
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

07:30

Útvarpsfréttir.

08:30


Gestir úr öllum kimum þjóðfélagsins deila sögu sinni með hlustendum. Umsjón: Sigurlaug M. Jónasdóttir.

Morgunleikfimi með Halldóru Björnsdóttur.


Veðurstofa Íslands.

Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Seinni þátturinn þar sem lög við ljóð eftir Halldór Laxness eru dregin fram og leikin. Fyrst hljóma þrjú mismunandi lög sem tengjast kvæðinu Maístjörnunni. Fyrsta lagið er rússneskt alþýðulag sem Halldór var með í huga þegar hann samdi kvæðið. Anna Pálína Árnadóttir syngur það. Síðan kemur lag sem Árni Johnsen samdi við þetta kvæði 1975 og þar næst lagið sem Jón Ásgeirsson samdi í tengslum við leikgerð árið 1981. Það er þekktasta lagið við kvæðið, Þórunn Antonía syngur það. Tjarnarkvartettinn syngur Hjá lygnri móðu eftir Jón Ásgeirsson og Baldur Trausti Hreinsson og Edda Heiðrún Backman syngja lag Atla Heimis Sveinssonar sem heitir Dans. Þá eru tvær útgáfur Klementínudansins leiknar, annarsvegar lag Atla Heimis Sveinssonar, sem Herdís Þorvaldsdóttir, Edda Heiðrún Backman og Unnur Birna Jónsdóttir Backman syngja. Hinsvegar Klementínudans Gunnars Reynis Sveinssonar sem Eyjólfur Eyjólfsson syngur. Sigrún Harðardóttir syngur Barnagælu úr Silfurtúnglinu (Hvert örstutt spor) eftir Jón Nordal og Friðbjörn G. Jónsson syngur með Karlakór Reykjavíkur lag Sigvalda Kaldalóns við kvæðið Frændi þegar fiðlan þegir. Guðmundur Guðjónsson syngur lag Sigvalda við Íslenskt vögguljóð á hörpu og Kristján Jóhannsson syngur lag Jóns Þórarinssonar við þetta sama kvæði. Guðmundur Jónsson syngur lag Þórarins Guðmundssonar við ljóðið Vor hinsti dagur er hniginn og Ragnheiður Gröndal syngur eigið lag við sama ljóð. Umsjón: Jónatan Garðarsson.


Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Dánarfregnir.

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.

Fólk úr ýmsum áttum flytur stuttar hugleiðingar sem tengjast sama umfjöllunarefni.
Uppástand, þema: SUMAR. Arnar Már Ólafsson golfkennari.

Íslenskt lag eða tónverk.

Útvarpsfréttir.

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.

Anna Gyða Sigurgísladóttir ræðir við fólk um einstakar hugmyndir sem mótað hafa skilning okkar á heiminum. Trú, heimspeki og vísindi eru efst á baugi, og kann fortíð og samtíð að vera skeytt saman með hjálp hnýsilegs arkífs ríkisútvarpsins.


Sígild og samtímatónlist frá ýmsum tímum. Íslenskt og erlent í bland.

Þáttur um bókmenntir, bæði hér heima og úti í heimi. Hlustendum er fylgt í gegnum lestur athyglisverðra bókmenntaverka og rætt við höfunda, útgefendur og fræðimenn um stefnur, strauma, tákn og tilvísanir.
Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
Við höldum áfram í Póllandi í þætti dagsins. Pólskar bókmenntir á íslensku, við víkkum netið örlítið og lítum á þýðingarsöguna. Pétur Magnússon dagskrárgerðarmaður á rás 1 hefur mikinn áhuga á efninu og nefnir nokkur skáld, bækur og einstök ljóð sem hafa haft áhrif á hann.
Þá fjöllum við líka um nýja þýðingu á bók eftir Olgu Tokarczuk sem hlaut nóbelsverðlaunin í bókmenntum 2019. Hús dags, hús nætur kom út fyrir skemmstu, skáldsaga frá 1998 sem skaut Olgu á stjörnuhiminninn. Árni Óskarsson þýðir en hann þýddi einnig skáldsögu Olgu Drag plóg þinn yfir bein hinna dauðu, við ræðum stuttlega við hann um þýðinguna og heyrum líka brot úr viðtali við Olgu Tokarczuk þegar hún var hér á landi 2006 og Jórunn Sigurðardóttir en bæði hún og Sjón tóku viðtöl við höfundinn.
Viðmælendur: Olga Holownia, Pétur Magnússon, Árni Óskarsson og Olga Tokarczuk.
Umsjón: Jóhannes Ólafsson

Útvarpsfréttir.

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.


Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Fréttir

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Nokkur vel valin lög

frá Veðurstofu Íslands

Dánarfregnir.
Tónhjólið snýst og snýst og upp koma sögur af tónlist, nýrri og gamalli. Ólíkar stefnur og straumar skjóta upp kolli og líka hljóðfæri, hugtök og túlkunarmöguleikar. Hugað verður að einhverju því sem hæst ber á tónlistarsviðinu í heimi sígildrar tónlistar og djasstónlistar á hverjum tíma.

Anna Gyða Sigurgísladóttir ræðir við fólk um einstakar hugmyndir sem mótað hafa skilning okkar á heiminum. Trú, heimspeki og vísindi eru efst á baugi, og kann fortíð og samtíð að vera skeytt saman með hjálp hnýsilegs arkífs ríkisútvarpsins.

Ævisaga Árna prófasts Þórarinssonar. Þórbergur Þórðarson skráði. Pétur Pétursson les í hljóðritun frá 1988
Ævisaga Árna prófasts Þórarinssonar. Fagurt mannlíf. Þórbergur Þórðarson skráði. Pétur Pétursson byrjar lesturinn.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 5. apríl 1988.


frá Veðurstofu Íslands

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Útvarpsfréttir.

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

07:30

Útvarpsfréttir.

08:30


Létt spjall og lögin við vinnuna.



Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.

Útvarpsfréttir.

Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir.



Útvarpsfréttir.

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.


Fréttir

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Ólafur Páll Gunnarsson spilar tónlist að sínum hætti - hitt og þetta og þetta og allt í bland.

Fréttastofa RÚV.

Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmenn: Þorsteinn Hreggviðsson og Daníel Jón Baróns Jónsson.


Plata hverrar viku fyrir sig er kynnt í heild sinni.
Þormóður Eiríksson, tónlistarframleiðandi á bak við marga af stærstu smellum íslenskrar rapp- og popptónlistar undanfarinna ára, kemur í Plötu vikunnar til að kynna sína fyrstu sólóplötu sem ber heitið Meira. Platan kom út á þrítugsafmæli hans 20. mars og er hugsuð sem persónuleg tímamyndavél, spegilmynd af venjulegri viku í lífi hans. Við ræðum hvað þýðir það að vera listmaður frekar en framleiðandi, hvernig hann hélt heildarmyndinni hjá sér og af hverju þessi plata var alltaf gjöf til hans sjálfs.

Gjallarhorn fyrir nýjar raddir, nýstárlegar hugmyndir, óhljóð og tónlist sem þú hefur aldrei heyrt. Í Ólátagarði á íslensk grasrótartónlist griðarstað.
Umsjón: Einar Karl Pétursson og Björk Magnúsdóttir.