10:13
Flugur
Ljóð og lög af ýmsum toga

Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.

Umsjón: Jónatan Garðarsson.

Leikin eru lög sem hafa verið samin við ljóð ýmissa skálda en líka eitt lag þar sem textinn hefur verið íslenskaður. Fyrri hluta þáttarins hljóma lög við ljóð Jakobs Jóhannessonar Smára, en það eru lög við ljóðin Þrá, eftir Gunnar Þórðarson, Sjón eftir Edgar Smára Atlason, Til hennar eftir Halldór Laxness og Hraustir menn sem er þýðing Smára, eins og hann var kallaður, á enskum söngtexta. Síðan hljóma lögin Hjá lygnri móðu sem Jón Ásgeirsson samdi við ljóð Halldórs Laxness, Í síðasta sinn sem Þórir Sæmundsson samdi við ljóð Davíðs Stefánssonar, Aldrei flýgur hún aftur sem Magnús Þór Sigmundsson samdi við ljóð Þórbergs Þórðarsonar, Nótt sem Gunnar Þórðarson samdi við Nótt eftir Þorstein Erlingsson, Litli fuglinn sem Ólafur Þórarinsson samdi við ljóð Jóns Thoroddsen, Nóttin er mjúk sem Bjarni Hafþór Helgason samdi við ljóð Sigurðar Pálssonar og Ég heyri sem Sunna Gunnlaugsdóttir samdi við ljóð Jóns úr Vör.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 47 mín.
,