07:03
Morgunvaktin
Efnahagsmál, Vestfirðir og Hákon konungur

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Erna Björg Sverrisdóttir, aðalhagfræðingur Arion banka, var fyrsti gestur okkar í dag. Umræðuefnið voru efnhagsmál. Verðbólga mælist 5,6 prósent, atvinnuleysi þokast upp og það hefur hægst á hagkerfinu.

Svæðisskipulag Vestfjarða var samþykkt í síðustu viku. Það er mikið plagg eins og við fórum yfir með Aðalsteini Óskarssyni, sviðsstjóra byggðaþróunar hjá Vestfjarðastofu.

Hákon áttundi sór embættiseið að stjórnarskránni frammi fyrir norska Stórþinginu í gær. Vera Illugadóttir sagði okkur frá nýjum konungi Noregs.

Tónlist:

Dixielandsveit Árna Ísleifssonar - Dansskemtun útvarpsins í vetrarbyrjun (1974).

Tríó Jörn Grauengård, Haukur Morthens - Stína, ó Stína.

Pearl Jam - Last kiss.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 55 mín.
,