
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

07:30

08:30

Gestir úr öllum kimum þjóðfélagsins deila sögu sinni með hlustendum. Umsjón: Sigurlaug M. Jónasdóttir.

Morgunleikfimi með Halldóru Björnsdóttur.


Veðurstofa Íslands.

Umsjón: Kristján Kristjánsson.


Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Dánarfregnir.

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.

Fólk úr ýmsum áttum flytur stuttar hugleiðingar sem tengjast sama umfjöllunarefni.
Uppástand, þema: SUMAR. Helga Lilja Magnúsdóttir fatahönnuður.

Íslenskt lag eða tónverk.

Útvarpsfréttir.

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.

Gígja Hólmgeirsdóttir ferðast um landið og kemur víða við – í þéttbýli, dreifbýli, borg og bæjum – og kynnir sér hin ýmsu málefni á hverjum stað.
Í þættinum í dag förum við í fjöruferð og fáum að kynnast þörungarannsóknum við Ísland. Um miðjan apríl var haldið þörunganámskeið á vegum Hafrannsóknastofnunar.
Námskeiðið var ætlað þeim sem starfa víða um land við vöktun eða rannsóknir á fjörum og
grunnsævi. Við slógumst í för með þeim.
Viðmælendur: Karl Gunnarsson, Svanhildur Egilsdóttir, Sindri Gíslason, Hólmfríður Jakobsdóttir, Viktor Árnason og Valtýr Sigurðason.


Tónlist frá ýmsum tímum úr ólíkum héruðum Djasslandsins. Íslenskt og erlent í bland.
Austurríki/Búlagaría/Tékkland
Á hverju ári skiptist dagskrárgerðarfólk djasstónlistarinnar á nokkrum lögum úr sínu nærumhveffi.
Í þessum þætti hljómar tónlist eftir austurísku hljómsveitina Shake Stew, sem Andreas Felber frá Ö1 sendi okkur.
Lukas Kranzelbinder (1988) - Tristan Junk
Lukas Kranzelbinder (1988) - Ascendance
Lukas Kranzelbinder (1988) - Searching
Frá Búlagarí kemur tónlist með stórsveit búlgarska útvarpsins undir stjórn Antoni Donchev.
Uppástunga frá Maya Raikova BNR (Bulgaria) .
Alexander Ivanov (20th cent.) - Space Game
Vladislav Michev - Funky Colors
Nedelcho Ninov (20th cent.) - Don't Look Down
Og síðust í þessari þrennu evrópudjassins er Nikol Bókóva frá Tékklandi.
Með henni leika Martin Kocian á kontrabassa og Michael Wierzgon á trommur. Þetta er Nikol Bókóva og Fjöður númer tvö.
Nikol Bóková (1991) - Feather No. 2
Nikol Bóková (1991) - Feather No. 1
Nikol Bóková (1991) - Corner of the Room
Sending frá Václav Vraný - Czech Radio - Vltava


Hvernig horfum við á nútíðina og hvernig spáum við í framtíðina? Getum við litið til baka og greint fortíðina? Getum við komist að því hver viðhorf ungs fólks voru árið 1940? En árið 2011? Hvernig hafa hugmyndir fólks breyst á 50 árum? Og hvernig sér það þróunina fyrir sér næstu 50 ár?
Í þáttunum Kynslóðir mætast verður rætt við þrettán Íslendinga sem fæðast og alast upp á ólíkum tímum. Eldri viðmælendurnir eiga það sameiginlegt að hafa fæðst áður en Ísland varð lýðveldi og yngri viðmælendurnir fæddust allir eftir að Gleðibankinn var orðinn að klassík og Perlan að kennileiti í Reykjavík. Í eldri hópnum er yngsti viðmælandinn 73 ára og sá elsti 90 og í yngri hópnum er sá elsti 18 ára gamall og þeir yngstu 14 ára gamlir. Á milli elsta og yngstu viðmælendanna eru 76 ár.
Hvaða hugmyndir hafa þessir einstaklingar um menntun, störf, byggðarþróun, náttúruna, auðlindir, alþjóðamál, íslenska tungu og íslenskan mat? Hverju myndu þeir vilja breyta í íslensku samfélagi? Endurspegla tvær kynslóðir tvö ólík viðhorf? (Áður á dagskrá 2011)
Hvað eiga kynslóðirnar sameiginlegt? Hvað greinir þær að? Hvaða breytingar hafa orðið á hugmyndum fólks á hálfri öld? Hvernig sjá þessar tvær kynslóðir framtíðina fyrir sér? Umsjón: Gerður Jónsdóttir.
Hvert var viðhorf til menntunar á fyrri hluta 20. aldar þegar þrír menntaskólar voru á landinu og einn háskóli? Hvert er viðhorf til menntunar hjá ungu fólk nú, í samfélagi með þrjátíu og fjóra framhaldsskóla og sjö háskóla? Hvert var draumastarf fólks þegar stærstu atvinnuvegirnir voru landbúnaður og sjávarútvegur? Hver eru draumastörf ungs fólks nú á dögum í samfélagi þar sem 75% landsmanna starfa við þjónustustörf? Í fyrsta þætti Kynslóðir mætast heyrum við í viðmælendum þáttarins ræða um menntun og störf í fortíð, nútíð og framtíð.

