
Spor
Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir
Hvers virði eru efnislegir hlutir? Afhjúpar það að missa alla búslóðina á einu bretti eitthvað um þýðinguna sem hlutir hafa fyrir okkur? Nær maður sér af slíku? Í þættinum ræðir Arnhildur Hálfdánardóttir, frétta- og dagskrárgerðarmaður, við fólk sem missti stóran hluta veraldlegra eigna sinna í stórbrunanum í Geymslum árið 2018 í þeim tilgangi að skilja betur mannlegt eðli og mikilvægi hlutanna.
Viðmælendur:
Baldur Bragi Eðvarðsson
Ragnheiður Benediktsdóttir
Kristjana Björg Sveinsdóttir
***
Arnhildur Hálfdánardóttir, frétta- og dagskrárgerðarmaður, fjallar um mennskuna og rótar í hversdeginum eftir sannleikskornum um hver við erum í dag.
Í Sporum kynnumst við alls konar fólki og spyrjum tilvistarspurninga um spor í nútíð, fortíð og framtíð, sporin sem við skiljum eftir okkur og sporin sem heimurinn markar í okkur.
Það er allt undir; tækni, vísindi, umhverfið, samtíminn og sagan.
Ertu með knýjandi tilvistarspurningu?

Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir