12:20
Hádegisfréttir
Hádegisfréttir 25. apríl 2026

Útvarpsfréttir.

Fólk stofnar heilsu sinni í hættu með því að kaupa ólögleg lyf á netinu, segir forstjóri Lyfjastofnunnar. Hún segir lög brotin með sölu á hunangi með stinningarlyfjum.

Alls er óljóst hvort Bandaríkjamenn og Íranar hittist til friðarviðræðna í Pakistan í dag. Átta vikur eru síðan Bandaríkjamenn og Ísraelsmenn hófu árásir á Íran.

Bæjarstjórn Grindavíkur er staðráðin í að hefja skólastarf í bænum í haust – þvert á álit ríkisstjórnarinnar. Hætta vegna jarðhræringa er enn metin töluverð í bænum en íbúar segja rök um að skólastarf þar yrði hættulegt ekki standast.

Palestínumenn á Vesturbakkanum og hluta Gaza ganga að kjörborðinu í dag og kjósa til sveitarstjórnar. Kjörsókn hefur verið dræm í morgun en rúmlega milljón er á kjörskrá.

Ekkert verður af því að þrír dómarar við Héraðsdóm Reykjavíkur verði kvaddir til vitnis í sakamáli sem háð er í Héraðsdómi Reykjaness. Landsréttur hafnaði kröfu konu sem ákærð er fyrir ærumeiðingar í garð dómara.

Glódís Perla Viggósdóttir og lið hennar Bayern Munchen mætir Barcelona í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í dag. Leikurinn verður sýndur beint á RÚV.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 22 mín.
,