðir okkur um hvernig gengur.
Jón Jónsson, KK og Mugison hafa sent frá sér lagið Eitt lítið hrós, sem þeir tóku upp í Nashville í fyrra. Þetta samstarf vekur upp fleri spurningar en það svarar. Hvað voru þeir að gera í Nashville saman? Eiga Jón Jónsson og Mugison eitthvað sameiginlegt. Við fáum svörin við þessum spurningum og fleiri þegar hinir morgunhressu Jón Jónsson og Mugison kíkja til okkar.
Gigt hefur engan aldur – börn, ungmenni og fólk á vinnualdri lifa líka með gigt og langvinna verki. Gigtafélagið er 50 ára í ár og við ætlum að fræðast um hvað hefur breyst,h vernig hefur meðferð og staða fólks með gigt þróast á hálfri öld og hvað þarf enn að bæta? Hrönn Stefánsdóttir, formaður Gigtarfélags Íslands, kemur til okkar.
Almarr Ormarsson kemur til okkar úr íþróttadeildinni.
