20:45
Samtíminn
Samtíminn - umræður um samfélagsbreytingar á liðnum áratugum, heilbrigismál

Í þáttunum er rætt um þær miklu breytingar sem orðið hafa á íslensku samfélagi frá miðri síðustu öld og fram á okkar daga. Reynt er að gefa hlustendum innsýn í þróun samfélags okkar á þessu tímabili, helstu orsakir og afleiðingar þeirra breytinga sem átt hafa sér stað. Rætt verður um réttarfar, skólamál, skipulagsmál, jafnréttismál og fleira. Í hverjum þætti eru tveir sérfræðingar sem þekkja vel til viðfangsefnisins hverju sinni.

Umsjón: Þorgeir Ólafsson

Samtíminn - umræður um samfélagsbreytingar á liðnum áratugum, heilbrigismál,

Í þættinum verður rætt um breytingar í heilbrigðismálum síðust áratugi og hverjar eru helstu ástæður þeirra breytinga. Breytingar á starfsemi sjúkrahúsa og heilsugæslu koma við sögu, tækniþróun og samfélagsbreytingar og fleira er einnig til umsöllunar. Viðmælendur eru Sigríður A. Pálmadóttir hjúkrunarfræðingur og Sigurður Guðmundsson fyrrverandi landlæknir.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 41 mín.
e
Endurflutt.
,