14:03
Djassland
Oddrún Lilja, norska djasslandið, tónlistarperlur og listræn ritskoðun

Tónlist frá ýmsum tímum úr ólíkum héruðum Djasslandsins. Íslenskt og erlent í bland.

Pétur Grétarsson ræðir við Oddrúnu Lilju Jónsdóttur gítarleikara og tónsmið sem býr og starfar í Noregi, þar sem hún hljóðritar fjölbreytta tónlist sína hjá Jazzland Recordings, sem var stofnað af Bugge Wesseltoft fyrir margt löngu. Oddrún Lilja var hér á landi til að spila á Djasshátíð Reykjavíkur og rifja upp íslenskuna sem hún lærði þegar hún dvaldi eitt ár hér á landi og tók sjöunda bekkinn i grunnskóla.

Tónlistin í þættinum er öll eftir Oddrúnu Lilju:

Muna - af samnefndri plötu 2026

Lilja - Muna 2026

Paris - Marble 2020

Tyr - Marble 2020

Nobody knows - Muna 2026

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 56 mín.
,