07:03
Morgunútvarpið
Treyjudagurinn,sálfræði peninganna,framtíð Vísis og gosverksmiðja í Hafnarfirði

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Á Íslandi greinist að meðaltali eitt barn í hverjum mánuði með krabbamein. Á Treyjudeginum næstkomandi föstudag klæðist fólk uppáhaldstreyjunni sinni til stuðnings börnum með krabbamein og fjölskyldum þeirra. Dagurinn hefur verið haldinn í Danmörku, Svíþjóð og Noregi um árabil. Börn með krabbamein, styrktarfélag stendur að deginum. Gréta Ingþórsdóttir, framkvæmdastjóri Barna með krabbamein kom til okkar.

Gosfélagið hóf starfsemi í Hafnarfirði í gær og er þetta í fyrsta skipti í 20 ár sem ný verksmiðja af þessari stærðargráðu er tekin í notkun. Stefnt er að því að afkastageta verksmiðjunnar verði um 70 milljón lítrar á ári sem gerir hana að einni stærstu framleiðslulínu landsins. Verksmiðjan brýtur líka upp þá fákeppni sem verið hefur á gosdrykkjamarkaði á Íslandi í áratugi eða allt frá því að Sól-Víking rann inn í Coca-Cola á Íslandi árið 2001. Brynjar Freyr Valsteinsson, framkvæmdastjóri Gosfélagsins, kom í heimsókn.

Sjónvarpsfréttirnar á Sýn hafa verið lagðar niður og eftir stendur aðeins einn sjónvarpsfréttatími á Íslandi. Í umræðum um málið í Morgunútvarpinu í gær veltu viðmælendur okkar fyrir sér hvort Vísir yrði nýttur til að koma sjónvarpsfréttum á framfæri en vefurinn er gríðarlega vel sóttur og því mörgu tækifæri sem leynast þar.Til stendur að beina auknum krafti að fréttaþjónustu á Vísi og Bylgjunni og ritstjórinn Kolbeinn Tumi Daðason kom til okkar og fræddi okkur um það og fleira.

Eftir síðustu stýrivaxtahækkun erum við í Morgunútvarpinu með peninga og skortinn á þeim á heilanum. Við ætlum því að kynna okkur bók sem heitir Sálfræði peninganna en hún fjallar ekki um hvernig á að ná árangri í fjárfestingum og „sigra markaðinn“ eða verða ríkur á einni nóttu. Þetta er bók um hegðun, viðhorf og sjálfsþekkingu – og þar af leiðandi um hvernig við getum tekið betri og meðvitaðri ákvarðanir. Þýðendurnir Georg Lúðvíksson og Kristrún Tinna Gunnarsdóttir komu til okkar.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 50 mín.
,