07:03
Morgunvaktin
Heimsglugginn, kórsöngur og efnahagsmál

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Heimsglugginn var á dagskrá í dag. Bogi Ágústsson ræddi um norræn öryggismál, stjórnarmyndun í Danmörku sem tekið hefur mettíma, aukna bjartsýni Úkraínumanna gagnvart stríðinu við Rússland. Þá var fjallað um heimsókn erindreka Bandaríkjaforseta til Grænlands og um heimsóknir Bandaríkjaforseta og Rússlandsforseta til Kína.

Kvennasönghópurinn Yrkja heldur sína fyrstu tónleika í kvöld. Markmið hópsins er að færa út kvíar kórtónlistar hér á landi. Sólveig Sigurðardóttir, annar tveggja listrænna stjórnenda Yrkju, kom í þáttinn.

Efnahagsmál voru svo til umfjöllunar með Höllu Gunnarsdóttur, formanni VR. Hvað þyrfti að gerast til þess að ekki verði tekin ákvörðun um að segja upp kjarasamningum í haust?

Tónlist:

Bítlarnir - I should have known better.

Marína Ósk - Samtal við sólu.

Yrkja - You only live twice.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 55 mín.
,