16:05
Síðdegisútvarpið
Riff, norskir bílstjórar fá endurgreiðslur og Svikasögur

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Hvað verður um allan þennan fatnað, textíl og fleira sem við hættum að nota og ýmist hendum eða sendum áfram í endurvinnslu eða aðra nýtingu? Fer þetta í brennsluofninn eða á hauga í fjarlægum löndum? Hvernig getum við nýtt og notað betur það sem við höfum? Þessum og fleiri spurningum veltir Freyr Eyjólfsson fyrir sér í spjalli á Borgarbókasafninu Árbæ, mánudaginn 14. september og hann var á línunni.

Um næstu helgi fer fram ráðstefnan Health for the Future 2026 hér í Reykjavík þar sem sérfræðingar, heilbrigðisstarfsfólk og sjúklingar ræða framtíð heilbrigðis-þjónustunnar. Þar verður meðal annars spurt hvort við eigum að horfa meira til heilsu, lífsgæða og forvarna, en ekki eingöngu sjúkdóma og greininga. Einnig verður rætt hvernig vísindi, reynsla lækna og reynsla sjúklinga geti unnið betur saman. Til að segja okkur nánar frá þessu komu til okkar Þórunn Jónsdóttir, skipuleggjandi ráðstefnunnar, og Eydís Sara Óskarsdóttir, varaformaður Endósamtaka Íslands.

Svikasögur eftir Maríu Reyndal verður frumsýnt á stóra sviðinu í Borgarleikhúsinu laugardaginn 19, september nk. Katla Margréti Þorgeirsdóttir sem fer með eitt aðalhlutverkanna kom til okkar .

Brimvarnargarður í Njarðvíkurhöfn er að verða tilbúinn og gert er ráð fyrir að verkinu ljúki í október. Aukning hefur verið í komum skemmtiferðaskipa á svæðið sem skapað hefur mikið líf í bænum. Hvaða þýðingu hefur þetta fyrir svæðið? Halldór Karl Hermannsson hafnarstjóri Reykjaneshafna var á línunni.

Innheimtufyrirtæki bílastæðagjalda í Noregi hefur verið dæmt í Héraðsdómi Oslóar til að endurgreiða norskum bílstjórum 300 milljónir norskra króna eða sem nemur um 4 milljörðum íslenskra króna vegna ólögmætra gjalda sem lögð voru á vegna bílastæðanotkunar. Um er að ræða stærstu hópmálsókn í sögu Noregs á sviði neytendaréttar. Dómurinn markar því tímamót í baráttu neytenda gegn starfsháttum bílastæðafyrirtækja á Norðurlöndunum. En gæti þetta haft fordæmisgildi fyrir innlendum dómstólum? Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna kom til okkar.

Málstaður er vefsvæði frá Miðeind sem sameinar verkfæri til að vinna með íslenskan texta og tal, svo sem talgreiningu, textagreiningu og þýðingar. Þar kemur gervigreindin inn með aðstoð við nám og eflingu námsárangurs. Það er fyrirtækið Miðeind sem stendur að Málstaður er tveggja ára um þessar mundir og hefur nú yfir 40.000 skráða notendur og fjölmargir skólar nýta þjónustuna fyrir nemendur og kennara. Linda Heimisdóttir framkvæmdarstjóri Miðeindar fór yfir það hvað Málstaður er og hver árangurinn af notkun þess hefur verið síðastliðin tvö ár.

Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Reykjavík, RIFF, stendur frá 24. September til 4. október næstkomandi. Fjöldi kvikmyndasýninga eru í boði eins og vanalega. Heiðursgestur hátíðarinnar í ár er sænski alþjóðaleikarinn Alexander Skarsgård sem verður viðstaddur Norðurlandafrumsýningu kvikmyndarinnar Wicker sem skartar honum og Oliviu Coleman í aðalhlutverkum. Sá sem veit allt um hátíðina, Jón Agnar Ólason, kom til okkar í lok þáttar.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 55 mín.
,