12:20
Hádegisfréttir
Hádegisfréttir 21. maí 2026

Útvarpsfréttir.

Sjálfstæðismenn hafa slitið meirihlutaviðræðum við Framsóknarflokkinn í Hafnarfirði. Oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík á fund með sínum borgarstjórnarflokki eftir hádegi. Meirihlutasamkomulag þriggja flokka verður kynnt á Akureyri innan stundar.

Síðari umræða um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna við ESB heldur áfram á Alþingi í dag.

Munur á verðlagi á Íslandi og annars staðar á Norðurlöndum er orðinn tvöfaldur á við launamuninn, samkvæmt nýrri greiningu. Aldrei hefur verið jafn dýrt að vera til á Íslandi, samanborið við meðaltal í Evrópu.

Hagvöxtur í ríkjum Evrópusambandsins verður minni í ár og verðbólgan þokast uppávið, segir í nýrri efnahagsspá. Átökin í Mið-Austurlöndum eru höfuðástæðan.

Stór hluti greiðslukortamiðlunar í Danmörku liggur niðri vegna bilunar. Fjölmargir Danir hafa lent í vandræðum.

Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur ákært Raúl Castró fyrrverandi forseta Kúbu fyrir morð og samsæri um að myrða Bandaríkjamenn. Ákærurnar ýta undir vangaveltur um að Bandaríkjaforseti ætli sér að steypa kommúnistastjórn Kúbu.

Kúrasaó verður í sumar fámennasta þjóð nokkru sinni til að senda lið á heimsmeistaramótið í fótbolta. Ísland skipaði áður þann sess.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 22 mín.
,