
Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Seinni þátturinn þar sem lög við ljóð eftir Halldór Laxness eru dregin fram og leikin. Fyrst hljóma þrjú mismunandi lög sem tengjast kvæðinu Maístjörnunni. Fyrsta lagið er rússneskt alþýðulag sem Halldór var með í huga þegar hann samdi kvæðið. Anna Pálína Árnadóttir syngur það. Síðan kemur lag sem Árni Johnsen samdi við þetta kvæði 1975 og þar næst lagið sem Jón Ásgeirsson samdi í tengslum við leikgerð árið 1981. Það er þekktasta lagið við kvæðið, Þórunn Antonía syngur það. Tjarnarkvartettinn syngur Hjá lygnri móðu eftir Jón Ásgeirsson og Baldur Trausti Hreinsson og Edda Heiðrún Backman syngja lag Atla Heimis Sveinssonar sem heitir Dans. Þá eru tvær útgáfur Klementínudansins leiknar, annarsvegar lag Atla Heimis Sveinssonar, sem Herdís Þorvaldsdóttir, Edda Heiðrún Backman og Unnur Birna Jónsdóttir Backman syngja. Hinsvegar Klementínudans Gunnars Reynis Sveinssonar sem Eyjólfur Eyjólfsson syngur. Sigrún Harðardóttir syngur Barnagælu úr Silfurtúnglinu (Hvert örstutt spor) eftir Jón Nordal og Friðbjörn G. Jónsson syngur með Karlakór Reykjavíkur lag Sigvalda Kaldalóns við kvæðið Frændi þegar fiðlan þegir. Guðmundur Guðjónsson syngur lag Sigvalda við Íslenskt vögguljóð á hörpu og Kristján Jóhannsson syngur lag Jóns Þórarinssonar við þetta sama kvæði. Guðmundur Jónsson syngur lag Þórarins Guðmundssonar við ljóðið Vor hinsti dagur er hniginn og Ragnheiður Gröndal syngur eigið lag við sama ljóð. Umsjón: Jónatan Garðarsson.