Útvarpsfréttir.

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.


Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Fréttir

Oddvitar allra framboða til sveitastjórna mætast í umræðuþætti í aðdraganda kosninga 2026.
Fimm listar eru í framboði á Ísafirði fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Oddvitar þeirra mætast í umræðum. Þátttakendur eru Kristján Þór Kristjánsson, Framsóknarflokki, Gylfi Ólafsson, Viðreisn, Jónas Þór Birgisson, Sjálfstæðisflokki, Sævar Óli Hjörvarsson, Miðflokki og Svanfríður Guðrún Bergvinsdóttir, Samfylkingu.

Oddvitar allra framboða til sveitastjórna mætast í umræðuþætti í aðdraganda kosninga 2026.
Þrír listar eru í framboði á Seltjarnarnesi fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Oddvitar þeirra mætast í umræðum. Þátttakendur eru Þór Sigurgeirsson, Sjálfstæðisflokki, Skafti Harðarson, Miðflokki og Kristinn Ólafsson, Samfylkingu.

frá Veðurstofu Íslands

Dánarfregnir.

Cécile McLorin Salvant er þrefaldur Grammy-verðlaunahafi og hefur að auki hlotið þrjár Grammy-tilnefningar og fjölda annarra viðurkenninga og verðlauna fyrir tónlistarflutning sinn. Hún hefur hrifið hlustendur um víða veröld fyrir einstaklega tjáningarríka og magnaða söngrödd, frumlegt verkefnaval og sterkar og grípandi lagasmíðar. Á efnisskrá tónleikanna í Eldborg verður blanda af frumsaminni og eldri tónlist úr ýmsum áttum.
Cécile McLorin Salvant er fædd í Bandaríkjunum árið 1989 en rekur uppruna sinn til Haítí, Túnis og Frakklands. Hún nam lögfræði og óperusöng áður en hún sneri sér að jazzsöng en hún vakti fyrst verulega athygli árið 2010 þegar hún bar sigur úr býtum í jazzsöngkeppninni Thelonious Monk Jazz Vocal Competition. Salvant hefur sent frá sér sex breiðskífur sem bera vott um einstaka víðsýni, forvitni og tilraunagleði í verkefnavali og lagasmíðum. Blús og barokk, jazz, popp og gospeltónlist og þjóðlagahefðir allra heimshorna renna þar saman við eigin tónlist Salvant, sem miðlar af einstöku listfengi og djúpu næmi fyrir kjarna tónlistarinnar hverju sinni.
Auk hennar komu fram á tónleikunum í Hörpu 31. ágúst 2025 - píanóleikarinn Sullivan Fortner, trommuleikarinn Kyle Poole og bassaleikarinn Yasushi Nakamura.

Gígja Hólmgeirsdóttir ferðast um landið og kemur víða við – í þéttbýli, dreifbýli, borg og bæjum – og kynnir sér hin ýmsu málefni á hverjum stað.
Í þættinum í dag förum við í fjöruferð og fáum að kynnast þörungarannsóknum við Ísland. Um miðjan apríl var haldið þörunganámskeið á vegum Hafrannsóknastofnunar.
Námskeiðið var ætlað þeim sem starfa víða um land við vöktun eða rannsóknir á fjörum og
grunnsævi. Við slógumst í för með þeim.
Viðmælendur: Karl Gunnarsson, Svanhildur Egilsdóttir, Sindri Gíslason, Hólmfríður Jakobsdóttir, Viktor Árnason og Valtýr Sigurðason.

Ævisaga Árna prófasts Þórarinssonar. Þórbergur Þórðarson skráði. Pétur Pétursson les í hljóðritun frá 1988
Ævisaga Árna prófasts Þórarinssonar. Fagurt mannlíf. Þórbergur Þórðarson skráði. Pétur Pétursson byrjar lesturinn.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 7. apríl 1988.


frá Veðurstofu Íslands

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Útvarpsfréttir.

07:30

08:30

Létt spjall og lögin við vinnuna.



Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.

Útvarpsfréttir.

Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir.



Útvarpsfréttir.

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.


Fréttir

Oddvitar allra framboða til sveitastjórna mætast í umræðuþætti í aðdraganda kosninga 2026.
Fimm listar eru í framboði á Ísafirði fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Oddvitar þeirra mætast í umræðum. Þátttakendur eru Kristján Þór Kristjánsson, Framsóknarflokki, Gylfi Ólafsson, Viðreisn, Jónas Þór Birgisson, Sjálfstæðisflokki, Sævar Óli Hjörvarsson, Miðflokki og Svanfríður Guðrún Bergvinsdóttir, Samfylkingu.

Oddvitar allra framboða til sveitastjórna mætast í umræðuþætti í aðdraganda kosninga 2026.
Þrír listar eru í framboði á Seltjarnarnesi fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Oddvitar þeirra mætast í umræðum. Þátttakendur eru Þór Sigurgeirsson, Sjálfstæðisflokki, Skafti Harðarson, Miðflokki og Kristinn Ólafsson, Samfylkingu.

Fréttastofa RÚV.

Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmenn: Þorsteinn Hreggviðsson og Daníel Jón Baróns Jónsson.


Umsjón: Andrea Jónsdóttir.